Morgunblaðið - 25.04.2019, Side 12
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Við erum að sigla í að sam-anlagður fjöldi krakkannasem hafa komið til okkarað Reykjum séu 60 þús-
und. Í okkar huga er þetta eitt stórt
ævintýri og betri gesti er ekki hægt
að hugsa sér en
lífsglaða krakka,“
segir Karl B.
Örvarsson, for-
stöðumaður
Skólabúðanna að
Reykjum í
Hrútafirði. Nú
sér fyrir endann
á átjánda vetr-
inum sem þau
Karl og Halldóra
Árnadóttir kona
hans starfrækja búðirnar sem eru í
húsum gamla héraðsskólans að
Reykjum.
100 krakkar í húsi
Það var haustið 2001 sem þau
Karl og Halldóra hófu störf við
skólabúðirnar, en starfsemin hófst
upphaflega árið 1988 – fyrir 31 ári.
Að Reykjum koma á vetri hverjum
krakkar úr 7. bekk grunnskólans,
12-13 ára. Eru þau á staðnum frá
mánudegi til föstudags og á hverjum
tíma eru yfirleitt um 100 krakkar í
húsi, ásamt kennurum.
„Fyrstu hóparnir koma hingað
upp úr 20. ágúst og svona rekur
þetta sig alla veturinn. Alls verða
dvalarvikurnar þennan veturinn 34
og síðasti hóparnir eru hér í lok maí.
Það þýðir að hingað koma á þessu
skólaári nærri 3.400 krakkar fæddir
árið 2006, en í árganginum öllum eru
um 4.400 börn, segir Karl.
Framandi veröld
Aðstaða að Reykjum hentar, að
mati Karls, einkar vel fyrir starfs-
semina. Í gömlu skólahúsunum eru
rúmgóð salarkynni og gistiaðstaða,
það er í gömlu heimavistinni. Þá eru
á hlaðinu lítið íþróttahús, 25 metra
sundlaug og kippkorn frá því er
byggðasafnið, sem Húnvetningar og
Strandamenn standa sameiginlega
að. Þangað var einmitt stór krakka-
hópur kominn til að skoða og fræð-
ast þegar blaðamaður leit við á
Reykjum fyrir nokkrum dögum. Í
öndvegi á safninu er hákarlaskipið
Ófeigur, en almennt má segja að
safnið gefi góða innsýn í veröld sem
var og er ungri kynslóð framandi á
flesta lund.
„Krakkarnir eru ræst klukkan
átta á morgnana, það er morg-
unmatur klukkan hálfníu og eftir
það tekur við þétt dagskrá sem
stendur allan daginn. Bæði er farið í
útileiki, íþróttahúsið, sundlaugina og
byggðasafnið og svo er þetta um-
hverfi heill ævintýraheimur. Bæði
eru náttúran hér, gróður og fjara,
forvitnileg. Svo eru hér sögulegar
minjar, rústir af herstöð Breta sem
hér var starfrækt á stríðsárunum,
140 braggar og 1.000 hermenn þegar
mest var. Svo endum við alltaf á
kvöldin með skemmtilegri kvöld-
vöku, þar sem krakkarnir sjálf og
svo við starfsfólkið – harðfullorðið –
bryddum upp á ýmsu skemmtilegu,“
segir Karl og heldur áfram:
Sjálf okkur næg
með afþreyingu
„Hér erum við sjálfum okkur
næg með alla afþreyingu og að þurfa
að komast í síma og tölvur er krökk-
unum fjarlægt í þessu umhverfi.
Strax þegar krakkarnir koma hing-
að á mánudegi eru þau tekin á sal og
þeim kynntur staðurinn og þær regl-
ur sem hér gilda. Þær eru einfaldar
og skýrar; ekki stríða, berum virð-
ingu fyrir hvort öðru og það er bann-
að að skemma eigur annarra. Klárt
og kvitt og aldrei nein vandamál.
Það er bara ekki nokkurt einasta
mál að hafa hér 100 krakka í eina
viku. Börnin fara eftir þeim reglum
sem þeim eru settar og heilt yfir eru
þau alveg til fyrirmyndar og
skemmtileg,“ segir Karl að síðustu.
Skemmtilegar skólabúð-
ir! Að Reykjum í Hrúta-
firði er ævintýraveröld,
sem tugir þúsundir
krakka hafa sótt. Úti-
leikir, íþróttir, fjör og
fræðsla.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Gleði Kátir krakkar í upphafi dvalarviku á Reykjum. Í mörgum skólum er þetta einn af hápunktum skólaársins og er safnað fyrir ferðinni allan veturinn.
Skólahús Á Reykjum var lengi starfræktur héraðsskóli fyrir Húnavatnssýslur og Strandir. Byggingunum á staðn-
um var svo fengið nýtt hlutverk með starfsemi skólabúðanna, sem eiga sér orðið ríflega tuttugu ára sögu.
Áhugasamir Jóhannes Fei Birgisson, til vinsti, og Eivin Gitonga frá Akureyri.
Karl
Örvarsson
Krakkarnir alveg til fyrirmyndar
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2019
það er opið í öllum
Pssst ...
Krónu verslunum í dag
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
G
le
ði
legt sum
ar!