Morgunblaðið - 24.04.2019, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2019
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fjöldi fullgerðra íbúða á landinu hefur
tvöfaldast frá árinu 2014. Þrátt fyrir það
voru mun færri íbúðir fullgerðar í fyrra
en árin fyrir efnahagshrunið haustið
2008. Það voru mikil þensluár.
Þetta má lesa úr greiningu Magnúsar
Árna Skúlasonar, hagfræðings og fram-
kvæmdastjóra
Reykjavík Econo-
mics, fyrir
Morgunblaðið.
Greiningin er unn-
in upp úr gögnum
Hagstofu Íslands.
Leiðir hún í ljós
að 2.303 íbúðir voru
fullgerðar á land-
inu í fyrra. Þar af
voru 1.435, eða
62,3%, á höfuð-
borgarsvæðinu. Til samanburðar voru á
fjórða þúsund íbúðir fullgerðar á land-
inu á ári árin 2005-2007 og um 3 þúsund
árið 2008.
Að sama skapi voru töluvert færri
íbúðir í byggingu í fyrra en árin 2006 til
2009. Þannig voru um 4.550 íbúðir í
byggingu á landinu í fyrra en að meðal-
tali 5.890 íbúðir árin 2006 til 2009. Síðar-
nefndu árin voru því um 30% fleiri íbúð-
ir í byggingu að meðaltali en í fyrra.
Hefur fjölgað um 40 þúsund
Við þennan samanburð er vert að
hafa í huga að landsmönnum hefur
fjölgað mikið á síðasta áratug. Þeir voru
rúmlega 319 þúsund árið 2009 en um
357 þúsund í byrjun þessa árs.
Samtímis hefur íbúðum í byggingu
fækkað frá fyrri metárum.
Birtist þetta í því að fullgerðar voru
6,45 íbúðir á hverja 1.000 íbúa á landinu
öllu í fyrra en að meðaltali 10,25 árin
2005 til 2008. Á höfuðborgarsvæðinu
voru fullgerðar 6,29 íbúðir á hverja þús-
und íbúa í fyrra en 9,78 að meðaltali árin
2005 til 2008.
Til að setja þessar tölur í samhengi
hafa rétt rúmlega 6 íbúðir verið full-
gerðar á hverja þúsund íbúa á landinu
að meðaltali frá árinu 1983. Hlutfallið í
fyrra, 6,45 íbúðir, er því 7% yfir með-
altalinu frá 1983. Meðaltalið á landinu
2005-2008, 10,25, var hins vegar 70,6%
yfir meðaltalinu frá 1983.
Benda þessar tölur til að þrátt fyrir
að íbúðum í smíðum hafi fjölgað mikið á
síðustu árum sé enn langt í metárin
2005 til 2008. Af því leiðir að líkur á
offramboði ættu að vera töluvert minni
en eftir bóluárin.
Má í því efni rifja upp að samkvæmt
talningu Samtaka iðnaðarins í mars hef-
ur íbúðum sem eru á fyrstu byggingar-
stigum á höfuðborgarsvæðinu, þ.e. að
fokheldu, fækkað um 4,1% frá síðustu
talningu samtakanna í september.
Meira byggt suður með sjó
Árið 2012 fjölgaði fullgerðum íbúðum
á höfuðborgarsvæðinu töluvert frá
fyrra ári. Þær voru 829 á höfuðborg-
arsvæðinu og 247 utan þess. Til sam-
anburðar voru þær 1.435 á höfuð-
borgarsvæðinu í fyrra og um 868 utan
þess. Hlutfall landsbyggðarinnar hefur
því hækkað.
Kann þetta að vera vísbending um að
vægi uppbyggingar utan höfuðborgar-
svæðisins, einkum í nágrannasveitar-
félögum suður með sjó og fyrir austan
fjall, sé að aukast í íbúðauppbyggingu
á landinu.
Of seint gripið til aðgerða
Magnús Árni segir uppbyggingu
íbúða árin eftir efnahagshrunið hafa
verið langt undir sögulegu meðaltali.
Síðan hafi verið gripið of seint til að-
gerða í húsnæðismálum til að auka
framboðið á ný með hliðsjón af fólks-
fjölgun og aðflutningi erlends starfs-
fólks í ferðaþjónustu og byggingar-
geirann. Margt skýri þær tafir.
Afleiðingin hafi verið skortur á íbúð-
um, ekki síst fyrir fyrstu kaupendur.
„Miðað við óbreytt efnahagsástand
ætti að nást jafnvægi milli framboðs og
eftirspurnar. Þó með þeim varnagla að
í þessum tölum kemur ekki fram
hvernig húsnæði er í byggingu og
hvort húsnæðið hentar fyrstu kaup-
endum eður ei.“
Fjöldi fullgerðra íbúða 1983 til 2018
3.000
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
12
10
8
6
4
2
0
Fjöldi fullgerðra íbúða á höfuðborgarsvæðinu Meðaltal 1983-2018
Fjöldi fullgerðra íbúða utan höfuðborgarsvæðisins
Landið allt:
Fjöldi fullgerðra íbúða, meðaltal 1983-2018
Fjöldi fullgerðra íbúða á hverja 1.000 íbúa Meðaltal 1983-2018
’83 ’84 ’85 ’86 ’87 ’88 ’89 ’90 ’91 ’92 ’93 ’94 ’95 ’96 ’97 ’98 ’99 ’00 ’01 ’02 ’03 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18
Meðalfjöldi ’83-’18
Landið allt: 1.716
3.348
2.303
7,2
10,7
6,45
1,8
Meðalfjöldi á
hverja 1.000 íbúa
1983 til 2018
Landið allt: 6,0
6
Meðalfjöldi ’83-’18
Höfuðborgar-
svæðið: 1.191
Heimildir: Þjóðhagsstofnun og
Fasteignamat ríkisins
Fjöldi íbúða í byggingu á landinu öllu
1983 til 2018
6.000
5.000
4.000
3.000
2.000
1.000
0
24
20
16
12
8
4
0
Fjöldi íbúða í byggingu Meðaltal ’83-’18
Á hverja 1.000 íbúa Meðaltal ’83-’18
6.436
4.545
Heimildir: Þjóð-
hagsstofnun og
Fasteignamat
ríkisins
18,2
6,9
20,2
12,7
Meðalfjöldi ’83-’18
Landið allt: 3.757
Meðalfjöldi á
hverja 1.000 íbúa
1983-2018: 13,1
’83 ’88 ’93 ’98 ’03 ’08 ’13 ’18
Uppbyggingin nærri meðaltali
Um 6,45 íbúðir á hverja 1.000 íbúa fullgerðar á landinu í fyrra Meðaltalið var 10,25 íbúðir 2005-2008
Magnús Árni
Skúlason
Sala á flestum tegundum mjólkur-
afurða hefur dregist saman síðustu
mánuði. Ef litið er til tólf mánaða
tímabils hefur sala minnkað í öllum
vöruflokkum nema rjóma þar sem
varð aukning um 5%. Sala á skyri
minnkaði um 5,2% og mjólk og
sýrðum vörum um 3,5%. Sala á ost-
um minnkaði um 2,2% og lítils-
háttar samdráttur varð í sölu á við-
biti.
Ef mjólkin er umreiknuð í pró-
tein nemur salan 128,1 milljón lítra
sem er nærri 3% samdráttur frá
fyrra ári. Reiknað á fitugrunni er
salan 144,7 milljón lítrar sem er
svipað og á sama tímabili ári fyrr.
Samkvæmt þessu er bilið á milli
verðefna mjólkurinnar, fitu og pró-
teins, enn að aukast. Fitan selst bet-
ur á innanlandsmarkaði en um-
frampróteinið þarf að flytja út .
Sala minnkar í flestum flokkum mjólkur
BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S
O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6
s umarvörur
Lily flower sólbaðsdýnur kr. 15.800
Endurunnar plastmottur kr. 9.800
Sessur kr. 3.200
Lily flower púðar kr. 7.900 Sara körfur frá kr. 6.200 - 10.600
Gerviblóm í
miklu úrvali
frá kr. 1.900
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Fyrir ökuskírteinið,
passann, ferilskrána o.fl.
Góð passamynd
skiptir máli
Engar tímapantanir
Skjót
og hröð
þjónusta