Morgunblaðið - 25.04.2019, Page 16

Morgunblaðið - 25.04.2019, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2019 BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Á þessari stundu liggur ekki ljóst fyrir hvenær framkvæmdir geta hafist við langþráða breikkun Reykjanesbrautar í Hafnarfirði, milli Kaldárselsvegar og Krýsuvík- urvegar. Hafnfirðingar hafa þrýst mjög á úrbætur í samgöngumálum í bæn- um undanfarin ár. Umferð í gegn- um bæinn hefur stóraukist, ekki síst vegna fjölgunar ferðamanna sem aka þar um á leið frá og til Keflavíkurflugvallar. Þar sem Reykjanesbrautin er þjóðvegur ber ríkinu að fjármagna fram- kvæmdina. Tilboð í fyrrgreint verk voru opnuð fyrir rúmum mánuði og var sameiginlegt tilboð Ellerts Skúla- sonar ehf., Borgarvirkis ehf. og GT verktaka ehf. lægst, eða rúmar 1.864 milljónir króna. Við yfirferð gagna frá lægs- tbjóðendum kom í ljós að verk- reynsla bjóðenda fullnægði ekki kröfu sem áskilin er í grein 1.8 í útboðslýsingu og er svohljóðandi: „Bjóðandi skal á sl. 7 árum hafa lokið við a.m.k. eitt sambærilegt verk fyrir verkkaupa eða annan aðila. Með sambærilegu verki er átt við verkefni svipaðs eðlis og að upphæð verksamnings hafi að lág- marki verið 50% af tilboði í þetta verk. Við þennan samanburð mun verkkaupi taka tillit til verðbreyt- inga miðað við byggingarvísitölu.“ Ístak átti næstlægsta boðið Á grundvelli þessa ákvæðis hafnaði Vegagerðin tilboðinu. Að sögn G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerð- arinnar, hefur verktakinn ekki kært þessa ákvörðun en gert við hana athugasemdir. Er Vegagerðin með þær til skoðunar. Hvað þetta tekur langan tíma getur G. Pétur ekki sagt til um. Væntanlega verð- ur gengið til samninga við það fyrirtæki sem átti næstlægsta til- boðið. Það var Ístak hf., sem bauð rúmar 2.106 milljónir króna í verk- ið. Áætlaður verktakakostnaður Vegagerðarinnar var 2.050 millj- ónir króna. Alls bárust fjögur til- boð í verkið. Í verkinu felst tvö- földun Reykjanesbrautar í Hafnarfirði milli Kaldárselsvegar og Krýsuvíkurvegar, auk allra vega- og stígagerðar sem nauðsyn- leg er til að ljúka gerð vegafram- kvæmdanna endanlega. Lengd út- boðskaflans er um 3,2 kílómetrar. Þá er innifalin breikkun vegbrúar yfir Strandgötu og gerð tveggja göngubrúa yfir Reykjanesbraut við Ásland og Þorlákstún. Einnig er innifalin gerð umtalsverðra hljóð- varna, bæði hefðbundinna hljóð- mana, hljóðveggja og mana með jarðvegshólfum. Þá eru í verkinu breytingar á lagnakerfum veitufyr- irtækja sem og nýlagnir og veglýs- ing. Loks er innifalinn frágangur á landi og landmótun. Verkið er samstarfsverkefni Vega- gerðarinnar, Hafnarfjarðar og veitufyrirtækja. Samkvæmt verk- áætlun áttu framkvæmdir að hefj- ast í næsta mánuði en ljóst er að sú áætlun mun ekki standast. Verkinu verður skipt í tvo aðal- áfanga. Á þessu ári verður brautin tvöfölduð vestan Strandgötu og brúin yfir Strandgötu breikkuð. Á árinu 2020 verður brautin svo tvö- földuð milli Kaldárselsvegar og Strandgötu. Verklok eru áætluð í byrjun nóvember 2020. Markmiðið með framkvæmd- unum er að auka umferðaröryggi og bæta umferðarflæði og umferð- arrýmd. Einnig að bæta hljóðvist í nágrenni brautarinnar og bæta samgöngur yfir Reykjanesbraut, milli hverfa í Hafnarfirði. Tvöföld- un þessa vegarkafla verður flókið verk og vandasamt, segir Vega- gerðin. Vegfarendur þurfi að sýna mikla tillitssemi á vinnusvæðinu næstu tvö árin. Breikkun bíður enn um sinn  Lægstbjóðandi í tvöföldun Reykjanesbrautar í Hafnarfirði var ekki talinn fullnægja kröfum  Verktakinn gerði athugasemdir við ákvörðunina  Vegagerðin með málið til skoðunar Opið hús verður í Garðyrkjuskól- anum á Reykjum í Ölfusi frá kl. 10 til 17 í dag, sumardaginn fyrsta. Þess er minnst um þessar mundir að 80 ár eru frá upphafi garðyrkjumenntunar á Íslandi. Sumarið er komið í garðskál- anum og hægt er að heimsækja hitabeltið í bananahúsinu og pottaplöntusafninu. Verkefni nemenda í skrúðgarðyrkju verða til sýnis og kaffiveitingar verða á boðstólum og markaðstorg með m.a. nýrri uppskeru af hnúðkáli, grænkáli og gulrótum. Ýmiss konar afþreying er í boði fyrir börnin. Ekki aðeins verður Garðyrkju- skólinn opinn fyrir gesti og gang- andi heldur verður einnig sérstök hátíðardagskrá kl. 13:30-14:45. Þar m.a. afhendir Guðni Th. Jó- hannesson, forseti Íslands, garð- yrkjuverðlaun LbhÍ 2019 og Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, afhend- ir umhverfisverðlaun Hvera- gerðis og umhverfisverðlaun Ölf- uss. Á samkomunni afhendir Landvernd Garðyrkjuskólanum grænfána. Ljósmynd/Garðyrkjuskólinn Bananar Myndarleg planta í banana- húsinu á Reykjum í Ölfusi. Opið hús í Garð- yrkjuskólanum  Nám í garðyrkju hófst fyrir 80 árum Eftir er að tvöfalda kaflann frá Kaplakrika að Álftanesvegi í Engidal. Til glöggvunar skal þess getið að þessi kafli liggur framhjá versluninni Fjarðar- kaupum. Opinbert heiti vegar- kaflans er „Álftanesvegur að Lækjargötu“ og er umferð um hann mjög mikil. Þó hann teljist ekki formlega til Reykjanesbrautar nema að hluta telst hann tilheyra henni allur í bókhaldi Vegagerð- arinnar. Nafn vegarins frá Engi- dal að Kaplakrika er Fjarðar- hraun. Engidalur – Kaplakriki er ekki á samgönguáætlun og ekki á 15 ára áætluninni, sam- kvæmt upplýsingum sem blað- ið fékk hjá G. Pétri Matthías- syni. Ekki á sam- gönguáætlun FJÖLFARINN VEGUR Ljósmynd/Efla Reykjanesbrautin Vegarkaflinn sem á að tvöfalda liggur fram hjá Áslandshverfinu í Hafnarfirði. Tvöföldun þessa vegarkafla verður flókið verk og vandasamt að mati Vegagerðarinnar. Vegfarendur þurfa að sýna mikla tillitssemi. Tvöföldun Reykjanesbrautar Frá gatnamótum við Kaldárselsveg að Krýsuvíkurvegi H A F N A R FJ Ö R Ð U R Hvaleyri Setberg Kortagrunnur: openstreetmap.com Gatnamót við Krýsuvíkurveg Gatnamót við Kaldárselsveg Tvöföldun á um 3 km kafla Reyk janes brau t Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. s: 781-5100 Opið: Mán-fim: 12-18 fös: 12-16 VOR 2019

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.