Morgunblaðið - 25.04.2019, Síða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2019
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Vormaraþon Félags maraþonhlaup-
ara (FM) verður haldið í 22. sinn í
Reykjavík á laugardaginn. Búist er
við fjölda erlendra hlaupara.
Hlaupið verður ræst við nýju
brýrnar í Elliðaárdal, milli gömlu
rafstöðvarinnar og Toppstöðvar-
innar. Keppni í heilu maraþoni hefst
klukkan 8 árdegis en í hálfu mara-
þoni klukkan 10. Mætast hlaup-
ararnir því í brautinni.
Útlit er fyrir gott hlaupaveður.
Spáð er 12 stiga hita um hádegi á
laugardaginn, 27. apríl.
Árviss viðburður frá 1998
Pétur Haukur Helgason, stjórn-
andi hlaupsins, segir vormaraþonið
fyrst hafa verið haldið árið 1998.
Það hafi síðan verið árviss viðburður
í hlaupaheiminum.
Þetta er 43. hlaup FM frá upp-
hafi. Félagið er jafnframt með
haustmaraþon í október.
Hálfmaraþon að vori var fyrst
hlaupið 2002 en síðan ekki fyrr en
2005. Það er nú haldið í 15. sinn í
röð.
Metfjöldi þátttakenda var í vor-
maraþoninu í fyrra. Hlupu þá 57
maraþon en 316 hálfmaraþon, eða
samtals 373 hlauparar. Af þeim voru
42 erlendir hlauparar í vormaraþon-
inu en 120 í hálfmaraþoninu.
Að sögn Péturs Hauks var þetta
álíka fjöldi erlendra hlaupara og í
vormaraþoninu 2017. Þessi tvö ár
séu metár í þessu samhengi. Úlit sé
fyrir eitthvað færri erlenda hlaup-
ara að þessu sinni.
Sem áður segir hefst hlaupið í
Elliðaárdal. Hlaupið er til vesturs í
Fossvogsdal og yfir brúna við Skóg-
ræktina í Fossvogi. Þaðan er hlaup-
ið að Háskólanum í Reykjavík og
svo hlaupin lykkja meðfram Reykja-
víkurflugvelli. Síðan er hlaupið með-
fram Skerjafirði vestur að Ægisíðu.
Þar snúa hálfmaraþonhlauparar við
og ljúka hlaupinu á upphafsstað.
Maraþonhlaupararnir fara leiðina
tvisvar.
Verðlaun fyrstu efstu sætin
Hlaupið er á malbikuðum stígum
og götum. Drykkjarstöðvar verða
með 5 km millibili, við HR og á Ægi-
síðu, og tími hlaupara skráður með
tölvuflögu. Veitt eru verðlaun fyrir
fyrstu þrjú sætin í heilu og hálfu
maraþoni í kvenna- og karlaflokki.
Hlauparar
reima á sig
hlaupaskóna
Vormaraþonið haldið á laugardag
173 181
198
237 250
304
270
373
300
Maraþonhlaup FM frá upphafi
Heildarfjöldi þátttakenda 1998 til 2018
Þjóðerni erlendra þátttakenda
Þátttakendur í maraþoni og hálfmaraþoni
Haust 2016 og vor 2017 samtals
Haust 2014 til hausts 2018 eftir þjóðerni
Vormaraþon ½ maraþon Haustmaraþon ½ maraþon
Ísland Ísland ½ maraþon
Erlendir þátttakendur
½ maraþon
HAUST VOR HAUST VOR HAUST VOR HAUST VOR HAUST
2015 2016 2017 20182014’98 ’00 ’02 ’04 ’06 ’08 ’10 ’12 ’14 ’16 ’18
Heimild:
Félag maraþon-
hlaupara (FM)
Bandaríkin, 22%
Bretland, 22%
Írland, 11%
Kanada, 8%
Finnland, 6%
Holland, 5%
Svíþjóð, 4%
Danmörk, 4%
Frakkland, 3%
Önnur lönd, 16%
673
484
61
Alls yfir
20
þjóðerni
31
6
25
5
57
45
Ljósmynd/Félag maraþonhlaupara
Hlauparar Pétur Haukur og Pétur Frantzson hafa skipulagt hlaupið.
Gögn afhent á morgun
» Skráning fer fram á vefnum
marathonhlaup.is.
» Hlaupagögn eru afhent í
versluninni Sport24 í Sunda-
borg 1, 104 Reykjavík.
» Afhendingin fer fram föstu-
daginn 26. apríl, frá kl. 10-18.
» Boðið verður upp á nýbak-
aðar vöfflur með rjóma og
heitt kakó við endamarkið.
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
Hlustaðu
á hjartað þitt
Beltone Trust™ heyrnartækin gera þér kleift að heyra jafnvel minnstu smáatriði
– sem stundum reynast þau mikilvægustu. Við hjá Heyrnarstöðinni leggjum allan
okkar metnað í að veita góða þjónustu og bjóða upp á hágæða heyrnartæki.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
Beltone Trust
™