Morgunblaðið - 24.04.2019, Page 6

Morgunblaðið - 24.04.2019, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2019 Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Það gengur bæði hægt og illa að finna hjúkrunarfræðinga til starfa. Þegar við fyrst tókum við þessum rekstri átti ég ekki von á því að það yrði svona erfitt að finna hjúkrunar- fræðinga og sjúkraliða, en vegna þessa höfum við ekki getað opnað allt heimilið,“ segir Svanlaug Guðna- dóttir, framkvæmdastjóri hjúkr- unar, við Morgunblaðið. Vísar hún í máli sínu til Seltjarnar, nýs hjúkrunarheimilis að Safnatröð 1 á Seltjarnarnesi, en það var form- lega vígt 2. febrúar síðastliðinn. Seltjörn samanstendur af fjórum tíu herbergja heimilum sem í eru alls 40 hjúkrunarrými og miðlægum kjarna fyrir dagdvöl, sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og þjónustu fyrir allt að 25 manns. Alls eru í dag sex hjúkrunarfræð- ingar starfandi á nýja heimilinu og dekka þeir um fimm stöðugildi. Til að teljast fullmönnuð segir Svanlaug um fimm stöðugildi hjúkrunarfræð- inga vanta og fjögur til fimm stöðu- gildi sjúkraliða. Vegna þessa manna- hallæris eru einungis 10 rými af 40 nýtt í hjúkrunarheimilinu. „Við ætlum að taka inn aðra tíu í næstu viku og getum þá keyrt heim- ilið með tuttugu manns. Og þannig verður það eitthvað áfram þar til við fáum fleiri hjúkrunarfræðinga,“ segir Svanlaug, en starfsemi hófst í Seltjörn 20. mars síðastliðinn. Aðspurð segist hún hafa auglýst eftir starfsfólki frá því í janúar. „Það gengur hins vegar lítið,“ segir Svan- laug og heldur áfram: „Það hefur líka ekki gengið að fá hjúkrunar- nema, ég hélt að við myndum nú fá þá til okkar í sumar. Maður er orðinn hálfráðþrota eins og staðan er.“ Vandinn kemur ekki á óvart Guðbjörg Pálsdóttir er formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (FíH). Hún segir mönnunarvanda Seltjarnar ekki koma sér á óvart. „Það er alls staðar skortur og í þessu tilfelli er um að ræða nýtt hús- næði, en þau eru aftur á móti ekki samkeppnishæf við Landspítala þeg- ar kemur að launum. Þegar laun fólks eru jafn veigamikið atriði og það er í dag í bland við þennan mikla skort á hjúkrunarfræðingum, sem við vitum að hafa yfirgefið störf sín vegna lé- legra launakjara, mikils álags í starfi og ófullnægjandi starfsumhverfis, þá er gott húsnæði ekki nóg,“ segir Guð- björg og bætir við að uppbygging nýrra hjúkrunarheimila víðs vegar um land sé auðvitað af hinu góða. „En það gleymist hins vegar alveg að hugsa út í hvernig í veröldinni við ætlum að manna þessa vinnustaði. Þessi staða mun ekkert breytast fyrr en farið verður út í aðgerðir til að bæta laun.“ Þá segir Guðbjörg auðveldlega hægt að ráða 300 hjúkrunarfræðinga til starfa um allt land þegar í dag – svo mikil er þörfin fyrir þetta fólk. „Það þarf að fara að svara þessari spurningu: Hvað ætla yfirvöld að gera með íslenska heilbrigðiskerfið? Það er búið að viðurkenna vandann en hvað á að gera svo?“ Fást ekki til starfa á glænýju heimili  Hjúkrunarheimilið Seltjörn á Seltjarnarnesi glímir við mikla manneklu og því ekki hægt að fylla öll rými  Búið að leita að starfsfólki frá því í janúar  Stjórnvöld þurfa að bregðast við, segir formaður FíH Morgunblaðið/Árni Sæberg Heimili Aðbúnaður er til fyrirmyndar en formaður FíH segir það ekki nóg. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Samkvæmt könnun sem Félag ís- lenskra hjúkrunarfræðinga (FíH) gerði í vetur meðal sinna félags- manna eru aðeins 8% hjúkrunar- fræðinga sátt við launin sín. Þátttaka í könnuninni var góð en um 2.100 hjúkrunarfræðingar svöruðu, eða rúm 75% félagsmanna. Samkvæmt sömu könnun vilja hjúkrunarfræðingar helst leggja áherslu á hækkun dagvinnulauna í kjaraviðræðunum. Það var oftast sett sem fyrsta val, stytting vinnu- vikunnar var oftast nefnd sem annað val og í þriðja sæti kom krafa um hækkun greiðslna vegna vaktaálags. Frá þessu er greint á vef FíH. Miðlægir samningar hjúkrunar- fræðinga losnuðu í lok mars sl. og hafa viðræður við ríki og borg farið hægt af stað, að sögn Gunnars Helgasonar, sviðsstjóra kjara- og réttindasviðs FíH. Tveir samninga- fundir eru að baki, auk vinnufundar, en næsti fundur með samninganefnd ríkisins er nk. mánudag. Vilja fara nýjar leiðir „Við höfum verið að klára okkar kröfugerð og væntum þess að heyra eitthvað frá ríkinu. Við viljum fara að sjá eitthvað gerast. Hvernig ætlar ríkið að reka heilbrigðiskerfið? Það er mikill skortur á hjúkrunarfræð- ingum og miklar breytingar þurfa að verða á starfsumhverfi, launakjörum og vinnutíma ef á að fá menntaða hjúkrunarfræðinga til starfa í sínu fagi. Við viljum nálgast verkefnið með opnum huga og fara nýjar leiðir. Málið snýst ekki bara um hjúkrunar- fræðinga heldur heilbrigðiskerfið í heild sinni,“ segir Gunnar. Hann segir vandann m.a. birtast í því núna að illa gangi að ráða í sum- arafleysingar, einnig á landsbyggð- inni sem hafi þó gengið ágætlega til þessa. „Hjúkrunarfræðingar eru orðnir óþreyjufullir. Það er orðið langt síðan alvöru samtal hefur átt sér stað við okkar viðsemjendur. Síð- ustu viðræður árið 2015 enduðu með verkföllum og gerðardómi. Það er undirliggjandi ólga meðal félags- manna, við viljum að starfsumhverf- ið batni þannig að hægt verði að fá fólk til starfa og einnig að halda fólki í starfi sem vinnur við fagið í dag,“ segir Gunnar enn fremur. Aðeins 8% hjúkrunar- fræðinga sátt við launin Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Undirbúningur fyrir verkfalls- aðgerðir er þegar hafinn hjá iðn- aðarmönnum þó að enn sé ósamið við Samtök atvinnulífsins. Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambandsins og talsmaður iðnaðarmanna í við- ræðunum, segir sína menn ætla að gefa viðræðunum tækifæri til næstu helgar. Hafi ekkert gerst í lok vikunnar verði gripið til að- gerða. Iðnaðarmannafélögin ná til um 16 þúsund manns en um 13 þúsund iðnaðarmenn taka laun samkvæmt þeim samningum sem reynt er núna að ná við SA. Farið að reyna á þolrifin Iðnaðarmenn áttu vinnufund í gær og í dag er fundur í Karphús- inu með ríkissáttasemjara. Að sögn Kristjáns var farið yfir ýmis efnisatriði í gær en ekkert mark- vert átti sér stað. „Við ætlum samt sem áður að reyna til þrautar í vikunni og sjá hversu langt við komumst. Þetta er ekkert búið fyrr en það er búið,“ segir Kristján en vill ekki nánar fara út í hvar helsti ágrein- ingurinn liggi í viðræðunum við SA. Unnið sé samtímis í mörgum atriðum, eins og launaliðnum, vinnutíma og fjölda ákvæða samn- inganna. „Það skal viðurkennast að þolin- mæði okkar er orðin afar tak- mörkuð og farið að reyna verulega á þolrifin hjá mönnum,“ segir Kristján. „Þetta verður taktískt“ Mörg ár eru síðan iðnaðarmenn fóru síðast í verkfall. Slíkar að- gerðir voru boðaðar í júní 2015 en af þeim varð ekki þar sem samn- ingar náðust á síðustu stundu. Kristján segir verkfallssjóði standa mjög vel og iðnaðarmenn séu reiðubúnir til átaka ef með þurfi. „Þetta verður taktískt,“ sagði Kristján, spurður hvernig mögu- legar aðgerðir yrðu, og útilokaði ekki að vinnustöðvun yrði fyrst boðuð hjá tilteknum hópi iðnaðar- manna. Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um aðgerðaáætlunina. Viðræður við ríki og sveitarfélög eru skemmra á veg komnar, sem og vegna sérkjarasamninga, eins og við Félag atvinnurekenda, orkufyrirtækin og stóriðjuna. Þolinmæðin afar takmörkuð Morgunblaðið/Golli Iðnaðarmenn Takist samningar ekki við Samtök atvinnulífsins gætu um 13 þúsund iðnaðarmenn gripið til verkallsaðgerða. Samningafundur er í dag.  Iðnaðarmenn reiðubúnir í aðgerðir Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Verið velkomin • Kjólar • Túnikur • Skyrtur • Jakkar • Bolir • Buxur • Pils • Vesti • Peysur NýttNýtt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.