Morgunblaðið - 25.04.2019, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 25.04.2019, Qupperneq 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2019 Fyrsta viðkynn- ing flestra okkar af Steina var í byrjun árs 2004 er hópur stráka ákvað að fara til Túnis í golfferð. Í þessari ferð varð til hópur sem kallaði sig Kónga og Gosa og eftir þetta var Steini hjartakóngur í okkar hópi. Þessi fimmtán ár hafa gefið okkur öll- um margar einstakar og skemmtilegar stundir, mikið golf, innanlands sem utan, fullt af mat og drykk og miklar umræður um lífið, tilveruna og kannski pínu pólitík. Steini var einn af þessum drengjum sem alltaf var gaman að vera í kringum, mætti þér með bros á vör og þéttu faðmlagi, tal- aði hátt og skýrt en hafði þessa nærveru að manni leið vel í kring- um hann. Steini naut lífsins og kunni að fá okkur hina til að gera það líka. Keppnisskapinu var nóg af og margar stórar sveiflur tekn- ar til að vinna sinn leik. Við kveðjum núna með söknuð í hjarta, allt of snemma þennan vin okkar og félaga. Kæra Ágústa, Daði og Óttar og fjölskylda, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Gosar, Halldór Þórðarson, Örn Andresson, Filippus Gunnar Árnason, Ellert Schram, Kristján Gíslason. Nú þegar styttist í enn eitt golfsumarið og undirbúningur að hefjast með æfingum hér heima og golfferðum erlendis þá barst sorgarfrétt um skyndilegt og ótímabært fráfall vinar míns Þor- steins Snædal. Sagt var við mig að hann hefði hreinlega ekki ver- ið búinn að fá leyfi til að fara frá okkur og sýnir það hvað hann hafði góð áhrif á vina- og kunn- ingjahóp sinn sem var fjöl- mennur. Kynni okkar Þorsteins hófust í gegnum Knattspyrnufélagið Þrótt, en þar var hann ásamt Ólafi Morthens í forystu fyrir barna- og unglingastarfi félags- ins. Síðan voru þeir í stjórn knattspyrnudeildar í eitt ár og skiluðu af sér haustið 1999. Í framhaldi af því tókst með okkur og mökum okkar mikil vinátta og farið var í margar borgarferðir og síðar golfferðir eftir að ég og makar okkar tókum upp þá iðju. Golfið hefur verið mikil áhrifa- valdur í lífi okkar frá því við kynntumst og árið 2003 var stofnaður lítill golfselskapur 12 manna undir nafninu Teygar fyr- ir ferð til Englands og þessi hóp- ur starfar enn í dag og nýtur golfs bæði hér heima og erlendis. Þorsteinn var án vafa hrókur alls fagnaðar í þessum hópi, enda var samvera með honum alltaf upp- lífgandi, skemmtileg og mann- bætandi. Það er mikil sorg og söknuður í þessum hópi nú við fráfall hans. Þorsteinn var frændrækinn og stoltur af uppruna sínum úr Jökuldalnum, enda held ég að hann hafi bundið fólk saman en ekki sundrað með einstakri nær- veru og gestrisni. Hann og Einar Sveinsson leiddu þannig hóp saman og bjuggu til ógleyman- lega samveru fólks í matarboði hjá Þorsteini og Ágústu á aðvent- unni. Slík augnablik rifjast nú upp og með þakklæti frá þeim sem þar hafa notið gestrisni. Þorsteinn var gæfumaður í fjölskyldulífi, giftur einstakri konu, henni Ágústu, og þau um- kringd sonunum og fjölskyldum þeirra. Þorsteinn Snædal ✝ ÞorsteinnSnædal fædd- ist 11. febrúar 1953. Hann lést 7. apríl 2019. Útför Þorsteins fór fram 24. apríl 2019. Við leiðarlok þökkum við Dagný og fjölskylda Þor- steini fyrir vináttu og samleið, sem því miður var alltof stutt. Elsku Ágústa, synir, Óttar og Daði og fjölskyldur, miss- ir ykkar er mikill og sár og vinir syrgja, en minningin um einstakan mann mun lifa. Tryggvi og Dagný. Strákar, heyriði mig. Ég skal sjá um grillið, tilkynnti Steini með sinni glaðlegu og hrjúfu rödd. Það er mitt sérsvið. Iðu- lega fylgdi síðan með lauflétt saga, sem hann flutti á sinn ein- staka og litríka hátt. Undanfarin ár höfum við nokkrir strákar í félagi farið í Flatey á Breiðafirði á vorin og dvalið í nokkra daga, siglt um fjörðinn, brölt um fjörur og eyjar, skoðað fugla, tínt egg, borðað góðan mat og notið sam- vista hver við annan. Steini naut sín vel í þessu umhverfi, ávallt glaður og skrafhreifinn. Við vorum farnir að leggja drög að næstu ferð þegar okkur barst sú sorgarfregn að Þor- steinn Snædal hefði orðið bráð- kvaddur. Nú verður þóftan hans í bátnum tóm. Það verður ekki sama andrúmsloftið hjá eggja- hópnum þegar við mætum í Klausturhóla í vor. Þorsteinn skilur eftir sig skarð sem ekki verður fyllt. Eiginkonu, börnum og ástvin- um öllum sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Minning um góðan mann mun lifa. Fyrir hönd Eggjahópsins, Kristinn H. Þorsteinsson. Þá heyri ég þrumur í lofti fara gjarnan um mig ónot þó svo ég viti að þruman sé eftirfari ljóss eða eldingar sem olli. Þrumu sem skall á mér sunnudaginn 7. apríl þegar hringir til mín Ágústa þessi yndislega eigin- kona Þorsteins Snædals og segir mér hann látinn. Það olli mér verulegum ónotum, en skynjaði þó strax að undanfari þessarar þrumu var líka ljós – snæljós. Á Reykholtsskóla í Borgar- firði kynnist ég dreng frá Skjöld- ólfsstöðum á Jökuldal, Þorkeli Snædal. Var hann borðfélagi minn vetur allan og féllu hugir okkar allvel saman. Nokkrum árum síðar kynnist ég bróður hans, Þorsteini Snædal, sem þá er tengiliður fyrirtækis míns við tryggingafélagið VÍS, en þar starfaði Steini stóran hluta starfsævinnar. Okkur Steina samdi strax vel og vinátta varð snemma, kannski að hluta vegna fyrri tengsla minna við bróður hans. Steini Snæ var hvers manns hugljúfi og ber um það öllum saman. Hvar sem hann kom eða fór var öllum ljóst að þarna var á ferð skemmtilegur maður, léttur í lund, fróður, vís og hrókur alls fagnaðar. Hann þekkti ekki bara Jökul- dælinga heldur og líka fræga fólkið hvar sem það var eða fór. Ég naut þess að eiga Þorstein að vini, ganga með honum til rjúpna til að afla jólamatarins, eins og við báðir höfðum alist upp við, ýmist upp á heiðar hér syðra eða í Jökulsárhlíð upp frá Hótel Svartaskógi, hvar við dvöldum í skjóli Svarta-Bensa sem lék fyrir okkur á harmon- ikku og söng svo glumdi í Jökuls- árhlíðum og hömrum. Hjá Þorsteini stóð alltaf svo margt til með fjölskyldunni, golf- félögum eða vinum og nú er svo komið að við verðum öll að end- urskoða plönin. En ef ég þekkti Þorstein rétt þá mun hann aldrei yfirgefa okkur sem unnum hon- um. Hann mun finna leiðir til að minna okkur á sig og trúa mín er sú að þessi maður muni aldrei gleymast. Ég var vitni að fallegu hjóna- bandi Þorsteins sem ég geri að minni fyrirmynd. Ágústa Axels- dóttir og niðjar ykkar, megið þið um alla framtíð njóta þess að Þorsteinn Snædal var hluti af ykkur. Kannski sá hluti sem verður að ykkar farsæld. Megi hans lengi minnst. Magnús Víkingur Grímsson. Þorsteinn Snædal var einstak- ur gleðigjafi á alla lund og vin- margur. Ekki við öðru að búast. Hjartahlýjan, ræktarsemin við alla sína og eðlislæg gjafmildin blasti við þeim sem kynntust honum. Við vorum lánsöm og höfum lengi notið vináttu þeirra hjóna, hans og stóru ástarinnar hans hennar Ágústu. Í minning- unni eru margar góðar vin- astundir á golfvöllum innanlands og utan, önnur útivist og sam- vistir þar sem sönn vinátta og gleði ríkti. Steini og Ágústa voru höfð- ingjar heim að sækja, listakokk- ar bæði tvö og samrýnd í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur. Steini var ástríðumaður. Hann var veiðimaður góður, tók golfíþróttina föstum tökum á seinni árum, var fjölfróður í bók- menntum og mikill áhugamaður um myndlist. Betri íslenskumað- ur var hann heldur en margur langskólagengnari enda víðles- inn og fróður. Steini var hrókur alls fagnað- ar, hvar sem hann kom. Sögu- maður frábær, eftirherma góð og minnugur á hið skondna í til- verunni. Kímnigáfa hans var þessi af hlýju gerðinni og þó hann gæti verið stríðinn í tali ef svo bar við var það allt innan marka góðsemi og velvildar í garð allra viðmælenda. Frjáls- lyndur hægrimaður í pólitík og óhræddur að viðra skoðanir sín- ar á þeim vettvangi. Það hefur verið gæfa okkar að fá að vera samferðamenn þeirra Ágústu í svo mörg ár. Fyrir þeirra tilstilli höfum við jafn- framt eignast fleiri góða vini. Það er ótrúlegt áfall fyrir ynd- islega fjölskylduna og nána vini þegar svo gott hjarta bregst svo skyndilega þegar enginn átti sér ills von. Að elsku Steini skuli ekki lengur vera meðal okkar er bara óskiljanlegt og breytir heimsmyndinni. Samúð okkar með hans nán- ustu er óendanleg. Blessuð sé minning Þorsteins Snædal. Signý Pálsdóttir og Árni Möller. Tilvera okkar í þessari veröld er undarlegt ferðalag og ómögu- legt að sjá fyrir hvað dagur hver kann að bera í skauti sér. Þrátt fyrir þessa staðreynd lífsins átti ég engan veginn von á því að fá þær fréttir að Þorsteinn Snædal, vinur minn og vinnufélagi til margra ára, væri farinn yfir móðuna miklu langt fyrir aldur fram. Við kynntumst fyrst árið 1993 þegar við sátum bæði á skólabekk í gamla Trygginga- skólanum. Vinátta okkar efldist með ári hverju og það voru ansi margir kaffibollar sem við drukkum saman þegar færi gafst. Það sem ég kunni best að meta við Steina var hve hreinn og beinn hann var og hvorki til í honum fals né flaður. Það var aldrei lognmolla í kringum hann því fjörugar samræður og litrík- ar frásagnir hans höfðu mikið aðdráttarafl. Það var svo gaman að spjalla við Steina því að hann vissi ýmislegt og hafði upplifað svo margt. Sögurnar höfðu mik- inn sjarma og hann sagði svo skemmtilega frá. Ég sé hann ljóslifandi fyrir mér að segja frá einhverju, hlæjandi dátt á milli þess sem sagði frá einhverju sem hann hafði upplifað á sinni litríku ævi. Hann lagði gjarnan áherslu á orð sín með djúpum digur- barkalegum rómi og handa- hreyfingum. Við ræddum oft landsmálin því við vorum sam- herjar í pólitíkinni. Ekki vorum við þó alltaf sam- mála en það mátti alveg segja sína skoðun og Steini var alveg til í að rökræða ef honum þótti það rökræðunnar virði. Ég var ekki flokksbundin en það þótti honum ómögulegt og dag einn bauðst hann til að fara með mig niður í Valhöll og aðstoða mig við að skrá mig í flokkinn. Ég tók því boði. Þorsteinn var mikill víngæð- ingur og spænsk rauðvín voru í miklu uppáhaldi hjá honum. Við tókum okkur saman nokkrir rauðvíns-elskandi félagar í VÍS og stofnuðum lúxus-rauðvíns- happadrættisklúbb og að sjálf- sögðu var Steini stofnfélagi. Þar var ekki var leyfilegt að leggja inn eitthvert ódýrt sull. Frábær félagsskapur sem hélt árlega árshátíð á meðan klúbburinn starfaði. Því miður lagðist hann af fyrir nokkrum árum vegna ýmissa breytinga. Það eru ekki nema örfáar vikur síðan við hittumst öll í lúxus-rauðvínsklúbbnum okkar og nutum góðra veiga heima hjá Steina þar sem hann lék á als oddi. Gestgjafahlut- verkið var honum eðlislægt og hann var alveg í essinu sínu þetta kvöld, klæddur fjólubláum fötum sem hann var alveg viss um að væru rauð. Það er ekki hægt annað en að brosa að því núna því það fór mikill tími í að sannfæra hann um að þetta væri fjólublátt en ekki rautt. Mikið er ég þakklát fyrir að við létum verða af þessum endurfundi klúbbsins okkar því að þá fengum við að faðma kall- inn og knúsa, að sjálfsögðu grun- laus um að samverustund okkar yrði sú síðasta í þessu jarðríki. Fráfall Steina skilur eftir sig stórt skarð sem seint verður fyllt. Honum vil ég þakka vináttu og góðar stundir. Söknuðurinn er mikill en minning um litríkan góðan mann stendur eftir. Kæra Ágústa og fjölskylda, sorg ykkar er mikil og ég bið góðan Guð um að veita ykkur styrk til að komast yfir þennan erfiða missi. Innilegar samúðar- kveðjur. Ingibjörg Ólafsdóttir. Við viljum með fáeinum orð- um kveðja góðan vin og vinnu- félaga til margra ára, hann Steina Snæ, eins og hann var venjulega kallaður. Þorsteinn vann lengi í sölu- deild VÍS og var þekking hans á vátryggingum eftirtektarverð og öðrum til eftirbreytni. Það eru forréttindi að hafa kynnst og starfað með slíkum manni, sem kom öllum í gott skap með glaðværð sinni og skemmtilegum sögum. Frásagnarlist var honum í blóð borin, og til marks um það þá gat hann átt það til að segja sömu söguna oft, með einhverju millibili, en alltaf vakti það jafn- mikla kátínu viðstaddra. Hann sá jafnan jákvæðu og spaugilegu hlið málanna og hafði þannig góð áhrif á vinnumóral- inn og var alltaf miðdepillinn í öllum samkvæmum. Steini var félagslyndur í meira lagi, vinamargur og höfð- ingi heim að sækja. Traustur fé- lagi sem verður sárt saknað af þeim mörgu sem kynntust hon- um á lífsleiðinni. Við félagarnir hittumst síðast í janúar, og var þá glatt á hjalla og Steini hrókur alls fagnaðar. Hittingur var skipulagður með vorinu á heimavelli Steina og Ágústu og Steini sjálfskipaður nefndarmaður. Minning um góð- an dreng lifir, hvíl í friði, elsku vinur. Við sendum Ágústu, Daða, Óttari og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Bjarki Þór Atlason, Guðmundur Ólafsson, Guðni Þór Jónsson, Hafsteinn Ragnarsson, Jón Einarsson, Ólafur Jón Ásgeirsson. Þorsteinn Snædal var ákaf- lega skemmtilegur maður. Flest varð skemmtilegra þegar hann var með. Golfhringurinn var skemmtilegri af því hann var í hollinu. Ferðin til útlanda var skemmtilegri af því Steini var með. Árshátíðin var skemmti- legri af því hann var við borðið. Þorsteinn sagði líka betur frá en flestir aðrir. Það var sama hvort sagan var frá Svíþjóð eða úr heimasveitinni, alltaf voru sög- urnar góðar og ekki var Þor- steinn að láta nákvæmnina eyði- leggja góða sögu. Það var líka allt stórt við Steina. Þegar þau Ágústa buðu í mat var það ekki hamborgari sem fór á grillið, aldeilis ekki. Kannski kræklingur í forrétt, svo kom foie gras og jafnvel hreindýr í aðalrétt og að lokum góður desert. Svo var ekkert sull drukkið með heldur góður bolti sem Steini hafði fundið á „hag- stæðu verði“. Sögurnar voru stórar, fögnuðurinn var mikill þegar vel gekk og gleðin fölskva- laus. Þorsteinn var óttalegt íhald og ég ráfaði á hinum vængnum en það truflaði Steina ekki hæt- ishót. Lífið er allt of skemmtilegt til að slíkt þvældist fyrir. Þor- steinn var ekki í vandræðum með að halda samræðum gang- andi án þess að dægurþrasið tæki yfir. Hann ræddi það bara við hina vinahópana sem deildu með honum sýn á samfélagið. Maður eins og Þorsteinn Snæ- dal skilur eftir sig stórt skarð og við hjónin munum sakna hans. Söknuður okkar og missir blikn- ar þó í samanburði við missi nán- ustu aðstandenda. Við slíkan missi verða orð fátækleg og von- andi hjálpa minningar um góðan dreng, sem fór allt of snemma, nánustu aðstandendum við að komast yfir erfiðasta hjallann. En Þorsteinn mun ekki gleym- ast. Hver myndi líka vilja gleyma manni eins og Þorsteini Snædal? Kristinn Þorsteinsson. Sunnudagurinn 7. apríl hverf- ur mér seint úr minni, um kvöld- matarleytið fékk ég hringingu og var mér tilkynnt að góður vinur minn til þrjátíu ára, Þorsteinn Snædal, hefði látist fyrr um dag- inn. Það var mjög erfitt að trúa þessum sorglegu fréttum, þar sem við Þorsteinn höfðum ásamt tveimur vinum okkar verið að spila golf austur í Þorlákshöfn daginn áður. Allir glaðir og kátir. Þorsteinn og Árni unnu okkur Inga og settumst við félagar í golfhúsið eftir golfið og fengu þeir sigurlaunin, sem ávallt eru ein krús af bjór fyrir sigurinn. Við vorum kátir að vanda og mikið var hlegið, ræddum vænt- anlega golfferð sem við hlökkuð- um mikið til, en við ætluðum að fara til Póllands í páskafríinu með spúsum okkar. Kynni okkar Steina hófust í sambandi við leik og starf fyrir Knattspyrnufélagið Þrótt þar sem við kynntumst í gegnum fót- boltaiðkun drengja okkar. Við Steini tókum að okkur, ásamt öðrum, að stýra unglingastarfi Þróttar og það voru mjög gef- andi og skemmtileg ár. Steini var mjög öflugur í þessu starfi og vinsæll á meðal foreldra sem og krakkanna. Alltaf hvetjandi, og ekki síður kátur og glaður, en samt fastur fyrir. Við ferðuð- umst víða um landið með krökk- unum, t.d. til Vestmannaeyja, Akureyrar og fleiri staða. Síðar tókum við að okkur stjórn knatt- spyrnudeildar Þróttar í tvö ár og var það mjög krefjandi viðfangs- efni, sem ég fullyrði að við klár- uðum ágætlega. Í gegnum starf- ið í Þrótti kynntumst við hjónin mjög skemmtilegu fólki sem enn í dag er góðir vinir okkar. Það var margt brallað á þess- um þrjátíu árum hjá vinahópn- um; borgarferðir til útlanda, golfferðir innanlands og er- lendis, veiðiferðir, sumar- bústaðaferðir og margt fleira. Ef ég ætti að lýsa Steina í fá- einum orðum þá var hann mjög flottur á velli, mjög skemmtileg- ur og það gustaði alltaf af hon- um. Traustur vinur og ekki síst vel gefinn og með mjög góða frá- sagnargáfu. Okkur Unni þykir mjög vænt um þá vináttu sem við höfum átt með Steina og Ágústu í gegnum árin og höfum við kynnst fullt af góðu fólki í gegn- um þau, enda eru þau umkringd skemmtilegu fólki. Börnin okk- ar, Guðrún, Þorbjörg og Ólafur Páll, hafa einnig misst góðan vin, Steina var alltaf umhugað um velferð þeirra og þeirra fólks. Ég get ekki sleppt því að minnast á hið árlega jólahlað- borð sem hefur verið haldið til margra ára í desember á þeirra fallega heimili á Grettisgötu. Þar hafa Steini og Ágústa, ásamt þeirra góða vini Einari Sveins- syni, galdrað fram þvílíkar veit- ingar og borðhaldið staðið yfir í margar klukkustundir, margir gestir og fjörugir. Nú hefur Steini kvatt okkur og skarð hans verður erfitt að fylla. Ég er hræddur um að golf- ið hjá okkur félögunum verði ekki eins og áður að Steina fjar- verandi en ég er viss um að hann verður með okkur í anda og allt- af minnisstæður. Við Unnur mín og börn og fjölskyldur viljum senda Ágústu, Daða, Óttari og þeirra fjölskyld- um okkar innilegustu samúðar- kveðjur á þessum erfiðu tímum í þeirra lífi. Minning Steina mun ávallt lifa – takk fyrir okkur. Ólafur Morthens. Ég kynntist Þorsteini Snædal fyrir mörgum árum þegar við störfuðum saman í nokkur ár sem sölumenn hjá Alþjóða líf- tryggingafélaginu hf. Það var skemmtilegur tími í góðum hópi sölumanna og þar var Steini áberandi og kraftmikill karakt- er. Það var líka einkennandi fyr- ir Steina hvað hann var frábær í að segja sögur frá ýmsum at- burðum og þegar við sölumenn tókum pásur þá var gjarnan far- ið inn á kaffistofu til að hlýða á „eina góða“ sögu frá Steina. Seinna skilur leiðir, Steini ræður sig til starfa hjá VÍS og ég fer í nám. Fyrir tæpum tveimur árum liggja leiðir okkar saman að nýju þegar Steini hóf störf hjá Nýju vátryggingaþjónustunni. Hann smellpassaði strax inn í okkar litla hóp gamalreyndra trygg- ingasölumanna og það var virki- lega gaman að rifja upp gömul kynni. Að hafa umgengist Steina á hverjum degi nú í tæp tvö ár hef- ur verið skemmtilegt og gefandi og fyrir það er ég afskaplega þakklátur. Það var því talsvert áfall í okkar litla hópi að fá frétt- ir af skyndilegu fráfalli hans og það hefur verið tómlegt á skrif- stofunni undanfarna daga án Steina, enda bar hann ávallt með sér skemmtilegan anda. Þor- steinn Snædal var mikill höfðingi og minning hans mun svo sann- arlega lifa í hjörtum okkar allra. Ágústu og fjölskyldu hans votta ég mína dýpstu samúð. Ómar Einarsson. Það er myrkur í sál minni, frændi. Þó við værum að gantast með það viku áður en þú kvaddir að við mundum halda undir hornið hvor hjá öðrum þegar við færum, þá lá ekkert á. Við áttum eftir að gera svo margt saman, núna þegar eftirlaunaaldurinn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.