Morgunblaðið - 25.04.2019, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2019
Hjörtur J. Guðmundsson
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
Þórunn Kristjánsdóttir
Forystumenn stórra verkalýðs-
félaga og samtaka eru ánægðir með
niðurstöðu atkvæðagreiðslna um
kjarasamninga félaganna við Sam-
tök atvinnulífsins. Öll félögin sam-
þykktu samningana og í flestum til-
vikum var niðurstaðan afgrerandi.
„Ég er náttúrlega mjög sáttur við
þessa niðurstöðu,“ segir Ragnar Þór
Ingólfsson, formaður VR og Lands-
sambands íslenskra verslunar-
manna. Samningar félagsins við
Samtök atvinnulífsins og Félag at-
vinnurekenda voru samþykktir með
tæplega 90% atkvæða.
Þeir sem kusu voru sáttir
Ragnar bendir á að VR sé með
breiðustu samsetninguna af fé-
lagsmönnum sé litið til stéttarfélaga
almennt, það sé með nánast alla
launa- og menntaflóruna, og því sé
tæplega 90% samþykki mjög ásætt-
anlegt. Þá hafi þátttakan, 20,85%,
verið ágæt hvort heldur miðað er
við kjörsóknina í öðum stétt-
arfélögum eða sögu félagsins.
„Það er ánægjulegt að öll félögin
samþykktu samninginn. Flest með
miklum meirihluta,“ segir Björn
Snæbjörnsson, formaður Starfs-
greinasamands Íslands og Ein-
ingar-Iðju í Eyjafirði. Hann bendir
á að í 17 af 19 félögum hafi yfir 70%
samþykkt samningana.
„Þeir sem kusu voru allavega
sáttir,“ segir Björn. „Auðvitað hefði
maður viljað sjá betri þátttöku.
Samningurinn var vel kynntur fyrir
fólki,“ segir hann og bætir því við að
það hafi tekið fólk innan við mínútu
að greiða atkvæði. Telur Björn ólík-
legt að atkvæðagreiðslan hafi farið
fram hjá fólki. Bendir á að þegar
fólk er sátt við samninga séu minni
líkur á að það kjósi en þegar það er
ósátt. Kannski þögn sé sama og
samþykki, segir Björn.
Engir samningar nógu góðir
„Ég er mjög þakklát þeim félags-
mönnum sem greiddu atkvæði og
auðvitað mjög ánægð með það að
samningarnir hafi verið samþykktir
með svona afgerandi hætti,“ segir
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður
Eflingar stéttarfélags. Lífskjara-
samningarnir svokölluðu voru sam-
þykktir með 77% atkvæða félags-
manna Eflingar.
Sólveig Anna segist sjálf ekki
hafa verið viss um að raunin yrði sú
að samningarnir yrðu samþykktir
með svo afgerandi hætti. „Ég veit
að það eru aldrei neinir samningar
nógu góðir, en ég held að aðkoma
stjórnvalda hafi verið með þeim
hætti að það gerði fólki auðveldara
að samþykkja það að launahækk-
anir fyrsta árið yrðu ekki miklar,“
segir Sólveig og bætir því við að for-
senduákvæði samninganna gefi fólki
ákveðið öryggi.
Öll vinnan eftir
Spurður um framhaldið segir
Ragnar Þór Ingólfsson að í raun sé
vinnan við kjarasamningana rétt að
hefjast. „Ef einhver heldur að nú
geti verkalýðshreyfingin hallað sér
aftur á bak í stólnum og beðið í þrjú
og hálft ár eftir næstu kjara-
viðræðum þá er það mikill misskiln-
ingur. Öll vinnan er í sjálfu sér eftir.
Það eina sem kemur sjálfkrafa er
launaliðurinn en við verðum að
fylgja öllu öðru eftir. Sú vinna er
þegar komin af stað og við erum bú-
in að boða mjög þétta fundaröð
núna á næstu vikum og mánuðum til
þess að fylgja því eftir,“ segir Ragn-
ar.
Morgunblaðið/Hari
Lífskjarasamningur Samningur SA við stéttarfélög á almennum vinnumarkaði var undirritaður í byrjun apríl.
Verkalýðsforingjar eru
ánægðir með niðurstöðu
Hefði viljað fá meiri þátttöku segir Björn Snæbjörnsson
Kristján H. Johannessen
Helgi Bjarnason
Öll aðildarfélög Starfsgreinasam-
bandsins (SGS) samþykktu nýjan
kjarasamning við Samtök atvinnu-
lífsins í gær, flest með stórum meiri-
hluta. Félagsmenn í VR samþykktu
sömuleiðis samninga við SA og Fé-
lag atvinnurekenda.
SGS fór með umboð 15 aðildar-
félaga í viðræðunum og hélt utan um
sameiginlega rafræna atkvæða-
greiðslu um samningana. Í heildina
var kjörsókn rúmlega 25%, já sögðu
79,95% en nei sögðu 18,43%. Auðir
seðlar voru 1,62% en á kjörskrá voru
9.589 manns. Samtök atvinnulífsins
(SA) samþykktu kjarasamninga við
verkafólk og verslunarmenn með yf-
irgnæfandi meirihluta, eða 98%
greiddra atkvæða. Kosningaþátt-
taka var að mati SA góð, eða 74%.
Af þeim sem kusu hjá Eflingu
samþykktu 77% samninginn en 2,3%
sátu hjá.
Félagsmenn VR samþykktu
kjarasamning við SA með 88,35% at-
kvæða og kjarasamningur VR við
Félag atvinnurekenda (FA) var
samþykktur með 88,47% atkvæða.
Alls voru 34.070 manns á kjörskrá
vegna kjarasamnings við SA og
greiddu 7.104 atkvæði. Var kjörsókn
því 20,85%. Samtals sögðu 6.277 já
við samningnum en 700 nei. Kjör-
skrá vegna kjarasamnings VR við
FA taldi 1.699 félagsmenn en 451
greiddi atkvæði. Var kjörsókn því
26,55%. Alls sögðu 399 félagsmenn
já við samningnum en 47 sögðu nei.
Þrátt fyrir að kjarasamningar hafi
verið samþykktir með afgerandi
hætti af flestum aðildarfélögum SGS
var ein undantekning þar á. Þannig
munaði aðeins einu atkvæði á þeim
sem kusu með samþykkt samnings-
ins og þeim sem kusu á móti henni
hjá Öldunni stéttarfélagi í Skaga-
firði. Kjörsókn þar var 11,15% en
520 voru á kjörskrá. Þannig kusu 58
manns og þar af 29 með samþykkt
samningsins eða 50% en 28 á móti,
eða 48,28%. Einn félagsmaður Öld-
unnar skilaði auðu.
Þá voru kjarasamningar einnig
samþykktir með miklum meirihluta
atkvæða hjá öllum aðildarfélögum
Landssambands íslenskra verslun-
armanna (LÍV). Á kjörskrá um
samninga LÍV/VR við VR og SA
voru 37.375 félagsmenn og sam-
þykktu 88,4% samning. Á kjörskrá
um kjarasamning milli LÍV/VR og
FA voru 1.732 og samþykktu
88,74%.
Alltaf kvartað undan þátttöku
Þátttaka í atkvæðagreiðslunni nú
var mun minni en á árinu 2015, síð-
ast þegar almennir kjarasamningar
voru bornir undir atkvæði, eins og
sést á meðfylgjandi grafi.
Sumarliði R. Ísleifsson, lektor við
Háskóla Íslands sem unnið hefur að
rannsóknum á
sögu verkalýðs-
hreyfingarinnar,
segir að alltaf hafi
verið kvartað
undan lítilli þátt-
töku í kosningum
í verkalýðshreyf-
ingunni. Það hafi
helst verið á kald-
astríðsárunum að
stjórnmálaflokk-
unum hafi tekist að hrífa fólk með
sér á fundi og í kosningar.
Sumarliði telur að sagan sýni að
þegar deildar meiningar eru um
samninga séu meiri líkur á að hægt
sé að virkja fólk til þátttöku en þeg-
ar sátt er. Segist Sumarliði hissa á
lítilli þátttöku hjá Eflingu í ljósi
þeirra hræringa sem þar hafa verið.
Segist hann hafa haldið að fé-
lagsmenn hafi verið virkjaðir við for-
ystuskiptin.
Minni þátttaka en árið 2015
Kjarasamningar samþykktir í öllum félögum Starfsgreinasambandsins og hjá verslunarmönnum
Sagnfræðingur segir meiri líkur á þátttöku þegar ágreiningur er um málin en þegar sátt er
Sumarliði
Ísleifsson
Lífskjarasamningarnir samþykktir
Helstu úrslit nokkurra verkalýðsfélaga og kjörsókn 2015 og 2019
Kjörsókn 2015 Kjörsókn 2019
Félag Kjörsókn
Samþykkir
2019
VR við SA
2015 19%
88%
2019 21%
LÍV við SA
2015 26%
88%
2019 21%
SGS – heild
2015 20%
80%
2019 13%
Efling*
2015 17%
77%
2019 10%
Vlf. Grindavíkur
2015 33%
89%
2019 17%
Vlf. Akraness
2015 24%
88%
2019 12%
Vlf. Hlíf*
2015 17%
84%
2019 5%
AFL Starfsgrf.
2015 25%
79%
2019 22%
Vsf. Keflavíkur*
2015 17%
82%
2019 8%
Vlf. Aldan
2015 23%
50%
2019 11%
*Efling, Hlíf og Verkal. og sjómannaf. Kefla
víkur voru hluti af Flóabandalaginu 2015
„Það eru aðallega óvissuþættirnir,“
segir Þórarinn Sverrisson, formaður
Öldunnar stéttarfélags í Skagafirði,
spurður um hvaða atriði félagsmenn
hefðu sett fyrir sig í atkvæðagreiðslu
um kjarasamninga. Samningarnir
voru samþykktir þar með aðeins eins
atkvæðis mun og skáru félagsmenn
Öldunnar sig úr heildinni að því leyti
því samningarnir voru alls staðar
samþykktir með mun meiri mun.
Kjörsókn hjá Öldunni var rúm
11%. 29 samþykktu samningana, 28
voru á móti og einn skilaði auðu.
Óvissuþættirnir sem Þórarinn
nefnir snúa margir að því sem ríkið
þarf að gera, til dæmis skattabreyt-
ingum sem hugsanlega verði komnar
til framkvæmda eftir þrjú ár. Lækk-
un vaxta sem þurfi að fara í ferli hjá
Seðlabankanum. Eins hvað aðrar
stéttir geri og hvað komi út úr hugs-
anlegum hagvaxtarauka. „Það eru
vonbrigði að við skulum ekki hafa
meira í hendi,“ segir Þórarinn.
Hann segir að óvissa með þessa
þætti hafi komið fram á kynningar-
fundum sem hann var með. „Ég átti
engin svör við því, þetta eru hlutir
sem ég ræð ekki við.“
Vonbrigði með þátttökuna
Hann segir að þeir sem greiddu
atkvæði um kjarasamninginn hafi
komið úr ýmsum starfsstéttum, fisk-
vinnslu, flutningastarfsemi, verk-
töku, kjötvinnslu og mjólkurvinnslu.
„Nei, ég ætla ekki að taka þetta
inn á mig. Mestu vonbrigðin eru að
ekki skyldu fleiri taka þátt, hér og
annars staðar. Það hefði verið skrítin
staða fyrir Ölduna að sitja uppi með
ósamþykktan samning og ekki víst
að við hefðum getað velt þungu
hlassi fyrir okkar félagsmenn eftir
á.“
Óvissan stóð í
Skagfirðingum
Vonbrigði að hafa ekki meira í hendi
4 Lífskjarasamningarnir