Morgunblaðið - 25.04.2019, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2019
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Ríflega 30 ára verslunarsögu á bletti
fyrir framan Sundlaug Seltjarnar-
ness lauk fyrir páska þegar bæjar-
yfirvöld létu fjarlægja söluskála sem
þar stóð. Skálinn hafði staðið auður
um nokkurt skeið en síðast var hann
nýttur sem kosningamiðstöð Við-
reisnar fyrir sveitarstjórnarkosn-
ingar í fyrra. Þar áður var verslunin
Systrasamlagið rekin þar við miklar
vinsældir bæjarbúa og annarra sem
sækja sundlaugina og líkamsræktar-
stöðina. Sú verslun hraktist þaðan
vegna þess að ekki reyndist unnt að
tryggja framtíðarleigusamning á
húsinu. Ástæðan var sú að bæjar-
yfirvöld áformuðu að nýta svæðið
undir bílastæði.
Eldað í örbylgjunni
Sundlaug Seltjarnarness var vígð
í september 1984. Ekki leið á löngu
áður en reistur var söluturn í jaðri
lóðar sundlaugarinnar. Þá sem nú
þótti mörgum óhugsandi annað en
að pylsa eða önnur hressing fylgdi í
kjölfar góðrar sundferðar. Sjoppa
þessi naut frá upphafi mikilla vin-
sælda bæjarbúa. Hún fékk nafnið
Nesturninn en var í daglegu tali
yfirleitt nefnd í höfuð þess sem opn-
aði hana, Skaraskúr eða einfaldlega
Skari. Í Skaraskúr var í upphafi
hægt að kaupa Sinclair Spectrum-
tölvuleiki sem nutu mikilla vinsælda.
Vertinn tók líka í sína þjónustu nýtt
undratæki á markaðinum, örbylgju-
ofninn. Í honum voru matreiddar
heimagerðar samlokur með leyni-
sósu. Svindlsamlokur í samloku-
brauði á 25 krónur og Blöffborgarar
í hamborgarabrauði á 30 krónur. Þá
voru gamaldags íslenskir kleinu-
hringir, GB-kleinuhringir nánar til-
tekið, hitaðir í örbylgjunni og seldir
á tíkall.
Hlölli og Gilli komu og fóru
Sá Skaraskúr sem fjarlægður var
á dögunum var reistur á tíunda ára-
tugnum. Þegar kom fram á nýtt ár-
þúsund gekk á ýmsu í rekstrinum
samfara breyttum verslunarháttum
á Íslandi og nokkuð var um eig-
endaskipti. Þannig var skúrnum
breytt í einhvers konar útibú Hlölla-
báta árið 2008. Árið 2010 var nafninu
breytt í Gilla Grill og þáverandi eig-
andi bauð upp á kjúklingarétt frá
Bótsvana sem rétt hússins. Með til-
komu World Class og aukinni
áherslu gesta á heilsubót virtist orð-
ið útséð með hefðbundinn sjoppu-
rekstur í Skaraskúr. Systrasamlagið
var opnað í húsnæðinu árið 2013 og
passaði eins og flís við rass við
stemninguna á svæðinu. Systra-
samlagið var valið fyrirtæki ársins á
Seltjarnarnesi árið 2015.
Systrasamlagið hraktist burt
Mikill styr stóð um framtíð Skara-
skúrs síðla árs 2016 og fram á 2017.
Fimmtán ára lóðaleigusamningur
eigandans rann út árið 2014 og þar
sem áformað hafði verið árið 2007,
þegar World Class var reist, að gera
bílakjallara undir lóðinni vildu bæj-
aryfirvöld aðeins gera leigusamning
til eins árs í senn. Því gátu systurnar
í samlaginu ekki unað:
„Nú er ekki rekstrargrundvöllur
fyrir okkur hér lengur. Húseigand-
inn hefur aðeins fengið árs leigu-
samninga í senn undanfarin þrjú ár.
Vegna óvissunnar hefur hann ekki
viljað kosta viðhald á húsinu. Við
systurnar höfum því ákveðið að færa
okkur um set og opnum á Óðinsgötu
1 um miðjan janúar. Við hefðum vilj-
að vera áfram því hér eigum við
djúpar rætur,“ var haft eftir Guð-
rúnu Kristjánsdóttur í lok árs 2016.
Íbúar á Seltjarnarnesi lýstu mik-
illi óánægju með þessa þróun mála,
sögðu Systrasamlagið límið í sam-
félaginu og efndu til undirskrifta-
söfnunar um að brugðist yrði við
með einhverjum hætti.
„Algjörlega ótrúlegt þegar loksins
einstaklingar eru tilbúnir að hefja
rekstur á Nesinu, byggja upp öflugt
vörumerki í anda stefnu bæjarins;
fjölskylduvænt og grænt – að þá er
bærinn ekki tilbúinn að framlengja
samning,“ skrifaði einn íbúa í face-
bookhóp þeirra.
Björn Leifsson, eigandi World
Class, tók undir sjónarmið bæjarbúa
og sagðist vilja hafa Systrasamlagið
áfram enda skapaði það líf í hverf-
inu. „Fyrir níu árum var á teikni-
borðinu að gera bílakjallara sem
hefði bætt við um 30 stæðum. Það er
alltof dýr framkvæmd fyrir svona
lítinn ávinning,“ sagði Björn.
Málaferli um skúrinn
Að endingu kom til málaferla um
framtíð Skaraskúrs. Seltjarnarnes-
bær stefndi eiganda söluskálans fyr-
ir Héraðsdóm Reykjavíkur en hann
hafði talið að lóðarleigusamningur
hefði verið framlengdur til fimmtán
ára og neitaði að fjarlægja skálann.
Bærinn hafði sigur í héraðsdómi en
eigandinn áfrýjaði til Landsréttar
sem úrskurðaði bænum í vil snemma
árs 2018. Ári síðar var svo Skara-
skúr felldur.
En hvað verður nú gert á svæð-
inu? Ásgerður Halldórsdóttir, bæj-
arstjóri á Seltjarnarnesi, sagði í
samtali við Morgunblaðið að engin
ákvörðun hefði verið tekin um nýt-
ingu þess.
„Samkvæmt núgildandi deili-
skipulagi er ekki gert ráð fyrir
neinni byggingu þarna. Þegar World
Class var byggt á sínum tíma var
alltaf gert ráð fyrir því að þetta
myndi hverfa.“
– Hvað með þessi gömlu áform um
bílakjallara?
„Það hefur ekkert verið ákveðið
með það en það hefur verið í um-
ræðunni hvort það þurfi að gera
bílakjallara þarna á einni og hálfri
hæð. Eða að endurskipuleggja bíla-
stæðin á svæðinu. Það hefur engin
ákvörðun verið tekin.“
Skúrinn felldur Skaraskúr við Sundlaug Seltjarnarness var rifinn rétt fyrir páska. Fyrsti söluturninn var reistur á þessum stað um miðjan níunda áratuginn og því lauk þarna ríflega þrjátíu ára
verslunarsögu. Lengi var rekin hefðbundin sjoppa þarna en svo voru gerðar tilraunir með ýmsa matsölu. Síðast var Systrasamlagið í skúrnum en vegna áforma um bílakjallara var það flutt.
Morgunblaðið/Hari
Umdeildur skúr á Nesinu rifinn
Skaraskúr rifinn eftir áralangar deilur Upprunalegi skúrinn reistur um miðjan níunda áratug-
inn Naut mikilla vinsælda bæjarbúa Bæjaryfirvöld hafa ekki ákveðið hvað kemur í staðinn
Morgunblaðið/Eggert
Systrasamlagið Systurnar Guðrún og Jóhanna Kristjánsdóttir nutu sín vel
í Skaraskúr um nokkurra ára skeið. Þær hröktust þaðan í ársbyrjun 2017.
Nesturninn Auglýsing úr bæjar-
blaðinu Nesfréttum frá 1992.
m.
Lítil og létt loftpressa. Kemur með
fjórum stútum sem passa á dekk,
bolta, vindsængur og fleira.
REDLITHIUM-ION™ rafhlaða.
Sveigjanlegt rafhlöðukerfi sem virkar
með öllum Milwaukee® M12™ rafhlöðu
Verð 16.900 kr. (án rafhlöðu)
M12 Inflator
Alvöru loftpressa
fráMilwaukee
vfs.is
VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888