Morgunblaðið - 25.04.2019, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 2 5. A P R Í L 2 0 1 9
Stofnað 1913 96. tölublað 107. árgangur
ÆVINTÝRA-
VERÖLD AÐ
REYKJUM
VAR HÆTTUR
EN VARÐ
SENUÞJÓFUR
VERÐLAUN GUÐ-
RÚNAR VEITT Í
FYRSTA SINN
BJÖRN VIÐAR Í ÍBV 52 BERGRÚN ÍRIS 57SUMARBÚÐIR 12
Stillanleg
HEILSURÚM
Ertu örugglega í besta
rúminu fyrir þínar þarfir?
Verð frá 264.056
Með einni snertingu geturðu komið rúminu
í þá stellingu sem hentar þér best hverju sinni.
Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
Rýrnun viðskiptakjara að undan-
förnu bætist við samdrátt í ferða-
þjónustu og loðnubrest. Samanlögð
áhrif eru líkleg til að koma niður á
kaupmætti íslensks almennings í
vörum og þjónustu, þrátt fyrir boð-
aðar nafnlaunahækkanir.
Þetta er niðurstaða greiningar
Yngva Harðarsonar, hagfræðings
og framkvæmdastjóra Analytica,
fyrir Morgunblaðið.
Samkvæmt lífskjarasamning-
unum eiga launþegar að fá hag-
vaxtarauka á samningstímanum.
Stefán Broddi Guðjónsson, for-
stöðumaður greiningardeildar
Arion banka, segir útlit fyrir sam-
drátt í hagvexti í ár. »14
Morgunblaðið/Eggert
Rýrnun Fækkun ferðamanna þýðir minni
verðmætasköpun í hagkerfinu.
Mun skerða kaup-
mátt almennings
Landsbankinn
ber hluta af því
tjóni sem Arion
banki kann að
verða fyrir
vegna skaða-
bótamáls Data-
cell ehf. og Sun-
shine Press
Productions ehf.
gegn Valitor,
dótturfélagi Ar-
ion. Héraðsdómur hefur dæmt Vali-
tor til að greiða 1,2 milljarða kr.
Í kaupsamningi frá árinu 2014
þegar Arion keypti 38% hlut Lands-
bankans í Valitor var kveðið á um
að Landsbankinn muni halda Arion
banka skaðlausum, að þessum
hluta, vegna þessara og nokkurra
fleiri mála sem komu til fyrir við-
skiptin. „Með þessum ákvæðum var
Landsbankinn að ábyrgjast að eign-
in væri haldin tilteknum kostum
sem umsamið kaupverð tók mið af.
Þetta er ekki óvanalegt í við-
skiptum með eignarhluti í fyr-
irtækjum þegar óvissa ríkir um nið-
urstöðu í tilteknum málum,“ segir
Rúnar Pálmason, upplýsinga-
fulltrúi Landsbankans. »14
Landsbankinn ber
hluta tjónsins
Höfuðstöðvar Vali-
tors í Hafnarfirði.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fasteignaþróunarfélagið Rauðsvík
hefur sett 70 nýjar íbúðir á sölu við
Hverfisgötu í Reykjavík. Síðar á
árinu hyggst félagið hefja sölu nýrra
íbúða í öðrum húsum við götuna.
Íbúðirnar sem eru að koma í sölu
eru á Hverfisgötu 85-93.
Sturla Geirsson, framkvæmda-
stjóri Rauðsvíkur, segir meðalverðið
um 708 þúsund krónur á fermetra.
Verðið sé fyrir breiðan hóp kaup-
enda sem vilji búa miðsvæðis.
Samanlagt söluverðmæti íbúð-
anna er á fjórða milljarð króna.
Með þessari viðbót á markaðinn
eru nú hundruð nýrra íbúða í mið-
borginni til sölu. Þar af eru 12 íbúðir
seldar af 38 á Hverfisgötu 94-96 og
35 íbúðir af 63 á Frakkastígsreit,
sem einnig snýr að Hverfisgötu.
Hefja söluna í maí
Þá hyggst Þingvangur hefja sölu á
72 íbúðum á syðri hluta Brynjureits
við Hverfisgötu í maí.
Samanlagt eru um 240 íbúðir á
þessum fjórum reitum og hefur um
fimmta hver þeirra verið seld. Að
auki eru enn óseldar 37 íbúðir af 94 í
Bríetartúni 9-11, austan Hverfis-
götu, og við Lækjartorg var hægt á
sölu nýrra íbúða á Hafnartorgi. Þar
verða alls um 70 lúxusíbúðir.
Sé þessum tveimur reitum bætt
við eru því vel yfir 300 nýjar íbúðir til
sölu í miðborginni. Það eru t.d. fleiri
íbúðir en í öllu Skuggahverfinu sem
byggt var á hálfum öðrum áratug.
Til viðbótar þessum reitum koma
um 70 íbúðir við Hörpuhótelið.
Framboð án fordæma
70 íbúðir fara í sölu við Hverfisgötu Yfir 300 nýjar íbúðir í sölu í miðborginni
Tölvuteikning/Onno
Hverfisgata 85-93 Íbúðir í húsinu
eru komnar í almenna sölu. MHefja sölu … »20
Ferðamenn sækja mikið í náttúrulaugar. Ekki var þó veður fyrir börnin til að fara í laugina við eyðibýlið Landbrot á sunnanverðu Snæfellsnesi en þess í
stað náðu þau úr sér hrollinum með hlaupum. Spáð er sumarveðri í dag, á sumardaginn fyrsta, og óhætt að stefna að böðun í náttúrulaugum.
Morgunblaðið/Eggert
Gleðilegt sumar