Morgunblaðið - 25.04.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2019
Óli Björn Kárason alþingismaðurfjallaði í grein hér í blaðinu í
gær um íþyngjandi regluverk og
sagði: „Hvergi í
ríkjum OECD er
reglubyrði þjón-
ustugreina þyngri
en á Íslandi. Þetta
er niðurstaða út-
tektar OECD sem
kynnt var fyrir
skömmu á fundi
ráðgjafarnefndar um opinberar eft-
irlitsreglur. Ekkert bendir til þess
að reglubyrðin sé hlutfallslega ein-
faldari eða léttari á öðrum sviðum
atvinnulífsins.“
Þetta er alvarlegt mál og eykurhættu á því, líkt og Óli Björn
bendir á, „að íslensk fyrirtæki og
launafólk verði undir í harðri og
óvæginni alþjóðlegri samkeppni“.
Þá nefnir hann skýrslu þar semfjallað er um löggjöf áranna
2013-2016 sem sýni að mun fleiri
lög hafi verið sett sem feli í sér
íþyngjandi reglur en þau sem létti
reglubyrðina. Ennfremur að af
þeim 17 lögum sem sett voru og
höfðu eingöngu íþyngjandi áhrif
hafi 14 verið vegna innleiðingar
EES-reglna. Ekki batnar það þegar
í ljós kemur, sem bent er á í skýrsl-
unni, að í mörgum tilvikum hafi
verið gengið lengra við innleiðingu
EES-reglnanna en nauðsyn krafði.
Þetta voru gagnlegar ábend-ingar hjá þingmanninum, en
hvernig stendur á því að Alþingi
hamast svo við að stimpla EES-
reglurnar og gengur jafnvel lengra
en nauðsynlegt er, eins og sést af
ákafanum við að innleiða íþyngj-
andi regluverkið?
Er einhver sérstök ástæða til aðganga lengra en nauðsyn
krefur í að innleiða regluverkið frá
ESB? Er ekki nóg samt?
Óli Björn Kárason
Er nauðsynlegt
að ganga of langt?
STAKSTEINAR
„Við buðum 205 áframhaldandi vinnu
af þessum 315. Eftir því sem ég best
veit þá voru nánast allir sem tóku því,“
segir Sigþór Kristinn Skúlason, for-
stjóri Airport Associates. Ekki er von á
frekari breytingum hjá fyrirtækinu,
sem veitir flugafgreiðsluþjónustu á
Keflavíkurflugvelli og m.a. þjónustaði
WOW air en það sagði upp 315 manns í
kjölfar gjaldþrots WOW air. Fríhöfnin,
sem heyrir undir Isavia, þarf að grípa
til frekari uppsagna en búið var að
boða en sex manns var sagt upp hjá
Fríhöfninni fyrir síðustu mánaðamót.
Sigþór segir ekkert slíkt á döfinni hjá
Airport Associates.
,,Þetta er að spilast eins og við reikn-
uðum með. Það var mjög lítið sem
hægt var að gera fyrir þetta sumar, ég
átti ekki von á neinum stórkostlegum
kraftaverkum fyrir það,“ sagði Sigþór
og vísaði í möguleikann á því að önnur
félög fylli upp í skarðið sem WOW air
skildi eftir sig.
„Það voru einhverjir sem náðu að
bæta við, Transavia og Wizz Air, en
það er ekkert sem heitið getur,“ sagði
hann. Aðspurður hvort frekari endur-
skipulagningar sé að vænta hjá fyrir-
tækinu eftir sumarvertíðina sagði Sig-
þór það ekki á döfinni.
„Ég á ekki von á því að hlutirnir
breytist frekar hjá okkur. Þegar þessi
félög sem eru hér bara á sumrin hætta
þá eru fyrirtæki eins og Easy Jet sem
bætir mikið við.“
Á ekki von á frekari breytingum
Ekki frekari uppsagnir hjá Airport Associates Fleirum sagt upp í Fríhöfninni
Morgunblaðið/Eggert
Fríhöfnin Sex starfsmönnum var
sagt upp um síðustu mánaðamót.
Vík verkstæði
Funahöfða 17, 110 Reykjavík
Löggilding, skoðun og ísetningar á
ökuritum og hraðatakmörkurum
Við erum með nýjustu og fullkomnustu
tæki sem boðið er upp á frá VDO til að mæla
og stilla allar gerð r af digital og analong ökuritum
Ágúst Magni, sími 896 1083, agustm@vikverkstaedi.is, vikverkstaedi.is
Endilega hafið samband og sjáið hvort við get ekki leyst ykkar mál.
i
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Jensína Andrésdóttir
á Hrafnistu í Reykja-
vík lést 18. apríl síð-
astliðinn, 109 ára og
159 daga. Í janúar
náði hún þeim áfanga
að verða elst allra
sem hafa átt heima
hér á landi. Var hún í
fimmta eða sjötta
sæti yfir elstu íbúa á
Norðurlöndum, að því
er fram kemur á
vefnum Langlífi á Fa-
cebook, þar sem
greint var frá andláti
hennar í gær.
Jensína var fædd 10. nóvember
árið 1909 á Þórisstöðum við
Þorskafjörð í Austur-Barðastrand-
arsýslu, tólfta af fimmtán börnum
Andrésar Sigurðssonar bónda og
Guðrúnar Sigríðar Jónsdóttur.
Hún fór til Reykjavíkur og lærði
þar sauma í einn vetur. Jensína
veiktist alvarlega af mænuveiki ár-
ið 1955 og lamaðist þá öðrum meg-
in, náði sér ekki til fulls en gat
engu að síður slegið með orfi og ljá
í sveitinni.
Hún var vinnukona á ýmsum
bæjum við Ísafjarðardjúp en flutti
síðan til Reykjavíkur fyrir miðja
síðustu öld. Í fyrstu aðstoðaði hún
systur sína við heimilishaldið en
systir hennar eignaðist 12 börn.
Jensína vann einnig víða við ræst-
ingar, m.a. á heimilum
og læknastofum. Hún
var á Hrafnistu í rúma
tvo áratugi, hún var
ógift og barnlaus.
Á Langlífi kemur
fram að aðeins fjórir
aðrir Íslendingar hafa
náð 109 ára aldri. Guð-
rún Björnsdóttir hefur
orðið elst, 109 ára og
310 daga, en hún var
fædd í Vopnafirði
haustið 1888 og var
þriggja ára þegar hún
flutti til Kanada með
foreldrum sínum og
systkinum. „Segja má að Jensína
hafi átt Íslandsmetið en Guðrún Ís-
lendingametið,“ segir á Langlífi.
Alls hafa 26 Íslendingar náð 106
ára aldri og er Georg Breiðfjörð
Ólafsson í Stykkishólmi eini karlinn
í þeim hópi en hann varð 107 ára
og 333 daga. Dóra Ólafsdóttir í
Kópavogi er elsti núlifandi Íslend-
ingurinn en hún varð 106 ára í júlí
í fyrra. Guðríður Guðmundsdóttir
er næstelst, 104 ára, og Lárus Sig-
fússon er í þriðja sæti og jafnframt
elstur karlmanna, 104 ára, að því
er fram kemur á vefnum Langlífi,
sem er í umsjá Jónasar Ragn-
arssonar.
Útför Jensínu Andrésdóttur fer
fram frá Árbæjarkirkju í Reykjavík
3. maí næstkomandi, kl. 13.
Andlát
Jensína Andrésdóttir