Morgunblaðið - 24.04.2019, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2019
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70
hitataekni.is
– sjö viftur í einni
Ein sú hljóðlátasta á markaðinum (17-25 dB)
Valin besta nýja
vara ársins,
Nordbygg 2016
Sjálfvirk, raka-og hitastýring, fer sjálfkrafa í gang þegar
ljós eru kveikt eða við hreyfingu í rými.
Klimat K7 er fjölnota vifta, þróuð og
framleidd í Svíþjóð.
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Einstök gæði frá
40 ár
á Íslandi
Öflugar og
notendavænar
sláttuvélar
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Kammerkórinn Hljómeyki flytur
kórverkið Path of Miracles eftir
breska tónskáldið Joby Talbot í
Kristskirkju á Landakoti kl. 21 á
morgun, sumardaginn fyrsta.
„Verkið hefur ekki verið flutt áður
á tónleikum á
Íslandi og mega
gestir búast við
mikilli upplifun,
jafnvel getur far-
ið svo að gestir
fari í íhugunar-
ástand,“ segir
Valgerður G.
Halldórsdóttir,
fyrsti alt í kamm-
erkórnum og
framkvæmda-
stjóri Tónverkamiðstöðvarinnar.
„Þetta er klukkutíma langt kór-
verk, að mestu án undirleiks, aðeins
smá slagverk. Þetta er sautján
radda verk sem er mjög óvenjulegt
og það er spilað á kórinn. Kórverkið
er mjög fjölbreytt,“ segir Val-
gerður. Verkið Path of Miracles var
samið árið 2005 að beiðni Tene-
brae-kammerkórsins og fjallar um
ferðalag um eina þekktustu leið
pílagríma í Evrópu, Jakobsveginn.
Þann klukkutíma sem verkið tek-
ur í flutningi feta áheyrendur
Jakobsveginn gegnum fjórar þekkt-
ustu vörður hans; borgirnar Ronce-
valles, Burgos, León og Santiago de
Compostela. „Talbot, sem samdi
verkið, ferðaðist um pílagrímsleið-
ina ásamt fjölskyldu sinni þegar
hann var að búa sig undir tónsmíð-
ina. Þá er megininntak verksins
trúboð Jakobs á Íberíuskaga og
hvernig þessi pílagrímsleið er til
komin, ekki síður en hvers vegna
fólk gengur þessa leið,“ útskýrir
Valgerður.
Draumur sem rætist
Valgerður segir fjölbreytni
verksins meðal annars felast í þeim
mikla fjölda radda sem eru í verk-
inu. „Verkinu er skipt í sautján
raddir sem stundum syngja saman,
oft eitthvað skiptar og stundum er
bara ein rödd.“ Flutningurinn er að
mestu án undirleiks en með fín-
gerðu slagverki á stuttum köflum
sem Frank Aarnink sér um.
Spurð hvers vegna þetta tiltekna
verk hafi verið valið svarar Val-
gerður að það hafi í raun verið
draumur formanns kórsins í fjögur
ár að þetta verk yrði flutt. „Hildi-
gunnur Rúnarsdóttir, formaður
Hljómeykis og tónskáld, er í ein-
hverjum hópi kórnörda á Facebook
og þar var fólk að velta því fyrir sér
hvaða verk mætti taka með sér á
eyðieyju ef það mætti bara taka eitt
verk. Margir völdu kannski eitthvað
sem telst augljóst val, en einn stakk
upp á þessu verki og hún kannaðist
ekki við það. Hún varð mjög for-
vitin og fór að skoða þetta betur,
núna er hún búin að halda þessu að
fólki í fjögur ár.“
Spannar tvær og hálfa áttund
Path of Miracles er mjög krefj-
andi fyrir söngvarana að sögn Val-
gerðar, sem bendir meðal annars á
að söngnótur fyrir altinn spanni
tvær og hálfa áttund. „Þetta er
mjög krefjandi og sópraninn liggur
mjög hátt. En þetta er mjög vel
samið, það ofgerir engri rödd. Þetta
er bara ofboðslega gaman fyrir
söngvara að fást við þetta.
Ég held að þetta sé mikil upp-
lifun og stjórnandinn okkar, Þor-
valdur Örn Davíðsson, hefur talað
um að þetta sé nokkuð sem fólk
megi ekki missa af og vilji ekki hafa
misst af,“ segir hún. Verkið verður
ekki eingöngu flutt í Kristskirju
annað kvöld heldur einnig í Skál-
holtskirkju á laugardaginn kemur
kl. 16.
Morgunblaðið/Eggert
Pílagrímsferð Kammerkórinn Hljómeyki býður gestum í ferðalag um hina fornu trúboðsleið Jakobs um
Íberíuskaga. Verkið Path of Miracles verður flutt annað kvöld í Kristskirkju og á laugardag í Skálholtskirkju.
Með kammerkór um Jakobsveginn
Flytja sautján radda kórverk Jobys Talbots, Path of Miracles, um pílagrímsferð í tveimur dóm-
kirkjum Fjögurra ára draumur að rætast Verkið er mjög krefjandi en gaman að fást við
Valgerður G.
Halldórsdóttir
Félagar Karlakórs Reykjavíkur
munu fagna vorinu með vortón-
leikum sem fara fram í kvöld og ann-
að kvöld kl. 20 báða daga og laug-
ardaginn 27. apríl kl. 15. Þar mun
Karlakór Reykjavíkur syngja vorlög
ásamt sópran-
söngkonunni
Hrafnhildi Árna-
dóttur Hafstað.
Hrafnhildur segir
það heiður að fá
að syngja með
kórnum.
„Það er engu
líkt að syngja
með karlaraddir
fyrir aftan sig.
Þetta eru um 60
manns, alveg svakalega þéttur kór
með djúpar raddir og sterkar; það
er bara eins og maður svífi,“ segir
Hrafnhildur.
Hrafnhildur mun syngja lögin
Vorið, eftir norska tónskáldið
Edvard Grieg, Vilja Lied, úr óper-
ettunni Kátu ekkjunni eftir F. Leh-
ár og Chacun le Sait úr óperunni
Dóttir herdeildarinnar eftir Doni-
zetti.
Eru einhver þessara laga í uppá-
haldi?
Ég held bara ekki, þau eru svo
ólík. Uppbyggingin er svo skemmti-
leg og það er gaman að syngja þau
öll, en síðasta lagið er sérstaklega
skemmtilegt. Það er aðeins meiri
flugeldasýning en hin lögin – það er
mikil stemning í því og gaman að
enda á því,“ segir Hrafnhildur og
bætir við að verkið sé sérstaklega
skrifað fyrir karlakór.
Hrafnhildur var meðal sigurveg-
ara í keppninni Ungir einleikarar
haustið 2011 og söng í kjölfarið ein-
söng með Sinfóníuhljómsveit
Íslands í fyrsta sinn en hún lauk
prófi úr Hollensku óperuakademí-
unni árið 2015 og söng samhliða
náminu. Aðspurð segir hún að stór
munur sé á því að syngja á tón-
leikum á Íslandi og í Hollandi:
„Senan hér á Íslandi er miklu
minni og það er skemmtilegra að
vera heima, því ég tilheyri þessu
samfélagi. Maður tengir betur við
sitt fólk, það er bara þannig. En það
er ótrúlega gott að koma heim úr
námi og leggja sitt af mörkum í tón-
listarsenunni heima. Það er mjög
dýrmætt að fá að syngja með sínum
löndum og sínu samfélagi.“
Hrafnhildur ólst upp við klassíska
tónlist og söng og ber að nefna að
móðir hennar er nýhætt í Sinfóníu-
hljómsveit Íslands (SÍ) og systir
hennar er aðalklarínettleikari SÍ.
Hrafnhildi var boðið að syngja á vor-
tónleikum Karlakórs Reykjavíkur
eftir að hafa sett mark sitt á Vínar-
tónleika SÍ í janúar síðastliðnum.
„Þetta eru vel sóttir tónleikar með
kór sem er löngu búinn að stimpla
sig inn sem einn besti karlakór
landsins. Þeir hafa verið með mjög
flotta einsöngvara á tónleikum, svo
það er ekki ónýtt að bætast í þann
hóp,“ segir Hrafnhildur að lokum.
Fagna komu vorsins
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Vortónleikar Stjórnandinn Friðrik S. Kristinsson ásamt Karlakór Reykjavíkur á æfingu í Langholtskirkju.
Karlakór Reykjavíkur heldur upp á vorið með árlegum
vortónleikum í Langholtskirkju dagana 24.-27. apríl
Hrafnhildur Árna-
dóttir Hafstað