Morgunblaðið - 25.04.2019, Síða 6

Morgunblaðið - 25.04.2019, Síða 6
Hjón á Suðurnesjum voru í gær sakfelld í Héraðsdómi Reykjaness fyrir gróf kynferðisbrot gegn dætr- um sínum. Maðurinn var dæmdur til fangelsisvistar í 6 ár og konan til 5 ára fangelsisvistar, samkvæmt upplýsingum Kolbrúnar Benedikts- dóttur saksóknara en dómurinn hefur ekki verið birtur á vef dóm- stólsins. Kolbrún segir að niðurstaðan sé í ágætu samræmi við þær refsikröfur sem ákæruvaldið gerði í málinu. Hjónin voru bæði úrskurðuð í áframhaldandi gæsluvarðhald, eftir að dómurinn var kveðinn upp. Nauðgaði stjúpdóttur Við þingfestingu málsins í októ- ber játuðu hjónin brot sín að hluta. Í ákæru er karlmaðurinn sagður hafa nauðgað stjúpdóttur sinni, dóttur konunnar, í félagi við móð- urina í febrúar á síðasta ári og tek- ið bæði hreyfi- og ljósmyndir af brotunum. Jafnframt kom fram að móðirin hafi veitt dóttur sinni áfengi meðan á brotunum stóð. Héraðsdómur dæmdi stúlkunni 2,5 milljónir króna í miskabætur. Hjónin voru einnig ákærð fyrir að hafa framið brotin að dóttur sinni viðstaddri, þannig að hún horfði á foreldra sína brjóta gegn hálfsystur hennar. Með því voru hjónin sögð hafa ógnað velferð stúlkunnar á alvarlegan hátt. Maðurinn var einnig ákærður fyrir að hafa í vörslu sinni á heimili fjölskyldunnar 807 ljósmyndir og 29 myndskeið sem sýndu börnin á kynferðislegan hátt. Áfram í gæslu Hann var einnig ákærður fyrir brot á vopnalögum þar sem á heim- ili hjónanna fannst mikið af eggvopnum, meðal annars 50 senti- metra langt sverð, „butterfly“-hníf- ur, tveir stunguhnífar, kasthnífur og slöngubyssa. Karlmaðurinn hef- ur verið í gæsluvarðhaldi frá því í júlí á síðasta ári. Þá var konan einnig hneppt í tveggja vikna varð- hald en síðan sleppt þar til ákæra var gefin út í málinu í október. Þá var hún aftur hneppt í varð- hald vegna þess að héraðssaksókn- ari taldi að ef brot hennar væru jafn alvarleg og henni væri gefið að sök ylli það bæði hneykslun og særði réttarvitund almennings gengi hún laus. Hjónin voru í gær úrskurðuð í áframhaldandi gæsluvarðhald, eftir að dómurinn var kveðinn upp. Nauðguðu dóttur sinni Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fyrirtaka Annar sakborninga leiddur inn í héraðsdóm við fyrirtöku málsins.  Hjón sakfelld í héraðsdómi fyrir brot gegn dætrum 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2019 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Vegna hlýnandi loftslags hefur Snæfellsjökull rýrnað hratt síðast- liðin 25 ár og verður ef að líkum lætur að mestu horfinn um miðja þessa öld, segir Þorsteinn Þor- steinsson jökla- fræðingur á Veð- urstofu Íslands. „Núna vorum við að gera fyrstu beinu mælingar á vetrarafkomu Snæfellsjökuls. Vísindamenn hafa fylgst með þeirri þróun í grófum dráttum og lega jökulsporða hefur verið mæld árlega frá 1931. Með afkomu- mælingum fæst hins vegar beint mat á árlegri rúmmálsbreytingu.“ Mikil úrkoma Á öðrum degi páska var gerður út leiðangur á Snæfellsjökul þar sem vetrarafkoma hans 2018-19 var mæld. Snjókjarni var boraður í um 1.350 m hæð sunnan Miðþúfu sem er á hábungu jökulsins, sem margir telja að búi yfir fágætri dulúð. Kjarninn var vigtaður og mældur svo og hitastig snævarins en flest gildin voru á bilinu 0 til -1 gráða. Vatnsgildi vetrarafkomunnar á Snæfellsjökli reiknaðist samkvæmt mælingunum nú 2.600 mm, það er 2,6 metrar. Séu þær tölur bornar saman við úrkomumælingar frá veðurstöðvum í nágrenni jökulsins, svo sem á Gufuskálum, er úrkoman allt að þrefalt meiri á jöklinum en á láglendi. Einnig var í leiðangrinum boruð hola í um 1.000 metra hæð í norðurhlíðum Snæfellsjökuls og var vetrarlagið þar rúmlega 4 m þykkt og vatnsgildið 2.250 mm. Þar liggja oft skaflar sumarlangt og var borað í eldra hjarni niður á sjö metra dýpi. Hyrningsjökull hopar Snæfellsjökull hefur gefið mjög mikið eftir síðustu öldina. Sporður hyrningsjökuls sem skríður úr jökl- inum til norðurs hefur hopað um 1.000 metra síðan mælingar hófust 1931. Árið 1910 var flatarmál Snæ- fellsjökuls alls um 22 ferkílómetrar en er nú komið niður í 10 ferkíló- metra. Þá er jökullinn að jafnaði að- eins um 30 metra þykkur og líklegt að hann verði að mestu horfinn um miðja þessa öld, segir Þorsteinn. Ásýndin breytist „Við viljum efna til samstarfs við Þjóðgarðinn Snæfellsjökul og heimamenn um afkomumælingar með borunum og leysingarstikum svo hægt verði að meta árlega rýrn- un í hlýnandi loftslagi. Afkoma meginjökla landsins hefur verið mæld í 20-30 ár en slík gögn hefur vantað um eina jökulinn sem sést af höfuðborgarsvæðinu. Því ætlum við nú að bæta úr,“ segir Þorsteinn. Í mælingaferðina síðastliðinn mánudag fóru vísindamenn frá Veð- urstofunni, fólk frá ferðaþjónust- unni Summit Guides og Þjóðgarð- inum Snæfellsjökli. „Þessar mælingar sem nú voru gerðar eru mjög áhugaverðar,“ seg- ir Jón Björnsson þjóðgarðsvörður í samtali við Morgunblaðið. „Þessar mælingar sýna okkur í hnotskurn atburðarás, sem ræðst af hlýnun lofthjúps jarðarinnar. Ásýnd lands- ins breytist með eftirgjöf jökulsins. Sérstaklega er þetta áhugavert í ljósi þess að Snæfellsjökull blasir við af höfuðborgarsvæðinu og allt í kringum Faxaflóann og raunar víð- ar frá. Stærstur hluti landsmanna getur því þegar skyggni er gott og yfir langan tíma fylgst með ótrú- legri atburðarás sem ekki á sér margar hliðstæður í sögunni, það er að jökull sé bókstaflega að hverfa.“ Hratt undanhald Snæfellsjökuls  Vísindamenn á dulmögnuðum og hverfandi jökli  Vetrarafkoman mæld og rúmmál reiknað  Ótrúleg atburðarás fyrir allra augum, segir þjóðgarðsvörður Ljósmynd/Jón Björnsson Leiðangur Á Snæfellsjökli sl. mánudag. Stapafell blasir við milli tækjanna og svo útsýni yfir Breiðuvík og Faxaflóa. Borað Kjarninn var vigtaður og mældur svo og hitastig snævarins. Jón Björnsson Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík Verð: 218.800 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! sp ör eh f. Fararstjóri: Ólafur Örn Haraldsson Ævintýralegi miðaldabærinn Brugge í Belgíu er einstök perla sem allir ættu að heimsækja að minnsta kosti einu sinni á ævinni og sjá fornar byggingar, steinlögð stræti, vatnavegi og markaðstorg. Hér er mikið flatlendi, hvarvetna góðir hjólastígar og því tilvalið að fara allra sinna ferða hjólandi. Upplifðu náttúrufegurð Belgíu í hjólaferð þar sem áherslan er á að njóta, ekki þjóta. 7. - 14. september Hjólað umBrugge Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook SUMARGJÖF 20% afsláttur af peysum föstudag og laugardag Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.