Morgunblaðið - 24.04.2019, Side 28

Morgunblaðið - 24.04.2019, Side 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2019 Hljómsveitin Mambolitos leikur á tónleikum hjá Jazzklúbbnum Múl- anum sem fram fara á Björtuloftum í Hörpu í kvöld kl. 21. Mambolitos skipa Alexandra Kjeld, söngkona og bassaleikari, Daníel Helgason á gít- ar, Kristófer Rodriguez Svönuson á slagverk og Sigrún Kristbjörg Jóns- dóttir, söngkona og básúnu- og fiðlu- leikari. „Hljómsveitin hefur starfað við góðan orðstír í rúm tvö ár og kemur fram í annað sinn á Múlanum. Að þessu sinni verður blandað pró- gramm. Kvartettinn leikur tón- smíðar Daníels í kúbanska guajiru- stílnum ásamt glænýju prógrammi úr kólumbískri hefð sem nefnist cumbia. Cumbiu-stílinn á rætur að rekja til kólumbískra danshefða en er mjög útbreiddur og má heyra út um alla Suður- og Mið-Ameríku,“ segir í tilkynningu. Þar kemur fram að gestaleikarar eru Matthías Hem- stock á trommur og Sólveig Morá- vek á klarínett og flautu. Miðar eru seldir í miðasölu Hörpu, harpa.is og tix.is. Hæfileikar Hljómsveitin Mambolitos. Mambolitos á Múlanum í kvöld Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Ég ætlaði að verða arkitekt strax að loknum menntaskóla og hóf nám í Tækniháskólanum í Vestur- Berlín haustið 1967. Ég tel mig heppinn að hafa verið í námi þegar hippabylt- ingin var komin á fullt. Þegar ég mætti í arkitektadeild skólans voru þar plaköt á veggjum sem á stóð ,arkitektar hættið að hugsa og farið að teikna,“ segir Trausti Valsson, prófessor emeritus við Háskóla Íslands. Að loknu námi í Berlín hélt Trausti til náms við Berkeley- háskólann í Bandaríkjunum. „Ég hef verið mjög virkur í stjórn- mála- og borgarumræðunni og starf- aði lengi sem prófessor við Háskóla Íslands. Ég tók eftir því að nem- endur komu sér undan því að kaupa kennslubækur og heilu bekkirnir skönnuðu námsbækurnar. Það er lít- ill grundvöllur til þess að gefa út nýtt efni eða endurprenta,“ segir Trausti, sem ákvað að mæta nýjum tíma. Í stað þess að endurprenta uppseldar kennslubækur sem hann hafði samið kom hann þeim ókeypis á netið til af- nota fyrir stúdenta og aðra sem áhuga hafa á skipulags- og framtíð- armálum. 40 síðna ítarefni með bókinni „Á heimasíðunni minni https:// notendur.hi.is/tv/ hef ég sett inn all- ar 14 bækurnar sem ég hef skrifað, auk þess að birta efni úr völdum greinum, umfjöllunum og ítarefni,“ segir Trausti, sem komst að því þeg- ar hann var að sanka að sér efni á heimasíðuna að erfitt var að finna umfjallanir héraðsfréttablaða og smærri miðla. Trausti setti að meðaltali 40 síður af ítarefni við hverja bók á heimasíðunni. Það gerði hann vegna þess að það getur verið tímafrekt að fara í gegnum bækur hans. Sem dæmi er Skipulag byggð- ar á Íslandi en bókin er 120 kaflar. „Ég tók saman það sem ég taldi skipta mestu máli í bókunum auk þess sem ég listaði upp tilvitnanir og skilgreiningar úr hverri bók með blaðsíðutali,“ segir Trausti og bendir á að hann hafi samið við útgefendur bókanna. Þeir hafi gefið eftir sinn rétt og hann hafi fengið uppáskrifað og stimplað að hann mætti setja bækurnar frítt á netið. Teborðsbækurnar lifa „Ég var í fullu starfi í háskólanum í 28 ár og hef notið styrkja við útgáfu bókanna minna. Mér fannst því rétt að gefa fólki ókeypis aðgengi að verkum mínum,“ segir Trausti, sem telur eftirsjá að prentuðum kennslu- bókum og telur að þær komi margar ekki aftur. „Að mínu mati halda vissar teg- undir af bókum áfram að koma út á prenti. Svokallaðar teborðsbækur sem eru fallegar í útliti með fallegum myndum. Aðalstarf mitt hefur verið skipu- lagsfræði. Í henni erum við alltaf að tala um framtíðina og móta hana. Skipulagsmál eru vanmetin og lítill raunverulegur áhugi fyrir þeim. Fólk hvorki skoðar skipulagsmál né mótar sér skoðun fyrr en jarð- ýturnar mæta á staðinn. Þá fyrst byrja mótmælin og oftar en ekki er það einfaldlega of seint af stað farið. Því nýta sér margir tækifærið, láta lítið fara fyrir fyrirhuguðum breytingum og treysta á andvara- leysi almennings,“ segir Trausti, sem auk þess að vera fyrsti prófess- or Háskóla Íslands í skipulagfræði var sá fyrsti sem skipaður var yfir deild umhverfis- og byggingaverk- fræði. „Ég hafði ákveðnu frumkvöðuls- hlutverki að gegna. Það var lítið til af bókum um skipulagsmál og mér fannst ég verða að bæta úr því. Eftir mig liggja 14 bækur, þar af fjórar á ensku,“ segir Trausti. „Ég er ekki alveg hættur í HÍ, ég hleyp ennþá í kennslu þegar þörf er á. Ég er líka í því skemmtilega verk- efni að fara með nemendum í árlega vorferð þar sem úthverfi höfuð- borgarsvæðisins eru skoðuð,“ segir Trausti, sem finnst það dálítið skrýt- ið að vera ekki í fullu starfi lengur, en hann hefur frá því að hann fór á eftirlaun fyrir þremur árum nýtt tímann í að koma bókunum á netið. Hann segist hafa nóg við að vera. Trausti segir Íslendinga vinna öðruvísi þegar kemur að skipulags- málum en margar erlendar þjóðir. „Erlendis eru hlutirnir fyrst skipulagðir og svo er farið skipulega af stað í verkefni. Hér á landi voru grunnatvinnuvegir okkar landbún- aður og sjávarútvegur þannig að það var erfitt að skipuleggja verklag,“ segir Trausti og bendir á að skip- stjórinn hafi fylgst með veðrinu og ræst út áhöfnina þegar veður gaf. Það sama hafi átt við um bóndann, sem fylgdist með veðrinu og þurfti að taka snöggar ákvarðanir þegar bjarga þurfti heyi í hús eða slá á milli skúra. Bækur Trausta skyldulesning Meðal þekkustu bóka Trausta eru starfsævisaga hans, Mótun fram- tíðar. Skipulagssaga Reykjavíkur- borgar, Skipulag byggðar á Íslandi, Reykjavík-Vaxtarbroddur og Borg og náttúra. Bækur Trausta hafa fengið góða dóma og segir Sir Peter Hall, sem skrifar formála að bók Trausta Planning in Iceland, að Trausti hafi unnið einstakt afrek í fræðimennsku. Bókin setji viðmið í sagnfræðilegri fræðimennsku og búi til módel sem fræðimenn í öðrum löndum geti fylgt. Joe McBride, pró- fessor við Kaliforníuháskóla í Berke- ley, segir að Mótun framtíðar ætti að vera skyldulesning í fyrstu nám- skeiðum í arkitektúr, landslags- arkitektúr og í skipulagi, þar sem bókin veiti innsýn í skipulagsmál á 20. öld. Bókin geti orðið stúdentum hvatning til þess að verða hugrakkir og skapandi hugsuðir. Í formála að bókinni Borg og náttúra segir Mich- ael Laurie, prófessor í Berkeley, að hann fagni bókinni, sem rituð sé af mikilli skarpskyggni. Hún sýni fram á hugarfarsbreytingu í átt til heild- rænnar heimssýnar. Kominn tími til að gefa til baka  Trausti Valsson prófessor veitir ókeypis aðgang að 14 bókum eftir sig á netinu  „Hættið að hugsa og farið að teikna“  Fyrsti prófessor Háskóla Íslands í skipulagsfræði  Hleypur enn í kennslu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Öflugur Trausti Valsson, frumkvöðull í skipulagsfræðum, var sá fyrsti sem skipaður var yfir deild umhverfis- og byggingaverkfræði við HÍ. Trausti fór á eftirlaun fyrir þremur árum en hefur haft nóg að gera frá starfslokum. PFAFF • Grensásvegi 13 • 108 Reykjavík • Sími: 414 0400 • www.pfaff.is Brother Overlockvél Verð áður 54.900 kr. Tilboð: 44.900 kr. Husqvarna 118 Saumavél Verð áður 64.900 kr. Tilboð: 54.900 kr. Shazam! 1 3 Wonder Park 2 2 The Curse of La Llorona Ný Ný Five Feet Apart Ný Ný Missing Link Ný Ný Dumbo (2019) 4 4 Captain Marvel 5 7 Pet Sematary (2019) 3 3 Serial (Bad) Weddings 2 6 2 Us 7 5 Bíólistinn 19.–21. apríl 2019 Nr. Var síðast Vikur á listaKvikmynd 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Bíóaðsókn helgarinnar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.