Morgunblaðið - 25.04.2019, Síða 31

Morgunblaðið - 25.04.2019, Síða 31
FRÉTTIR 31Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2019 SJÓNMÆLINGAR ERU OKKAR FAG Tímapantanir: Optical Studio í Leifsstöð, 4250500 Optical Studio í Smáralind, 5288500 Optical Studio í Keflavík, 4213811 Kim Jong-un, leiðtogi norðurkór- esku einræðisstjórnarinnar, kvaðst í gær hlakka til fyrsta fundar síns með Vladimír Pútín Rússlands- forseta sem fer fram í borginni Vla- divostok í suðausturhluta landsins í dag. Þetta er fyrsti fundur Kims með öðrum þjóðhöfðingja eftir að við- ræðum hans við Donald Trump Bandaríkjaforseta í Hanoi í febrúar lauk án þess að samkomulag næðist um kjarnorkuvopn Norður-Kóreu. Fréttaskýrendur telja að viðræð- urnar við Pútín séu liður í til- raunum Kims til að auka stuðning- inn við kröfu Norður-Kóreu- stjórnar um að refsiaðgerðum gegn henni verði aflétt. Stjórnvöld í Moskvu voru mikil- vægir bandamenn einræðisherr- anna í Norður-Kóreu í áratugi eftir að afi Kims, Kim Il-sung, komst til valda þar með stuðningi Sovét- manna árið 1948. Stjórnvöld í Sov- étríkjunum drógu úr stuðningnum við Norður-Kóreustjórn á níunda áratug aldarinnar sem leið þegar þau sóttust eftir sáttum við Suður- Kóreumenn. Pútín reyndi að bæta tengslin við einræðisstjórnina í Pjongjang skömmu eftir að hann var fyrst kjörinn forseti Rússlands og átti þrisvar fundi með Kim Jong- il, föður núverandi einræðisherra. Fyrsti fundurinn var haldinn í Pjongjang árið 2000 þegar Pútín varð fyrsti rússneski leiðtoginn til að heimsækja einræðisríkið. AFP Heimsókn Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, gengur framhjá heiðursverði við móttökuathöfn í Vladivostok. Fyrsti fundur Kims og Pútíns Stokkhólmi. AFP. | Slökkviliðsmenn í Svíþjóð og Noregi reyndu í gær að slökkva skógarelda sem urðu til þess hundruð manna þurftu að flýja heimili sín um tíma. Tíu eldanna í Svíþjóð voru álitnir alvarlegir, að sögn almannavarnastofnunar lands- ins. Metþurrkar voru í Svíþjóð síðasta sumar þegar alls um 25.000 hektarar skóglendis urðu eldum að bráð, nær tíu sinnum stærra svæði en í meðal- ári. Almannavarnastofnunin sagði að Svíar væru miklu betur í stakk búnir til að takast á við slíka elda vegna þess að ráðstafanir hefðu ver- ið gerðar til að efla slökkviliðið, m.a. með því að fjölga þyrlum. Samtök sænskra slökkviliðsmanna hafa þó sagt að fjölga þurfi þeim meira til að tryggja að nægur mannafli sé til að takast á við skógarelda á sumrin. Átta þyrlur voru notaðar í gær til að slökkva skógarelda í suðurhluta Svíþjóðar og slökkviliðsmönnum tókst að stöðva útbreiðslu þeirra. Stærsti eldurinn kviknaði í grennd við sveitarfélagið Hässleholm á Skáni þar sem 300 hektarar skóg- lendis brunnu og 49 manns þurftu að flýja heimili sín. Yfirvöld telja að flestir skógareldanna hafi kviknað af mannavöldum, annaðhvort vegna grillsteikingar utandyra eða tækja sem notuð eru í skógarhöggi. Óvenjuhlýtt og þurrkasamt vor Óvenjuhlýtt og þurrkasamt hefur verið í sunnanverðri Svíþjóð í vor og talin er hætta á fleiri skógareldum næstu daga. Hundruð hektara skóglendis eyði- lögðust einnig í Noregi í gær og fyrradag. Slökkviliðsmönnum tókst að slökkva stærsta eldinn að mestu í suðvesturhluta landsins þar sem um 700 hektarar brunnu í grennd við sveitarfélagið Sokndal. Um 150 heimili voru rýmd en allir íbúarnir gátu snúið aftur heim til sín í gær. Alls tóku 150 slökkviliðsmenn og sex þyrlur þátt í slökkvistarfinu. Ingvil Smines Tybring-Gjedde, sem fer með almannaöryggi í norsku stjórninni, sagði í útvarpsviðtali að norsk yfirvöld hefðu dregið lærdóm af skógareldunum á síðasta ári og séð til þess að slökkviliðið hefði alltaf nægan mannafla og þyrlur til að tak- ast á við slíka elda í sumar. Hundruð manna flúðu skógarelda  Þurrkatíð í Suður-Svíþjóð og Noregi AFP Skógareldur Reykur frá eldi í grennd við Sokndal í Noregi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.