Morgunblaðið - 24.04.2019, Side 15

Morgunblaðið - 24.04.2019, Side 15
Könnun Maskínu fyrir ráðgjafanefnd um opinberar eftirlitsreglur Stofnun veitir leiðbeiningar sem auðvelda fyrirtæki mínu að takast á við lagalega óvissu og afstýra brotum á reglum Hversu skilvirkt eða óskilvirkt telur þú að eftirlit stofnunarinnar sé? Ferðamálastofa Fiskistofa Fjármálaeftirlitið Fjölmiðlanefnd Lyfjastofnun Mannvirkjastofnun Matvælastofnun Neytendastofa Orkustofnun Persónuvernd Póst- og fjarskiptast. Samgöngustofa Samkeppniseftirlitið Skipulagsstofnun Umhverfisstofnun Vinnueftirlit ríkisins Mjög sammála (5) Fremur sammála (4) Í meðallagi (3) Fremur ósammála (2) Mjög ósammála (1) Meðaltal Mjög skilvirkt (5) Fremur skilvirkt (4) Í meðallagi (3) Fremur óskilvirkt (2) Mjög óskilvirkt (1) Meðaltal Hvergi í ríkjum OECD er reglu- byrði þjónustugreina þyngri en á Ís- landi. Þetta er niðurstaða úttektar OECD sem kynnt var fyrir skömmu á fundi ráðgjafarnefndar um opin- berar eftirlitsreglur. Ekkert bendir til þess að reglubyrðin sé hlutfalls- lega einfaldari eða léttari á öðrum sviðum atvinnulífsins. Skiptir þetta máli? Auðvitað – regluverk og umgjörð um íslenskt atvinnulíf er spurning um sam- keppnishæfni gagnvart helstu sam- keppnislöndum og þar með spurn- ing um lífskjör. Þess vegna er það ein frumskylda stjórnvalda að verja samkeppnishæfni landsins. Með því að setja íþyngjandi kvaðir og reglur – umfram það sem almennt gerist – er aukin hætta á að íslensk fyrir- tæki og launafólk verði undir í harðri og óvæginni alþjóðlegri sam- keppni. Í lögum um opinberar eftirlits- reglur segir að þegar „eftirlits- reglur eru samdar eða stofnað er til opinbers eftirlits skal viðkomandi stjórnvald meta þörf fyrir eftirlit, gildi þess og kostnað þjóðfélagsins af því. Slíkt mat getur m.a. falist í áhættumati, mati á alþjóðlegum skuldbindingum um eftirlit, mati á kostnaði opinberra aðila, fyrirtækja og einstaklinga, mati á hvort ná megi sama árangri með hagkvæm- ari aðferðum eða mati á þjóðhags- legu gildi eftirlits“. Mat af þessu tagi á að fylgja með stjórnar- frumvörpum. Íþyngjandi og gengið lengra Í áðurnefndum lögum er forsætis- ráðherra gert að skipa fimm manna nefnd til ráðgjafar um eftirlit á veg- um hins opinbera og framkvæmd laganna. Að eigin frumkvæði vann þáverandi nefnd skýrslu um um þróun reglubyrði atvinnulífsins á 143. til 145. löggjafarþingi [2013- 2016]. Í skýrslunni er yfirlit yfir þau frumvörp sem urðu að lögum og leggja auknar byrðar á atvinnulífið eða einfalda það regluverk sem fyrirtæki starfa eftir. Vert er að hafa í huga að í sama frumvarpi geta jafnt verið íþyngjandi ákvæði og einföldun regluverks. Á umræddu tímabili voru sam- þykkt 35 frumvörp sem áhrif höfðu á reglubyrði. Aðeins sex frumvörp sem urðu að lögum mæltu einvörð- ungu fyrir um einföldun regluverks, 17 fólu í sér íþyngjandi reglur og 12 bæði íþyngjandi og einfaldara reglu- verk. Af þeim 17 sem voru eingöngu íþyngjandi voru 14 vegna innleið- ingar EES-reglna. Í skýrslu ráðgjafarnefndarinnar er bent á að ef „litið er til þess í hversu mörgum tilvikum gengið var lengra í innleiðingu en við- komandi gerðir mæla fyrir um, sem leiðir til þess að at- vinnulífinu er íþyngt meira en þörf var á til að uppfylla skyld- ur Íslands sam- kvæmt EES- samningnum, kemur í ljós að í sjö tilvikum var um slíkt að ræða“. Þetta þýðir að eitt af hverj- um þremur lagafrumvörpum sem samþykkt voru gekk lengra og var meira íþyngjandi en nauðsyn bar til. Yfir 50 íþyngjandi ákvæði voru í þeim frumvörpum sem lögð voru fram; aukið eftirlit, leyfi og tilkynn- ingar, skattar og gjöld, þvingunar- úrræði og refsiheimildir og loks ýmsar kvaðir. Á umræddum árum voru samþykkt 26 íþyngjandi ákvæði sem fólu í sér aukningu á stjórnsýslubyrði, þ.e. kröfur um öfl- un upplýsinga, leyfi eða tilkynn- ingar og aukið eftirlit. Í niðurlagi skýrslu ráðgjafarnefndarinnar segir orðrétt: „Það sem stingur einna mest í augu varðandi þær upplýsingar sem hér birtast er hve greiningu á hugsanlegum íþyngjandi áhrifum reglna er ábótavant. Það er grund- vallaratriði fyrir góða stjórnsýslu að slík grein- ing fari fram. Án hennar er ómögulegt fyrir stjórnvöld, atvinnulíf og almenning að átta sig á ábata og íþyngjandi áhrifum sem fylgja setn- ingu reglna fyrir at- vinnulífið. Aðferðir til að meta íþyngjandi áhrif eru vel þekktar. Slík greining þarf að fara fram og mat á kostnaði og ábata af setningu reglnanna þarf að liggja fyrir áður en ákvörðun um setningu þeirra er tekin. Ekki nægir að vísa til um- sagna hagsmunaaðila, heldur verður að gera slíkar úttektir með skipu- legum og reglulegum hætti af óháð- um aðilum.“ Í skýrslu sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands vann fyrir forsætis- ráðuneytið árið 2004 var beinn ár- legur kostnaður fyrirtækja við að framfylgja eftirlitsreglum áætlaður um 7,2 milljarðar króna á verðlagi 2003. Kostnaðurinn er um 14,4 millj- arðar á verðlagi síðasta árs. Þetta er þrisvar sinnum hærri fjárhæð en framlög ríkissjóðs til markaðs- eftirlits, neytendamála og stjórn- sýslu atvinnumála á næsta ári sam- kvæmt fjármálaáætlun. Frá því að Hagfræðistofnun vann skýrsluna hefur kostnaður örugg- lega hækkað verulega, enda hefur reglum fjölgað, þær verið hertar og eftirlit stóraukist. Víða pottur brotinn Forsætisráðuneytið og ráðgjafar- nefnd um opinberar eftirlitsreglur fengu Maskínu til að kanna viðhorf fyrirtækja vítt og breitt um landið til eftirlitsmenningar á Íslandi. Niðurstöðurnar voru kynntar á fyrrnefndum fundi ráðgjafar- nefndarinnar. Samkeppniseftirlitið kemur illa út í könnun Maskínu. Um 70% eru ósammála því að stofnunin veiti leið- beiningar sem auðvelda fyrir- tækjum að takast á við lagalega óvissu og afstýra brotum á reglum. Um 58% hafa sömu afstöðu til Fjár- málaeftirlitsins. Nær 68% telja að Samkeppniseftirlitið sé mjög eða fremur óskilvirkt í störfum sínum. Þessu er öfugt farið með Póst- og fjarskiptastofnun. Yfir 68% fyrir- tækja eru á því að stofnunin sinni leiðbeinandi hlutverki sínu og ber stofnunin nokkuð af í þessum efnum. Ferðamálastofa kemur þar á eftir, en um 60% eru á því að stofn- unin veiti leiðbeiningar sem koma að notum. Um 39% fyrirtækja telja að sá tími sem fer í að framfylgja reglum sé íþyngjandi. Að fylla út eyðublöð, skila gögnum, halda upplýsingum til haga og önnur skriffinnska er íþyngjandi að mati 44% fyrirtækja. Yfir 53% segja að samráð sem haft er við atvinnulífið áður en reglum er breytt sé mjög eða frekar slæmt. Rúm 48% fyrirtækja telja að stjórnvöld upplýsi atvinnulífið ekki skilmerkilega eða með nægilegum fyrirvara þegar reglum er breytt. Aðeins 27% er á því að reglur sem gilda um atvinnurekstur sé sann- gjarnar og gangi ekki lengra en nauðsynlegt er. Niðurstöður könnunar Maskínu eru um margt forvitnilegar, sumar sláandi og hljóta að vekja löngun stjórnvalda til að stokka hressilega upp í kerfinu – gera það einfaldara og skilvirkara. Sé vilji fyrir hendi er hægt að gera ótrúlega hluti á þeim tveimur árum sem eftir eru af kjör- tímabilinu. Regluverkið allt er fyrir almenning og atvinnulífið, ekki kerf- ið sjálft. Nauðsynleg uppstokkun verður að taka mið af þessum ein- földu sannindum. Eftir Óla Björn Kárason »Niðurstöður könn- unar Maskínu eru um margt forvitnilegar, sumar sláandi og hljóta að vekja löngun stjórn- valda til að stokka hressilega upp í kerfinu. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Ekki fyrir kerfið heldur almenning og atvinnulífið 15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2019 Andartak á göngubrú Gangandi vegfarendur um þessa brú í Landbroti á Snæfellsnesi austanverðu þurfa litlar áhyggjur að hafa af vélknúnum ökutækjum, umluktir grænkandi náttúru. Eggert

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.