Morgunblaðið - 24.04.2019, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2019
HANDBOLTI
Olísdeild kvenna
Fyrsti úrslitaleikur:
Valur – Fram ........................................ 28:21
Staðan er 1:0 fyrir Val og annar leikur á
morgun kl. 16 í Framhúsinu.
Danmörk
Úrslitakeppnin, 2. riðill:
GOG – Skanderborg............................ 29:26
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 3 mörk
fyrir GOG.
Staðan: GOG 6, Bjerringbro/Silkeborg 3,
Århus 0, Skanderborg 0.
Dominos-deild karla
Fyrsti úrslitaleikur:
KR – ÍR......................................... (frl.) 83:89
Staðan er 1:0 fyrir ÍR og annar leikur í
Seljaskóla á föstudagskvöld kl. 20.
Frakkland
Nanterre – Cholet ............................... 89:70
Haukur Helgi Pálsson skoraði 6 stig, tók
5 fráköst og átti 5 stoðsendingar. Hann lék
í 20 mínútur. Nanterre er nú í 2. sæti.
B-deild:
Evreux – Orleans................................. 76:86
Frank Aron Booker skoraði 8 stig og tók
1 frákast fyrir Evreux.
Úrslitakeppni NBA
Austurdeild, 8-liða úrslit:
Detroit – Milwaukee ........................ 104:127
Milwaukee vann einvígið 4:0.
Utah – Houston .................................. 107:91
Staðan er 3:1 fyrir Houston.
KÖRFUBOLTI
Á HLÍÐARENDA
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Valur tók forystuna í rimmunni við
granna sína úr Fram um Íslands-
meistaratitilinn í handknattleik
kvenna með öruggum sjö marka
sigri á heimavelli í gærkvöld, 28:21,
eftir að hafa verið fimm mörkum yfir
að loknum fyrri hálfleik, 15:10.
Deildar- og bikarmeistararnir voru
með yfirburði í leiknum lengst af.
Segja má að flest hafi gengið upp hjá
liðinu meðan leikmenn Fram voru
miður sín framan af sem varð til þess
að frumkvæðið á öllum sviðum leiks-
ins var í höndum Valskvenna.
Íris Björk Símonardóttir varði 25
skot í marki Vals en fékk á sig 19
mörk. Það gerir ríflega 60% hlut-
fallsmarkvörslu. Ljóst er að það eitt
og sér er erfitt fyrir Fram að eiga
við. Ekki bætti úr skák frábær
varnarleikur Önnu Úrsúlu Guð-
mundsdóttur, Gerðar Arinbjarnar og
Hildar Björnsdóttur í miðri vörninni
auk þess sem Díana Dögg Magn-
úsdóttir og Lovísa Thompson voru
öflugar að vanda í bakvarðar-
stöðunum. Einnig gekk sóknar-
leikurinn lipurlega.
Fátt gekk upp hjá Fram að þessu
sinni, ekki síst í fyrri hálfleik. Leik-
menn hertu aðeins upp hugann í síð-
ari hálfleik. Það dugði ekki til enda
var á brattann að sækja þegar flest-
allt gengur upp lengst af leik hjá
andstæðingnum. Aðeins lifnaði yfir
Framliðinu þegar komið var fram í
miðjan síðari hálfleikinn þegar
varnarleikurinn lagaðist. Munurinn
fór niður í þrjú mörk, 23:20, þegar
sjö mínútur voru til leiksloka. Nær
komumst Framkonur ekki.
Lið sömu félaga mættust í úrslit-
um Íslandsmótsins fyrir ári. Þá eins
og nú byrjaði Valsliðið af krafti og
vann fyrsta leikinn. Fram vann þrjá
þá næstu og varð Íslandsmeistari.
Fyrir leikinn í gær hafði Fram unnið
þrjár af fjórum viðureignum liðanna í
deildar- og bikarkeppninni. Enginn
vafi leikur á að hér fara tvö bestu lið
landsins. Dagsformið ræður miklu
þegar þau mætast á vellinum.
Óhætt er að segja að fáir ef nokkr-
ir leikmenn Fram léku af bestu getu.
Það er sennilega eina huggun Fram-
kvenna fyrir framhaldið. Stórskyttan
Ragnheiður Júlíusdóttir skoraði að-
eins eitt mark með langskoti. Karen
Knútsdóttir, Unnur Ómarsdóttir og
Steinunn Björnsdóttir voru ekki
nema skugginn af sjálfum sér. Þórey
Rósa Stefánsdóttir og Hildur Þor-
geirsdóttir sýndu lit en það dugði
skammt. Erla Rós Sigmarsdóttir
markvörður varði bærilega í síðari
hálfleik þegar vörnin skánaði.
Annað árið í röð var ein-
stefna í fyrstu orrustu
Flest gekk upp hjá deildarmeisturunum meðan Framliðinu féll allur ketill í eld
Morgunblaðið/Eggert
Sigur Samherjar í blíðu og jafnt sem stríðu, jafnt hjá Val og Gróttu. Íris Björk Símonardóttir og Anna Úrsúla Guð-
mundsdóttir, leikmenn Vals, féllust í faðma eftir sigurinn á Fram í gær. Lovísa Thompson stalla þeirra fylgist með.
Origo-höllin, fyrsti úrslitaleikur
kvenna, þriðjudaginn 23. apríl 2019.
Gangur leiksins: 1:1, 5:3, 8:5, 12:7,
13:8, 15:10, 17:12, 21:13, 22:17, 23:19,
25:20, 28:21.
Mörk Vals: Lovísa Thompson 7,
Sandra Erlingsdóttir 5/2, Anna Úr-
súla Guðmundsdóttir 4, Díana Dögg
Magnúsdóttir 3, Íris Ásta Péturs-
dóttir 3, Alina Molkova 2, Auður Est-
er Gestsdóttir 2, Ásdís Þóra Ágústs-
dóttir 1/1, Ragnhildur Edda
Þórðardóttir 1.
Varin skot: Íris B. Símonardóttir 25.
Valur – Fram 28:21
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Fram: Þórey Rósa Stefáns-
dóttir 6, Ragnheiður Júlíusdóttir
6/5, Hildur Þorgeirsdóttir 4, Sigur-
björg Jóhannsdóttir 2, Marthe Sör-
dal 1, Karen Knútsdóttir 1, Steinunn
Björnsdóttir 1.
Varin skot: Erla Rós Sigmarsdóttir
9, Sara Sif Helgadóttir 3.
Utan vallar: 2 mínútur.
Dómarar: Svavar Ólafur Pétursson
og Sigurður Hjörtur Þrastarson
Áhorfendur: 543.
Staðan er 1:0 fyrir Val.
Línumaðurinn
öflugi Atli Ævar
Ingólfsson verð-
ur ekki með Sel-
fossi í fyrsta
leiknum við Val í
undanúrslitum
Íslandsmótsins í
handbolta en lið-
in mætast á Sel-
fossi í byrjun
næstu viku.
Atli Ævar var í gær úrskurðaður
í eins leiks bann vegna olnboga-
skotsins sem hann gaf Bergvini Þór
Gíslasyni í sigri Selfoss á ÍR í fyrra-
kvöld, þegar Selfyssingar tryggðu
sér sigur í einvígi liðanna með
dramatískum hætti.
Í bann fyrir
olnbogaskot
Atli Ævar
Ingólfsson
DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS
Veldu öryggi
Lemförder – stýrisbúnaður
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ NOTA ÞAÐ BESTA
Valur og FH leiða saman hesta sína á baráttudegi verka-
lýðsins, hinn 1. maí, í stórleik 32-liða úrslita bikarkeppni
karla í knattspyrnu. Liðin tólf sem leika í úrvalsdeildinni
í sumar koma öll inn í keppnina á þessu stigi og ljóst er
að þeim fækkar um að minnsta kosti tvö fyrir 16-liða úr-
slitin því Rúnar Páll Sigmundsson fer með ríkjandi
bikarmeistara Stjörnunnar í úrvalsdeildarslag við ÍBV.
Fjögur lið úr neðstu deild, 4. deild, eru enn með í
keppninni. Úlfarnir, sem óvænt slógu út Víking Ó.,
leggja aftur land undir fót og leika við Vestra á Ísafirði.
Mídas sækir heim sigurliðið úr leik Völsungs og Tinda-
stóls, Ægir fær Þrótt R. í heimsókn og Knattspyrnu-
félagið Ásvellir tekst á við úrvalsdeildarlið Víkings R.
Drátturinn: KÁ – Víkingur R., Magni – Breiðablik, Sindri – KA, Valur –
FH, Grindavík – Afturelding, ÍR – Fjölnir, Fram – Njarðvík, Ægir – Þrótt-
ur R., ÍBV – Stjarnan, Augnablik – ÍA, Keflavík – Kórdrengir, HK – Fjarða-
byggð, Fylkir – Grótta, Vestri – Úlfarnir, KR – Dalvík/Reynir, Völsungur
eða Tindastóll – Mídas.
Tveir úrvalsdeildarslagir
Rúnar Páll
Sigmundsson
KA mun tefla fram bosníska mark-
verðinum Kristijan Jajalo í sumar
en félagið hefur gert við hann
samning sem gildir út keppnis-
tímabilið sem hefst um helgina. Ja-
jalo mun því á ný starfa með Óla
Stefáni Flóventssyni sem tók við
KA í vetur eftir að hafa stýrt
Grindavík og haft Jajalo þar sem
markvörð síðustu þrjú ár.
Hinn 21 árs gamli Aron Elí Gísla-
son, sem lék 10 leiki í úrvalsdeild-
inni í fótbolta í fyrra, var í staðinn
lánaður frá KA til Magna í 1. deild.
Óli Stefán fær
Jajalo aftur
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Akureyri Kristijan Jajalo ver víta-
spyrnu á sínum nýja heimavelli.