Morgunblaðið - 24.04.2019, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 24.04.2019, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2019 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Ég vona að þessir ferlar virki en ég finn líka vaxandi stuðning inni í þinghúsinu við að menn verði til- búnir að bregðast við ef þess þarf,“ segir Haraldur Benediktsson, fyrsti flutningsmaður frumvarps til laga um að þingið heimili lagningu Vest- fjarðavegar um Teigsskóg, sam- kvæmt þeim áætlunum sem unnið er eftir. Hreppsnefnd Reykhólahrepps hefur samþykkt að auglýsa breyt- ingu á aðalskipulagi þannig að veita megi Vegagerðinni framkvæmda- leyfi fyrir lagningu vegarins um Teigsskóg. Skipulagsstofnun gerði athugasemdir og viðbótarfyrir- spurnir þegar hún fékk tillöguna til afgreiðslu. Tryggvi Harðarson, sveitarstjóri Reykhólahrepps, segir þetta smávægilegar athugasemdir og segir hann að Vegagerðin og skipulagsráðgjafar Reykhólahrepps séu að athuga hvort ekki sé hægt að verða við tillögum Skipulagsstofn- unar þannig að hægt sé að auglýsa skipulagsbreytinguna án athuga- semda. Hann vonast til þess að það mál skýrist á næstu dögum. Þá tekur við sex vikna frestur fyr- ir almenning og hagsmunaaðila að gera athugasemdir. Hreppsnefndin þarf síðan að vinna úr athugasemd- unum og svara þeim áður en skipu- lagsbreytingin fæst staðfest. Fram- kvæmdaleyfi er hægt að gefa út að því ferli loknu. Vegagerðin hefur enn ekki sótt formlega um fram- kvæmdaleyfi, enda skipulagið óaf- greitt, en það hefur fyrirtæki áhuga- manns um einkaframkvæmd í samgöngumálum gert. Skrifstofa hreppsins býr sig undir það að framkvæmdaleyfið verði kært vegna þess hversu umdeilt málið hefur verið. Framkvæmdir hefjist á árinu Nítján þingmenn úr sjö flokkum, öllum nema Flokki fólksins, standa að frumvarpi um leyfi til Vega- gerðarinnar til framkvæmda. Þar af eru 12 úr þingflokki sjálfstæðis- manna. Haraldur reiknar ekki með að frumvarpið verði samþykkt á vor- þingi þar sem málið sé í ferli hjá viðkomandi stofnunum. Nauðsyn- legt hafi verið að dreifa því núna til að halda þrýstingi. Hins vegar geti komið til þess að því verði dreift aftur á haustþingi ef frekari drátt- ur verði á því að framkvæmdir geti hafist. Segir Haraldur það algert skilyrði að hægt verði að bjóða verkið út á þessu ári. Tryggvi Harðarson segist vera orðinn óþolinmóður en telur þó ósennilegt að framkvæmdir geti hafist á þessu ári. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Djúpifjörður Vegfarendur þurfa ekki að fara um Ódrjúgsháls og Hjallaháls eftir að nýr vegur kemur í gegnum Teigsskóg í Þorskafirði. Verið að vinna úr athugasemdum  19 þingmenn vilja lög um Teigsskóg Fimmtíu ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur um páskahelgina. Þetta segir Guð- brandur Sigurðsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Morgunblaðið. Hann staðfestir að einhverjir hafi verið sviptir ökurétt- indum vegna brotanna og að nokkrir hafi verið stöðvaðir við akstur án ökuréttinda. Þetta er, að sögn Guðbrands, met- fjöldi slíkra brota um páska. Segir hann lögregluna mjög meðvitaða um fjölgunina en fíkniefnamálum fjölg- aði um 62% í fyrra samanborið við sama tímabil síðustu þriggja ára. Hann segir jafnframt að tilvikum ölvunaraksturs hafi fjölgað um rúm- lega 40%. „Þetta er slæm þróun. Þetta er samfélagslegt lýðheilsuvandamál sem endurspeglast í umferðinni með þessum hætti,“ segir Guðbrandur. rosamargrett@gmail.com Fleiri keyra und- ir áhrifum  Vímuakstursmet slegið um páskana Kringlan 4-12 | s. 577-7040 Söluaðilar: Hagkaup, Iceland verslanir, Melabúðin, Kjörbúðir, Krambúðir, Nettó verslanir um allt land og Pure Food Hall í flugstöðinni Keflavík. Natur (ókryddaður), með pipar og þessi klassíski með provesal kryddi. Sinneps-estragon sósa fylgir. Tilbúin vara en má hita. Fullkominn skyndibiti, hollur og bragðgóður Nú 3 tegundir Heitreyktur lax Hvar er næsta verkstæði? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.