Morgunblaðið - 24.04.2019, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 24.04.2019, Qupperneq 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2019 Raðauglýsingar Raðauglýsingar Fundir/Mannfagnaðir ses.xd.is Samtök eldri sjálfstæðismanna, SES Aðalfundur SES Aðalfundur Samtaka eldri sjálfstæðismanna, SES, verður haldinn miðvikudaginn 8. maí kl. 12:00 í Valhöll. Venjuleg aðalfundarstörf. Með kveðju, Stjórnin. Auka aðalfundur Siðmenntar Auka aðalfundur Siðmenntar verður haldinn miðvikudagskvöldið 24. apríl kl 20:00, að Vesturgötu 7. Félagar hvattir til að mæta og taka þátt í stjórnarkjöri. Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Fitjabraut 26-28, Njarðvík, fnr. 221-6237, þingl. eig. KEJ ehf., gerðar- beiðandi Íslandsbanki hf., þriðjudaginn 30. apríl nk. kl. 09:00. Tjarnargata 12, Sandgerði, fnr. 209-5149, þingl. eig. Michelle María Vilhjálmsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 30. apríl nk. kl. 10:00. Vallargata 11, Sandgerði, 50% ehl., fnr. 209-5227, þingl. eig. Pétur Kristjánsson, gerðarbeiðandi Borgun hf., þriðjudaginn 30. apríl nk. kl. 10:15. Heiðarholt 44, Keflavík, fnr. 208-8900, þingl. eig. Kristín Hreiðarsdóttir, gerðarbeiðandi Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, þriðjudaginn 30. apríl nk. kl. 10:40. Vatnsnesvegur 5, Keflavík, fnr. 232-0531, þingl. eig. Vatnsnesvegur 5 ehf., gerðarbeiðendur Reykjanesbær og Íbúðalánasjóður, þriðjudag- inn 30. apríl nk. kl. 11:00. Vatnsnesvegur 5, Keflavík, fnr. 232-0532, þingl. eig. Vatnsnesvegur 5 ehf., gerðarbeiðendur Reykjanesbær og Íbúðalánasjóður, þriðjudag- inn 30. apríl nk. kl. 11:05. Vatnsnesvegur 5, Keflavík, fnr. 232-0533, þingl. eig. Vatnsnesvegur 5 ehf., gerðarbeiðendur Reykjanesbær og Íbúðalánasjóður, þriðjudag- inn 30. apríl nk. kl. 11:10. Vatnsnesvegur 5, Keflavík, fnr. 232-0534, þingl. eig. Vatnsnesvegur 5 ehf., gerðarbeiðendur Reykjanesbær og Íbúðalánasjóður, þriðjudag- inn 30. apríl nk. kl. 11:15. Vatnsnesvegur 5, Keflavík, fnr. 232-0535 , þingl. eig. Vatnsnesvegur 5 ehf., gerðarbeiðendur Reykjanesbær og Íbúðalánasjóður, þriðjudag- inn 30. apríl nk. kl. 11:20. Vatnsnesvegur 5, Keflavík, fnr. 232-0536, þingl. eig. Vatnsnesvegur 5 ehf., gerðarbeiðendur Reykjanesbær og Íbúðalánasjóður, þriðjudag- inn 30. apríl nk. kl. 11:25. Sýslumaðurinn á Suðurnesjum 23. apríl 2019 Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Fellsbraut 4, Svfél. Skagaströnd, fnr. 213-8848, þingl. eig. Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 30. apríl nk. kl. 10:45. Lækjarbakki, Svfél. Skagaströnd, fnr. 213-9170, aðalskuldari Guðlaug Grétarsdóttir, en þingl. eig. og veðsali Hjalti Viðar Reynisson, gerðar- beiðandi Brú Lífeyrissjóður starfsm.sveitarf., þriðjudaginn 30. apríl nk. kl. 11:30. Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra 23. apríl 2019 Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin smíðastofa kl. 9-16. Stóladans með Þóreyju kl. 10. Brids kl. 12.30. Gönguhópur kl. 13. Opið hús, t.d. vist og brids kl. 13-16. Opið fyrir innipútt. Hádegis- matur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Allir vel- komnir. Sími 535-2700. Áskirkju Aðalfundur Safnaðarfélags Áskirkju verður haldinn sunnu- daginn 19. maí kl. 13.30 í Ási. Farið verður yfir starf okkar síðastliðið ár og ársuppgjör 2018 kynnt. Allir velkomnir. Boðinn Harmonikkuspil og söngur kl. 13.30. Handavinnustofa opin frá kl. 9-15, leiðbeinendur í handavinnu mæta kl. 13.30. Vatnsleikfimi kl. 14.30. Leshópur Boðans kl. 15. Breiðholtskirkja Eldri borgara starfið ,,Maður er manns gaman" í Breiðholtskirkju kl. 13.15. Þetta er síðasta samveran þennan vetur og við fáum góðan gest í spjall til okkar. Hittumst svo hress og kát í haust. Allir hjartanlega velkomnir. Bústaðakirkja Kl. 12.30 kjötsúpa og fjör, við kveðjum veturinn með stæl. Gestur okkar verður Björgvin Franz Gíslason sem mun syngja og segja sögur og Jónas Þórir leikur undir. Það kostar 2500 kr. inn. Kjötsúpa og skemmtiatriði. Hlökkum til að sjá ykkur og það væri ágætt að skrá sig í súpuna svo það verði nóg til. Skráning hjá Hólm- fríði djákna í síma 5538500. Dalbraut 18-20 Handavinnusamvera kl. samverustund frá Laugar- neskirkju kl. 14. Verslunarferð í Bónus kl. 14.40. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffispjall og blöðin við hring- borðið kl. 8.50. Ljóðahópur Soffíu kl. 9.45-11.30. Línudans kl. 10-11.15. Listasmiðja opin kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11.30. Veðurhópurinn kl. 13.30-14.15. Tálgun með Valdóri kl. 13.30-16. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Hugmyndabankinn opinn kl. 9-16. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Furugerði 1 Bókmenntahópur kl. 10. Leikfimi kl. 11, hádegismatur kl. 11.30-12.30, ganga kl. 13. Botsía kl. 14. Prjónaklúbbur kl. 14. Kaffisala kl. 14.30-15.30. Náttúrulífsmyndir, sýning kl. 15. Garðabær Vatnsleikfmi Sjálandi kl. 7.30 / 15. Kvennaleikfimi Sjálandi kl. 9.30. Liðstyrkur Sjálandi kl. 10.15. Kvennaleikfimi Ásgarði kl. 11.30. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga kl. 11. Brids í Jónshúsi kl. 13. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.15. Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofan kl. 8.30-16. Útskurður með leiðbeinanda kl. 9-12. Línudans kl. 11-12. Leikfimi Helgu Ben kl. 11- 11.30. Útskurður / pappamódel með leiðbeinanda kl. 13-16. Félagsvist kl. 13-16. Döff félag heyrnarlausra. Allir velkomnir. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, opinn tími, kl. 9.30 glerlist, kl. 13 félagsvist, kl. 13 postulínsmálun. Gullsmári Myndlist kl. 9, postulínsmálun / kvennabrids / silfursmíði kl. 13. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Botsía kl. 10–11. Útskurður með leiðbeinanda kl. 9-12, 500 kr. skiptið, allir velkomnir. Opin handavinna kl. 9 –14. Hádegismatur kl. 11.30. Hraunsel Kl. 8-12. Ganga í Kaplakrika alla virka daga kl. 10. Bók- menntaklúbbur annan hvern miðvikudag kl. 11. Línudans kl. 13. Bingó kl. 13. Handmennt kl. 16. Gaflarakórinn Hjallabraut 33 kl. 9. Fjölstofan. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30. Jóga með Carynu kl. 9. Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Zumba og leikfimi með Carynu kl. 10 og hádegismatur kl. 11.30. Handavinna kl. 13, liðleiki á stólum og slökun með Önnu kl. 13.30 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Korpúlfar Ganga kl. 10 frá Borgum. Sólríkur félagsfundur Korpúlfa kl. 13 í dag í Borgum, Álfhildur Hallgrímsdóttir flytur fræðslu um list- ina að eldast, Bræðrabandið Steini og Guðni verða með tónlistar- flutning, Korpusystkin syngja sumarlög. Ingibjörg og Ísidór kynna ferð til Ítalíu á íþróttaheimsmót aldraðra sl. sumar, kveðjum veturinn með gleði. Pútt, Korpúlfsstöðum á morgun sumardaginn fyrsta kl. 10. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, morgunleik- fimi kl. 9.45, viðtalstími hjúkrunarfræðings kl. 10-12, upplestur kl. 11, félagsvist kl. 14, Bónusbíllinn kl. 14.40, heimildarmyndasýning kl.16. Seltjarnarnes Gler og bræðsla á neðri hæð félagsheimilisins kl. 9 og 13. Leir Skólabraut kl. 9. Botsía Skólabraut kl. 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. Timburmenn Valhúsaskóla kl. 13. Handavinna Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi sundlauginni kl. 18.30. Ath. Gaman saman sem vera átti í Selinu í kvöld fellur niður. Engin dagskrá á morgun sumardaginn fyrsta. Gleðilegt sumar. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur hitt- ist kl. 13. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30–15.30. Velkomin. Síminn í Selinu er 568-2586. Stangarhylur 4 Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði Stangarhyl 4, kl. 10, kaffi og rúnnstykki eftir göngu. Söngfélag FEB kóræfing kl. 16.30, stjórnandi Gylfi Gunnarsson. Félagslíf Lofgjörðarsamkoma kl. 20 í Kristniboðssalnum. Hugvekja: Kristján Þór Sverrisson. Allir velkomnir. Minnum á kaffisöluna 1. maí. Smáauglýsingar Bækur Bækur til sölu Eylenda 1-2, Strandamenn, Jarðarbók Árna og Páls 1-11, frumútg., Gestur Vestfirðingur 1-5, Árbækur Espolins 1-12 frumútg. Upplýsingar í síma 898 9475. Sumarhús Húsviðhald Bókhald Bókari með reynslu úr banka- geiranum og vinnu á bókhalds- stofu, getur tekið að sér bók- halds-, launa- og VSK vinnslur fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Uppl. í síma 852-3536. Bókhald Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Hreinsa þakrennur og tek að mér ýmis smærri verkefni Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com mbl.is alltaf - allstaðar 200 mílur gaman af að fara á tónleika og hef- ur margoft boðið okkur með þeim mömmu, núna síðast var það Elly sem við sáum saman. Þær eru líka ófáar máltíðirnar sem hann eldaði og bauð okkur upp á í Gautlandinu á laugardagskvöldum. Hann bauðst líka alltaf til að baka vöffl- ur ef tilefni var til og þá mætti hann annaðhvort með vöfflustafl- ann eða hræruna til að baka úr. Rúrik vann hjá Hjartaheill þar til hann þurfti að hætta 70 ára en hann var ekki mikið fyrir að sitja kyrr í lengri tíma og vann lengi eftir það, að mestu leyti í sjálf- boðavinnu, við að tæma peninga- kúlur vítt og breitt um höfuð- borgarsvæðið, í Keflavík, á Akranesi og Þingvöllum. Við montuðum okkur af Rúrik í útlandinu og sögðum frá því að hann væri enn að vinna á kassa í Nóatúni langt fram á áttræðis- aldur. Hann var í forsvari fyrir göngu- klúbb hjartasjúklinga og Ásdís man eftir því einu sinni þegar hún var á landinu og var boðið með í göngu að hún hélt að hún væri að fara í eitthvert rölt en annað kom í ljós, það var gengið sér til heilsu- bótar. Hann hætti í hópnum fyrir nokkrum árum og átti æ erfiðara með að ganga. Þá var gott að hann gat farið allra sinna ferða á bílnum. Hann var vanafastur og las allt- af blöðin og hlustaði bæði á fréttir í útvarpi og sjónvarpi. Það var erf- itt þegar sjónin fór að gefa sig og hann gat ekki lesið lengur en lík- lega var erfiðast að geta ekki keyrt bíl. Heilsan versnaði og síðustu vik- urnar lá hann í einangrun á bráða- öldrunarlækningadeild Landspít- alans í Fossvogi. Það kom engu okkar á óvart sem þekktum hann að einhver hafði sagt honum að hann væri kurteisasti sjúklingur- inn á deildinni. Starfsfólk deildarinnar og sjúkrahúspresturinn Ingólfur gerðu allt til að dánarstundin væri sem léttbærust og fyrir það erum við þeim mjög þakklát. Það er erfitt að kveðja mann sem hefur verið móður okkar og tengdamóður svo góður og alltaf hefur sýnt okkur einlægan hlý- hug. Við gerum það með þakklæti í huga. Ásdís Herborg Ólafsdóttir Kim Leunbach. Rúrik Kristjánsson er látinn, hann var einn af stofnendum Landssamtaka hjartasjúklinga sem nú heita Hjartaheill. Rúrik fæddist á bænum Eiði í Grundarfirði 26. ágúst 1934. Hann sótti nám í Héraðsskólann að Laugarvatni árin 1950-52 og út- skrifaðist þaðan 1952. Eftir það starfaði hann sem verslunar- maður hjá Anderssen & Lauth til ársins 1967 og síðan hjá Slátur- félagi Suðurlands þar sem hann starfaði sem verslunarstjóri Framtíðarinnar, verslunar sem SS rak á sínum tíma, á Laugavegi 45 og í söludeild SS fram til 1996. Frá 1996 starfaði hann á skrif- stofu Landssamtaka hjartasjúkl- inga, nú Hjartaheill, þangað til hann hætti störfum sjötugur að aldri 2004. Eftir að hann hætti störfum vann hann í sjálfboða- vinnu fyrir Hjartaheill við skipu- lag og umsýslu söfnunarkúlna á vegum samtakanna þar til síðla hausts 2015. Frá upphafi samtakanna hafði hann verið mjög virkur í fjáröflun fyrir samtökin og skipulagt marg- ar safnanir þar sem markmiðin voru að safna fyrir lækningatækj- um til að hægt væri að fram- kvæma hjartaskurðaðgerðir á Ís- landi, byggja upp endur- hæfingarstöð fyrir hjarta- og lungnasjúklinga og styrkja tækja- kaup hverskonar í þágu hjarta- sjúklinga. Í því sambandi var hann ósérhlífinn og fékk oft góðar hugmyndir, s.s. söfnunarkúlurnar sem hafa verið lyftistöng fyrir samtökin. Rúrik sinnti þessu áhugamáli sínu af lífi og sál. Má nefna að þeg- ar hann þurfti að leggjast inn á spítala á hjartadeild þá snérust samtöl við lækna ekki eingöngu um hvað þeir gátu gert fyrir hann heldur einnig hvernig hann gat aðstoðað þá við að uppfæra tækja- búnað deildarinnar. Á þessum rúmlega 35 árum frá stofnun samtakanna hefur Rúrik unnið ómetnanlegt starf í þágu hjartasjúklinga á Íslandi og fyrir það ber að þakka. Hjartaheill hafa sýnt Rúrik þá virðingu að veita honum gullmerki samtakanna og ennfremur sérstaka viðurkenn- ingu fyrir það mikla starf sem hann innti af hendi fyrir fjársafn- anir í kringum söfnunarkúlurnar. Rúrik talaði vel um reynslu sína í hjartaendurhæfingu á Reykja- lundi sem endaði í mars 1983. Þar var grunnurinn lagður að stofnum samtaka hjartasjúklinga til að vinna að endurbótum á hjarta- lækningum á Íslandi. Þar kynntist Rúrik frumkvöðl- unum og hreifst með ákafanum og eldmóðnum. Rúrik talaði um það hvað Reykjalundur væri einstak- ur staður og dvölin þar ótrúlega árangursrík. Frá Reykjalundi sagðist hann hafa ekkert átt nema góðar minningar. Eitt af þeim verkefnum sem Landssamtök hjartasjúklinga komu á fót var framhaldsmeðferð eftir endurhæfingu á Reykjalundi. Rúrik kom að því starfi. Þar geta hjarta- og lungnasjúklingar stundað æfingar undir handleiðslu sjúkraþjálfara og lækna og því fékk stöðin nafnið HL stöðin. Við söknum félaga okkar. Minning um hann lifir áfram. Stjórn og starfsfólk Hjartaheilla sendir fjölskyldu hans samúðar- kveðju og hluttekningu. Sveinn Guðmundsson. Rúrik Kristjánsson Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningar- greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.