Morgunblaðið - 25.04.2019, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2019
Þóra Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Hrærivél
Drottning allra
brúðargjafa er hin
eina sanna KitchenA-
id-hrærivél. Það er
ástæða fyrir því að
þessi elska hefur
trónað á toppnum á
brúðargjafalistum
síðastliðna áratugi og
gerir enn.
Lita- og auka-
hlutaúrvalið hefur
aldrei verið meira.
Vinsælast er að gefa
klassíska liti á borð
við svarta, hvíta eða
gráa vél en það má þó
ekki útiloka hressari litina þar sem ekki er óalgengt að fólk
skipti á vélum á þar til gerðum skiptisíðum og njóti þess að upp-
lifa nokkra liti af hrærivélum í gegnum ævina.
Verð frá 85.900 kr.
Steypujárnspottur með 30 ára ábyrgð
Frönsku snillingarnir
hjá Le Creuset vita svo
sannarlega hvernig á að
gera potta. Það er því
ekki að undra að pottarnir
eru meðal þeirra vinsæl-
ustu í heimi og svo fallegir
að þeir sóma sér vel á
hvaða borði sem er og
virka á öllum tegundum af
hellum. Pottarnir mega
fara í bakarofn og á grill
og henta sérstaklega vel
til hægeldunar.
Steypujárnssnúllurnar
koma í öllum stærðum og gerðum. Svarti matti liturinn er sér-
staklega vinsæll um þessar mundir sem og nýi liturinn chiffon
pink.
Verð frá 27.995 kr.
KitchenAid-sódavatnstæki
Fullkomin gjöf handa umhverfissinnuðum heilsupörum. Tækið gerir allt
að 60 lítra af gosdrykk, t.d. sódavatni, með hverjum kolsýrukút. Minna plast
og burður úr búðinni auk sparnaðar. Algjör snilld. Fæst í nokkrum litum.
Verð 49.990 kr.
Flippskál
Ef brúðkaupshjónin eiga nú þegar
hrærivél eða fá hana að gjöf er gaman
að eiga aukaskál. Bæði er það prakt-
ískt og skemmtilegt að geta sett
flippskálina upp til að hressa upp á eld-
húsið.
Kitchenaid-hrærivélarskál. Verð 14.990
kr.
Holmegard-vasi
Gullfallegur og tímalaus vasi úr
munnblásnu gleri. Vasinn er 34 cm.
Ekki er verra að setja nokkrar greinar
eða blóm í vasann svo hann er strax orð-
inn senuþjófur á gjafaborðinu.
Verð 35.990 kr.
Kay Bojesen-fuglar
Kay Bojesen-tréfuglarnir eru
ákaflega fallegir og koma bæði stakir
og sem par sem nefnist ástarfuglar.
Stöku fuglarnir eru stærri og fást í
ýmsum litum en hver litur hefur sitt
nafn.
Verð 10.650 krónur stakur stærri
fugl en ástarparið er á 14.500 krónur.
Georg Jensen-
damaskrúmföt
Hveitibrauðsdagarnir
verða án efa ljúfir í þessum
guðdómlegu rúmfötum frá
Georg Jensen Damask. Góð
rúmföt eru svo sannarlega
ávísun á vellíðan.
Verð 29.990 kr. settið.
KitchenAid-töfrasproti
Sprotinn góði kemur í tösku með öllum mögulegum fylgi-
hlutum. Góður töfrasproti er gulls ígildi hvort sem á að þeyta,
mylja, mauka, saxa eða hræra.
Verð 27.995 krónur.
Blomst-matarstellið
Blomst stell frá Royal Co-
penhagen kostar skildinginn
en það má vel blanda því sam-
an við hvítt ódýrara stell og
því gerir ekkert til þótt ekki
séu til nema nokkrir hlutir til
að byrja með. Til dæmis kem-
ur mjög vel út að blanda
köku/forréttadiskum saman
við hvíta matardiska.
Verð frá 9.590 krónum.
Georg Jensen-
vasar
Cafu línan frá
Georg Jensen inni-
heldur tímalaus
djásn. Í línunni er að
finna vasa, kerta-
stjaka og skálar úr
gleri og ryðfríu stáli.
Verð frá 7.790 til
27.950 króna.
Tobba velur tíu brúðargjafir
Almennt er talað um að það taki heilt ár að undirbúa almennilegt brúðkaup en eitt af því sem skiptir töluverðu máli er gjafalistinn
góði því það er til siðs að mæta með gjöf á slíkar gleðisamkomur. Þá er eins gott að vera með á hreinu hvað vantar í búið svo að
gestirnir kaupi ekki bara eitthvað. Hin eina sanna Tobba tók saman það sem við köllum skotheldan brúðargjafalista sem inniheldur
gripi sem ættu að endast brúðhjónunum um aldur og ævi.
Morgunblaðið/Íris Ann Sigurðardóttir
Fagurkeri Hin geðþekka og ofur smekklega Tobba Mar-
ínósdóttir.
Fallegar vörur fyrir falleg heimili
Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 11-15
Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi