Morgunblaðið - 25.04.2019, Síða 29

Morgunblaðið - 25.04.2019, Síða 29
FRÉTTIR 29Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2019 ALLIR ÚT AÐ HJÓLA MEÐ TUDOR TUDOR TUDOR Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta Veldu öruggt start me ð TUDOR Eitt mesta úrval landsins af rafgeymum í allar gerðir farartækja 25. apríl 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 120.23 120.81 120.52 Sterlingspund 156.37 157.13 156.75 Kanadadalur 89.85 90.37 90.11 Dönsk króna 18.109 18.215 18.162 Norsk króna 14.101 14.185 14.143 Sænsk króna 12.87 12.946 12.908 Svissn. franki 117.91 118.57 118.24 Japanskt jen 1.0742 1.0804 1.0773 SDR 166.68 167.68 167.18 Evra 135.22 135.98 135.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 165.893 Hrávöruverð Gull 1273.45 ($/únsa) Ál 1838.5 ($/tonn) LME Hráolía 74.38 ($/fatið) Brent ● Skeljungur hækkaði um 2,8% í Kaup- höll Íslands í gær. Hækkunin kom í kjöl- far tilkynningar þess efnis að 365 miðl- ar ehf. hefðu óskað eftir hluthafafundi í fyrirtækinu og stjórnarkjör fari þar fram. Nýlega keypti félagið ríflega 10% hlut í fyrirtækinu og segir í tilkynningu Skeljungs til Kauphallarinnar að 365 telji „vegna talsverðra breytinga sem orðið hafa í hluthafahópi félagsins ný- verið sé rétt að umboð stjórnar verði endurnýjað“. Eftir viðskiptin eru 365 miðlar stærsti hluthafi fyrirtækisins en þar á eftir kemur Gildi lífeyrissjóður með 9,2%. Hækkar í kjölfar beiðni um hluthafafund STUTT BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturh@mbl.is Alexander Haraldsson og Guðmund- ur Hlífar Ákason stofnuðu bílaleig- una Lotus Car Rental árið 2014, að- eins 19 ára gamlir en þá um vorið urðu þeir stúdentar frá Verzlunar- skólanum. Á þeim tímapunkti voru Alexander og Guðmundur komnir með leið á bókunum og vildu gera eitthvað nýtt. Þar hefst saga Lotus Car Rental sem í sumar verður með rúmlega 300 bíla í útleigu og nýjan flota en félagið skilaði rekstrarhagn- aði (EBITDA) upp á 184 milljónir króna í fyrra. Fyrirtækið er staðsett í Keflavík en þeir félagar hyggjast í haust hefja byggingu á 1.400 fer- metra húsi við Flugstöð Leifs Ei- ríkssonar fyrir starfsemina. Beyglaður bíll á uppboði „Þetta byrjaði þannig að við keyptum tvo bíla á uppboði, Volvo S60 og BMW 1. Fyrst ætluðum við bara að gera þá upp með smá hagn- aði en svo kom hugmyndin að bíla- leigunni. Það hafði verið mikil gróska í ferðamannageiranum og við hugsuðum einfaldlega með okkur: Af hverju ekki bara að prófa að leigja þá út? Ég hafði sjálfur nýlega keypt mér nýjan Volkswagen Up og Guðmundur átti einnig bíl,“ segir Al- exander í samtali við Morgunblaðið. Þeir félagar settu því upp einfalda Wordpress-síðu. „Hún var mjög frumstæð til að byrja með en það var alla vega hægt að bóka bíla og greiða fyrir þá,“ útskýrir Alexander og nefnir einnig að þeir hafi farið þá leið að auglýsa starfsemina á Google en sú leið hefur reynst þeim vel þar sem 80-90% af bókunum fyrirtækis- ins eru í dag gerðar beint í gegnum vefsíðu þeirra og kemst fyrirtækið því hjá því að greiða erlendum bók- unarsíðum umboðstekjur. Hinir ungu athafnamenn unnu langa vinnudaga á þessum tíma sem fóru ekki undir 12 tíma. Auðvitað var ekki um neitt helgarfrí að ræða. „Þetta var alveg svakalegt til að byrja með. Við byrjuðum í bílskúrn- um heima hjá Guðmundi í Safamýr- inni fyrstu sex mánuðina. Þetta var 25 fermetra bílskúr og svo þrifum við bílana úti á plani. Guðmundur er sveitastrákur frá Bakkafirði, hafði farið á sjó og kunni hitt og þetta. Þessi Volvo sem við keyptum á bíla- uppboðinu var svolítið klesstur en Guðmundur tók sig til og sprautaði hann bara í bílskúrnum, lagaði hann allan til og gerði flottan.“ Til að byrja með var bílaleigan hugsuð fyrir sparneytnari ferða- menn enda um gamla bíla að ræða. „Við höfðum ekki möguleika á því að fara tvítugir niður í banka og fá bílalán til þess að kaupa nýja bíla. Fyrstu tvö árin staðgreiddum við alla bíla sem við keyptum. Eldri bíla. Þá vorum við að stíla inn á sparneyt- inn kúnnahóp. Það var fínn mark- aður fyrir það og er enn í dag,“ segir Alexander. Lotus Car Rental hefur þó breyst frá þeim tíma og stækkað nokkuð ört. Í lok árs 2014 voru bílarnir orðnir 10 talsins. Sumarið 2015 voru þeir 40. Vorið 2016 komu svo fjár- festar inn í fyrirtækið með aukið fjármagn og fór bílaleigan þá í 90 bíla. Árið eftir var svo öllum eldri bílunum skipt út fyrir nýja og bíl- arnir orðnir 180. Í fyrra nam fjöld- inn 230 og í sumar stefna þeir fé- lagar að því að vera með rúmlega 300 bíla í útleigu. Ekki bara innantómur frasi „Þessum eldri bílum fylgir eins og gefur að skilja meira viðhald. Og þú þarft sjálfur að fylgjast voðalega vel með. Við ákváðum því að fara í nýja bíla og gera þetta að meira „high- end“ vörumerki þar sem við stílum meira inn á betur borgandi við- skiptavini,“ segir Alexander. En plássið er ekki endilega mikið fyrir nýja og lítt þekkta bílaleigu á markaðnum. Til að byrja með lögðu þeir félagar upp úr góðri þjónustu sem vissulega kann að hljóma eins og innantómur frasi. „Það þykjast allir veita góða þjón- ustu en það sem hefur almennt verið gallinn á bílaleigum eru þessi tjóna- mál,“ útskýrir Alexander. „Fólk er kannski að koma í frí, leigir bíl og þegar það skilar honum er mögulega einhver smá rispa. Þá á kannski að rukka þig um 100-200 þúsund krónur aukalega og ferða- lagið orðið ömurlegt,“ útskýrir Alex- ander og nefnir að þeir félagar hafi frá byrjun haft lægri sjálfsábyrgð en samkeppnisaðilarnir. Þá hafi þeir getað litið fram hjá smávægilegri hlutum í ljósi þess að flotinn þeirra var eldri. En nú þegar flotinn er orðinn nýrri hófu þeir að bjóða viðskiptavinum upp á trygg- ingu með engri sjálfsábyrgð. „Eftir að við gerðum þetta hafa aðrar bíla- leigur tekið þetta upp. Þetta er svo- lítið nýtt á markaðnum og hefur reynst vel,“ segir Alexander. Stofnuðu bílaleigu í bílskúr eftir menntó og eiga 300 bíla flota í dag Morgunblaðið/Eggert Bílaleiga Alexander Haraldsson og Guðmundur Hlífar Ákason stefna á að leigja 300 bíla út í sumar. Lotus Car Rental » Stofnað árið 2014 af Alex- ander Haraldssyni og Guð- mundi Hlífari Ákasyni. » Starfsemin hófst í bílskúr en fer í 1.400 fermetra húsnæði » Byrjuðu á því að leigja út fjóra bíla en flotinn mun nema rúmlega 300 bílum í sumar. » Skilaði 184 milljóna rekstr- arhagnaði í fyrra.  Lotus Car Rental var stofnað árið 2014 af tveimur 19 ára piltum beint eftir Verzlunarskólann ● Hagnaður bandaríska flugvélafram- leiðandans Boeing dróst saman um 13,2% á fyrsta ársfjórðungi frá fyrra ári og nam 2,1 milljarði Bandaríkjadala. Á ársfjórðungnum voru allar 737 MAX- þotur frá fyrirtækinu kyrrsettar í kjölfar tveggja flugslysa sem kostuðu fleiri hundruð farþega lífið. Tekjur Boeing drógust saman um 2% og voru 22,9 milljarðar dala enda engar 737 MAX-þotur afhentar undanfarnar vikur. Boeing hefur ákveðið að draga til baka fyrri spá um afkomu ársins og vís- ar til óvissu í tengslum við 737 MAX. Tíunda mars fórst farþegaþota Ethi- opian Airlines og í október þota Lion Air. Samanlagt létust 346 í þessum flugslysum. Unnið er að endurskoðun á sjálfstýrðum stjórnkerfum Boeing 737 MAX- þotunnar en vinna við end- urbætur á MCAS-kerfinu hófst í kjölfar flugslyss Lion Air-þotunnar. Boeing hef- ur farið í yfir 135 tilraunaflug á 737 MAX-þotum við endurskoðunina og starfar með alþjóðlegum eftirlitsaðilum og flugfélögum að endurbótum. Reuters Erfiðleikar Boeing hefur átt erfitt upp- dráttar að undanförnu vegna 737 MAX. Hagnaður Boeing dróst saman um 13,2%

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.