Morgunblaðið - 25.04.2019, Síða 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2019
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Í Múlakoti í Fljótshlíð, skammt frá
Hvolsvelli, geymir Erling Jóhann-
esson gamla flugvél sem á sér
merka sögu. Hún er af gerðinni Bo-
eing/Stearman PT-17 Kaydet og ber
einkennisstafina TF-KAU. Þetta er
elsta flughæfa vél á Íslandi, nærri
áttatíu ára gömul.
Fyrir rúmum mánuði var greint
frá því hér í blaðinu að tekist hefði
að staðsetja flak bandaríska flug-
móðurskipsins USS Wasp í Kóral-
hafinu. Skipinu var grandað af jap-
önskum kafbáti haustið 1942 og
fórst stór hluti skipverja, 166
manns, en nokkrum var bjargað um
borð í önnur bandarísk herskip á
svæðinu. Wasp tengist íslenskri
sögu því það var hér við land um
tíma á stríðsárunum í flotadeild sem
gætti kaupskipa er sigldu um Norð-
ur-Atlantshafið á milli Bretlands og
Bandaríkjanna.
Í ágúst 1941 flutti USS Wasp alls
30 bandarískar orrustuflugvélar af
gerðinni P-40 og þrjár æfingaflug-
vélar 33. flugsveitar Bandaríkja-
manna til Íslands. Þá voru þeir að
taka við hervernd landsins úr hönd-
um Breta. Þessar flugvélar tóku á
loft frá flugmóðurskipinu undan
Reykjanesi og lentu á hinum ný-
byggða Reykjavíkurflugvelli.
TF-KAU í Múlakoti er ein þess-
ara þriggja æfingaflugvéla, tvíþekja
sérsmíðuð til æfinga- og kennslu-
flugs fyrir bandaríska herinn. Alls
voru framleiddar um 11 þúsund vél-
ar af sömu gerð vestanhafs og hófu
nánast allir bandarískir herflug-
menn á stríðsárunum feril sinn um
borð í slíkri vél.
TF-KAU var glæný þegar hún
kom til Íslands. Fyrstu fjögur árin,
eða fram að stríðslokum, var hún
notuð til æfingaflugs hersins. Í upp-
hafi var hún máluð blá og gul eins
og nú, en síðan silfurlituð.
Þegar bandaríski herinn fór heim
var vélin seld Vélflugdeild Svif-
félagsins og var í ýmiss konar flugi
fram til 1953 þegar henni hlekktist
alvarlega á í lendingu við Búðir á
Snæfellsnesi.
Í frásögn Morgunblaðsins af slys-
inu 23. júní það ár segir: „Flugvél
þessi, sem er tvíþekja, hefur iðulega
verið hér á flugi yfir bænum, hefur
m.a. dregið svifflugur á loft af
Reykjavíkurflugvelli. Óhapp þetta
vildi til í lendingunni, en við Búðir
er lent í fjörusandinum. Stakkst
flugvélin litla fram yfir sig og
hvolfdi. Við þetta stórskemmdist
flugvélin og er ókannað hvort hægt
verði að gera við hana, eða hvort
viðgerð þyki borga sig.“ Hvorki
flugmaðurinn né farþegi hans slös-
uðust.
Næstu áratugina var TF-KAU
geymd, illa farin og hirðulaus, í flug-
skýli á Reykjavíkurflugvelli. Það
var svo árið 1985 að Erling, sem er
lærður flugmaður og flugvirki og
starfaði lengi hjá Grænlandsflugi,
eignaðist vélina og hóf að gera hana
upp með hjálp ættingja, vina og
kunningja. Viðgerðin var afar tíma-
frek, þótt vel hafi gengið að fá vara-
hluti eða láta smíða þá. Hún var líka
mjög kostnaðarsöm. Þótt ódýrara
hefði verið að fá aðra samskonar vél
að utan vildi Erling frekar gera TF-
KAU upp sögu hennar vegna. Við-
gerðinni lauk árið 2005 og hafði þá
tekið tuttugu ár með hléum.
Erling hefur notið tímans með
TF-KAU, en segist nú hættur að
fljúga. Hann á að baki um tuttugu
þúsund flugtíma. Hafa tveir sona
hans, Carl Hemming og Erling Pét-
ur, tekið við vélinni sögufrægu.
Litrík Erling um borð í TF-KAU fyrir framan flugskýlið í Múlakoti í Fljótshlíð. Erling, sonur hans, í farþegasætinu.
Ljósmyndir/Erling Karl Erlingsson.
TF-KAU Erling dyttar að vélinni. Í baksýn má greina fleiri flugvélar.
Elsta flughæfa
vélin á Íslandi
Elsta flughæfa vélin TF-KAU tilbúin til flugtaks. Vélinni er núorðið eingöngu flogið í góðu veðri að sumri til.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Viðgerð lokið Erling við stjórnvölinn þegar vélin fór í loftið 2005.
20% afsláttur
af öllum sófa og hliðarborðum
Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 12-16Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050