Morgunblaðið - 25.04.2019, Side 11

Morgunblaðið - 25.04.2019, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2019 Björg Þorsteinsdóttir myndlistarkona lést 22. apríl sl., 78 ára að aldri. Hún fæddist 21. maí 1940. Björg var þekktur listmálari og grafík- listamaður. Hún stundaði myndlist- arnám m.a. við Mynd- lista- og handíðskóla Íslands, Akademie der bildenden Künste í Stuttgart, École Nat- ionale Supérieure des Beaux Arts og við hið þekkta grafík- verkstæði Atelier 17 í París. Björg hélt yfir 30 einkasýningar og tók þátt í fjölmörgum samsýn- ingum á Íslandi og víða um heim. Eftir hana liggja fjölmörg mynd- listarverk sem er að finna í öllum helstu listasöfnum á Íslandi og í opinberum söfnum og einkasöfnum á Íslandi og erlendis. Björg hlaut margar viðurkenningar fyrir verk sín, m.a. námsstyrk frönsku ríkis- stjórnarinnar 1971-1973 og var nokkrum sinnum handhafi starfs- launa listamanna. Björg tók þátt í félagsstörfum og sat m.a. í stjórn félagsins Íslensk grafík, Félags ís- lenskra myndlist- armanna, í ráði Nor- rænu myndlistar- miðstöðvarinnar NKC í Finnlandi og í full- trúaráði Listasafns Sigurjóns Ólafssonar. Hún starfaði sem kennari við Myndlista- og handíðaskóla Ís- lands, Myndlistaskól- ann í Reykjavík og var forstöðumaður Safns Ásgríms Jóns- sonar 1980-1984. Björg vann óslitið að listsköpun sinni til æviloka. Hennar helstu myndlistarmiðlar voru málverkið, teikning og list- grafík. Björg hélt sífellt áfram að þróa list sína og náði einstökum ár- angri sem einn af okkar fremstu listamönnum. Björg giftist Ragnari Árnasyni mælingaverkfræðingi (1926-2016), þau skildu. Dóttir þeirra er Guðný, f. 1963, bókasafnsfræðingur og leikkona. Sonur Guðnýjar og Ólafs Rögn- valdssonar kvikmyndagerðar- manns, f. 1958, er Ragnar Árni tónlistarmaður, f. 1991. Andlát Björg Þorsteinsdóttir Hermann Einarsson, kennari og útgefandi í Vestmannaeyjum, lést 20. apríl síðastliðinn. Hermann fæddist í Vestmannaeyjum 26. janúar 1942 og ólst upp í Eyjum, en var í mörg sumur í sveit undir Eyjafjöllum. Foreldrar hans voru Ásta Stein- grímsdóttir, f. 31.1. 1920, d. 23.4. 2000, og Einar Jónsson, f. 26.10. 1914, d. 25.2. 1990. Hann útskrifaðist með kennarapróf árið 1965 og próf úr framhaldsdeild Kennaraskóla Íslands 1969. Hann kenndi við Æfingaskóla KÍ veturinn 1965-1966 og við Barnaskóla Vest- mannaeyja 1966-1974. Hermann starfaði sem skólafulltrúi Vest- mannaeyja 1977-1987. Hann hóf aft- ur kennslu við Barnaskóla Vest- mannaeyja árið 1987 og kenndi þar til starfsloka. Hermann starfaði mikið að út- gáfumálum og gaf út vikublaðið Dag- skrá í rúm 30 ár. Einnig kom hann að útgáfu ýmissa rita, m.a. Þjóðhátíðar- blaðs Vestmannaeyja og Eyja- skinnu, ársrits Sögufélags Vest- mannaeyja. Hin seinni ár sinnti hann bókbandi af mikilli ánægju og batt inn prentverk sem fjalla um Vest- mannaeyjar. Hann var varabæj- arfulltrúi í Vest- mannaeyjum 1966- 1970 og starfaði enn fremur mikið fyrir íþróttahreyfinguna í Vestmannaeyjum. Hermann var fréttarit- ari RÚV 1992-1997. Hermann var félags- málamaður og heið- ursfélagi í AKÓGES, félagi í Oddfellowregl- unni, Veiðifélagi Suð- ureyjar og Listvina- félagi Vestmannaeyja. Hann var formaður Vestmanna- eyjadeildar Rauða kross Íslands 1998-2009 og hlaut gullmerki RKÍ árið 2016. Hermann var tóm- stundabóndi á Breiðabakka í Vest- mannaeyjum þar sem hann sinnti búskap ásamt félögum sínum með sauðfé og fiðurfé. Hermann kvæntist eftirlifandi eig- inkonu sinni, Guðbjörgu Ósk Jóns- dóttur, f. 26.12. 1952, hinn 23. júní 1973. Dætur þeirra eru Sigurborg Pálína og Steinunn Ásta, barnabörn- in eru átta og eitt langafabarn. Útför Hermanns verður gerð frá Landakirkju í Vestmannaeyjum kl. 14 laugardaginn 27. apríl. Minning- arathöfn verður um Hermann kl. 13 hinn 3. maí í Neskirkju í Reykjavík. Hermann Einarsson Fylgist með á facebook • Skoðið laxdal.is/yfirhafnir Skipholti 29b • S. 551 4422 Sumarfrakkar í úrvali Verð frá kr. 29.900 Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna Netverslun á www.belladonna.is Nýjar sumarvörur frá Str. 38-58 Ársfundur VIRK Ársfundur VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs verður haldinn þriðjudaginn 30. apríl í Háteigi á Grand Hótel Reykjavík kl. 13.30-16.00. DAGSKRÁ • Starfsemi VIRK Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri VIRK • Reynslusaga einstaklings sem lokið hefur starfsendurhæfingu • Reynslusaga stjórnanda úr atvinnulífinu • Styrkir VIRK 2019 Jónína Waagfjörð, sviðsstjóri hjá VIRK • Hefðbundin ársfundarstörf samkvæmt skipulagskrá Ársfundurinn er öllum opinn en meðlimir fulltrúaráðs VIRK hafa einir atkvæðisrétt. Skrá skal þátttöku á virk.is Alvarlegt vinnuslys varð í álveri Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði um klukkan tvö í gærdag þegar karl- maður féll fjóra metra á merktri gönguleið í skautsmiðju álversins. Þetta staðfesti Dagmar Ýr Stef- ánsdóttir upplýsingafulltrúi Fjarðaáls í samtali við mbl.is í gær. Fluttur með sjúkraflugi á Landspítalann í Fossvogi Lögreglan á Eskifirði var kölluð á vettvang og var maðurinn fluttur með sjúkrabíl til Neskaupstaðar og þaðan með sjúkraflugi á Land- spítalann í Fossvogi. Ekki er unnt að veita frekari upplýsing-ar um líðan hans. Nokkrar gönguleiðir eru í skaut- smiðjunni og eru þær í mismun- andi hæð. „Þetta á að vera örugg gönguleið en þarna var eitthvað sem gaf sig,“ sagði Dagmar. Slysið hefur verið tilkynnt til Vinnueftirlitsins. Alvarlegt vinnuslys Morgunblaðið/ÞÖK Álver Fjarðaáls Maðurinn féll fjóra metra í skautsmiðju álversins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.