Morgunblaðið - 24.04.2019, Side 13

Morgunblaðið - 24.04.2019, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2019 ild dómara. Ríkislögreglustjóri Srí Lanka, Pujith Jayasundara, hafði varað við því 11. apríl að liðsmenn NTJ kynnu að gera sprengjuárásir á kirkjur og fleiri skotmörk. Hermt er að öryggisstofnanir í Bandaríkjunum og á Indlandi hefðu áður skýrt yfirvöldum á Srí Lanka frá því að þær hefðu fengið upplýsingar sem bentu til þess að slík hryðjuverk væru í undir- búningi í landinu, að sögn The Wall Street Journal. Talsmaður stjórnarinnar sagði að forsætisráð- herrann og aðrir ráðherrar hennar hefðu ekki vitað af viðvöruninni þar sem þeim hefði ekki verið boð- ið á fundi þjóðaröryggisráðs lands- ins sem er undir stjórn forseta Srí Lanka. Samkvæmt stjórnarskrá landsins ber forsetanum að gegna embætti varnarmálaráðherra en mikil togstreita hefur verið milli hans og ríkisstjórnarinnar eftir að forsetinn reyndi án árangurs að víkja forsætisráðherranum frá í október. Togstreitan hefur orðið til þess að ráðuneyti stjórnarinnar og stofnanir undir stjórn forsetans hafa ekki getað unnið saman. Nýtur talsverðs stuðnings vel stæðra múslíma Hreyfingin NTJ var lítt þekkt áður en hryðjuverkin voru framin. Hún hefur verið undir forystu ísl- amsks öfgamanns, Zahrans Hash- mis, sem var viðriðinn skemmdar- verk á búddastyttum á Srí Lanka í bænum Mawanella 26. desember. Hann hefur haft uppi hatursáróður um aðra trúarhópa í landinu síð- ustu þrjú árin og leiðtogar sam- taka múslíma og íbúar heimabæjar hans höfðu kvartað yfir yfirlýsing- um og gerðum hans frá árinu 2017. „Hann var ógn við hófsama músl- íma í austurhluta landsins og við kærðum hann nokkrum sinnum,“ hefur AFP eftir einum leiðtoganna. Hreyfingin hefur þó notið tals- verðs stuðnings meðal millistéttar- fólks og auðugra fjölskyldna úr röðum múslíma á Srí Lanka. Hreyfingin er talin hafa tengst Ríki íslams en óljóst er hversu mikil þessi tengsl hafa verið. Um 40 múslímar frá Srí Lanka gengu til liðs við Ríki íslams í Sýrlandi frá árinu 2015 og langflestir þeirra voru úr „vel menntuðum eða vel stæðum fjölskyldum“, að sögn dómsmálaráðherra Srí Lanka. Sérfræðingar segja að skipu- lagning hryðjuverkanna á Srí Lanka hafi verið mjög flókin og telja ólíklegt að NTJ hafi getað skipulagt og framið þau án veru- legrar aðstoðar erlendra hryðju- verkasamtaka. 25 km 1 km Hryðjuverkin á Srí Lanka Kirkja heilags Sebastians Negombo Bandaranaike- alþjóða- flugvöllurinn S R Í L A N K A Jaffna Dehiwala COLOMBO INDLAND INDLANDSHAF Mannarflói Síon- kirkjan Batticaloa Heimild: maps4news.com/©HERE Shangri-La Hótel Cinnamon Grand Hótel Kingsbury Hótel Helgidómur heilags Antóníusar ORUGODAWATTA- hverfi Bastian Mawatha strætisvagnastöð Virki COLOMBO Það sem vitað er um árásirnar (skv. síðustu fréttum í gær) Sex samstilltar sjálfsvígsárásir og tvær sprengjur til viðbótar sprungu þegar lögreglumenn komu á vettvang 321 lét lífið Rúmlega 500 særðust Sprengjuárásir voru gerðar á þrjár kirkjur og þrjú hótel á páskadag Sprengja var aftengd í grennd við flugvöllinn Mannskæðustu árásirnar í landinu frá því að borgarastríðinu lauk fyrir áratug Mannskæðustu árásirnar sem beinst hafa að kristna minnihlutanum á Srí Lanka 87 sprengiþræðir fundust á á mánudag Íbúar Srí Lanka eru 21 milljón og rúmlega 7% þeirra eru kristinnar trúar 40manns hafa verið handtekin, að sögn lögreglunnar Stjórn landsins segir að hreyfing íslamista á Srí Lanka, NTJ, hafi staðið fyrir árásunum Yfirvöld eru að rannsaka hvort alþjóðleg samtök hafi tekið þátt í skipulagningu árásanna Á varðbergi Hermaður á verði við útför frá Kirkju heilags Sebastians í Colombo. Mikill öryggisviðbúnaður var í kirkjunni og víðar í borginni í gær. Minnst 45 börn létu lífið » Að minnsta kosti 45 þeirra sem biðu bana í hryðjuverk- unum á Srí Lanka voru börn. » Minnst 39 hinna látnu voru frá öðrum löndum, að sögn yfirvalda á Srí Lanka. » Þar af voru tíu frá Indlandi, átta frá Bretlandi, fjórir Banda- ríkjunum, þrír Hollandi og þrír frá Danmörku. Kim Jong-un, leiðtogi einræðis- stjórnarinnar í Norður-Kóreu, og Vladimír Pútín Rússlandsforseti ætla að koma saman til viðræðna í hafnarborginni Vladivostok í suð- austurhluta Rússlands á morgun. Júrí Úshakov, ráðgjafi Rússlands- forseta í utanríkismálum, staðfesti þetta í gær og sagði að Pútín hygðist fara á fund leiðtoga Kína í Peking eftir viðræðurnar í Vladivostok. Áhersla yrði lögð á að reyna að finna pólitíska lausn á deilunni um kjarn- orkuafvopnun á Kóreuskaga en ekki væri gert ráð fyrir því að Pútín og Kim undirrituðu sameiginlega yfir- lýsingu eða samning eftir viðræð- urnar. Fréttaskýrendur telja að fundur- inn í Vladivostok sé liður í tilraunum Kims til að auka stuðninginn við kröfu Norður-Kóreustjórnar um að refsiaðgerðum gegn landinu verði aflétt þegar í stað. Bandarísk stjórn- völd hafa ekki léð máls á kröfunni og krefjast þess að einræðisstjórnin verði fyrst við kröfu þeirra um kjarnorkuafvopnun Norður-Kóreu. Kim Jong-un fór í fyrstu utan- landsferð sína sem leiðtogi í mars 2018 og síðan þá hefur hann átt fjóra fundi með Xi Jinping, forseta Kína, þrjá með Moon Jae-in, forseta Suður-Kóreu, tvo með Donald Trump Bandaríkjaforseta og einn með Nguyn Phú Trong, forseta Víet- nams. AFP Viðræður Vladimír Pútín hyggst ræða við Kim Jong-un í Vladivostok. Kim Jong-un fer á fund Pútíns N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Kragelund stólar K 406 Verslun – Snorrabraut 56, 105 Reykjavík Sími 588 0488 | feldur.is VINDUR rauðrefstrefill 15.500 DRÍFA skinnkragi 31.900 HREFNA refaskinnsvesti 69.000 BYLGJA silfurrefskragi 24.600 Velkomin í hlýjuna SARA mokkakápa 238.000 SIF – vesti úr íslensku lambaskinni 50.400

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.