Morgunblaðið - 25.04.2019, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 25.04.2019, Blaðsíða 50
50 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2019 Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is FÁST Í BYGGINGA- VÖRUVERSLUNUM Bestu undirstöðurnar fyrir SÓLPALLINN – SUMARHÚSIÐ – GIRÐINGUNA DVERGARNIR R Frábær hönnun, styrkur og léttleiki tryggja betri undirstöðu og festu í jarðvegi. Skoðið nýjuheimasíðuna islandshus.is 40 ára Halldór er Akureyringur en býr í Garðabæ. Hann er BS í tölvunarfræði og M.ed. í stærðfræði frá HR. Frá 2006 hefur hann kennt forritun, tölvugreinar og stærðfræði við Verzlunarskóla Íslands. Maki: Guðrún Sigríður Pálsdóttir, f. 1985, kennari við Sjálandsskóla. Börn: Arnar Páll, f. 2007, Sigurjón Kári, f. 2012, og Halldór Bragi, f. 2014. Foreldrar: Kári Gíslason, f. 1956, fv. sjómaður, bús. á Akureyri, og Hafdís M. Magnúsdóttir, f. 1961, leikskóla- kennari. Stjúpfaðir er Bragi Ingimars- son, f. 1957, kerfisstjóri hjá Þekkingu. Hafdís og Bragi eru bús. í Garðabæ. Halldór Ingi Kárason Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Rannsóknir þínar leiða margt ánægjulegt í ljós. Vertu á verði því það eru miklar líkur á einhverju óvæntu úr óvæntri átt. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ert í forgangi. Eitthvað sem virðist meinlaust í litlum skömmtum á samt eftir að leiða til glötunar ef þú passar ekki upp á þig. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þig langar til að eyða peningum í dag. Ekki horfa um öxl, það er fylgst með þér. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Gefðu þér tíma til þess að leyfa sköpunargáfunni að njóta sín jafnvel þótt annað verði að sitja á hakanum á meðan. Allir hafa gott af því að víkka út sjóndeild- arhring sinn. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Leystu vandamál í ástarsambandi. Taktu ábyrgð á þér áður en það verður of seint. Settu skýrar línur um það hvað þú ert tilbúin/n til að gera og hvað ekki. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er óþarfi að ríghalda í hluti sem þú hefur litla eða enga þörf fyrir. Æ sér gjöf til gjalda. 23. sept. - 22. okt.  Vog Nú verður þú að hrökkva eða stökkva því ekkert annað getur þokað málum þínum áfram. Þú lifnar við eins og náttúran. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er aldrei til góðs að eyða fé fyrirhyggjulaust, jafnvel þótt góðir tímar séu. Láttu ekki þrýsta þér til eins eða neins, heldur taktu þér tíma til að hugsa málin. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú þarft ekki að halda að fólk beini sjónum sínum að þér, ef þú nennir ekki að hafa fyrir því að vekja athygli þess. Tilraunastarfsemi getur af sér tekjur, nýja vini eða ný áhugamál. 22. des. - 19. janúar Steingeit Einhver þér eldri lumar á góðum ráðleggingum í dag. Reyndu að verja tím- anum til gönguferða eða hollrar útivistar. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Láttu ekki áhyggjur af framvindu mála á vinnustað sliga þig því þótt syrti í ál- inn birtir öll él upp um síðir. Reyndu að hlusta á það sem vinir hafa að segja. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú þarft að fara vel með þig því at- hugunarleysi getur leitt til þess að þú verðir að leggjast í rúmið. Leggðu allt kapp á að finna farsæla lausn í deilumáli svo þú getir sofið róleg/ur. Ó lafur Páll Gunnarsson fæddist 25. apríl 1969 á Akranesi og ólst þar upp. Fyrstu árin átti Óli Palli, eins og hann er ávallt kallaður, heima í Sigurhæð, húsi sem stóð við Bárugötu en hefur nú verið rifið, síðan fluttist fjölskyldan á efri hæðina í húsi á horni Skólabraut- ar og Vesturgötu, þar sem var bóka- búð Andrésar Níelsonar á þeirri neðri. Foreldrar hans byggðu sér síð- an hús á Víðigrund og þangað flutti Ólafur þegar hann var 11 ára. Hann var tvö sumur í sveit á Brekku í Skagafirði 1975 og 1976 og svo hluta úr sumri á Blesastöðum á Skeiðum hjá skyldfólki, 1977 og 1978. Óli Palli gekk í Barnaskóla Akra- ness, Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, Iðnskólann í Reykjavík og lauk sveinsprófi í rafeindavirkjun á haustönn 1990. Óli Palli hóf störf hjá RÚV sem tæknimaður í ársbyrjun 1991 og var það hans aðalstarf til ársins 1998. Árið 1991 tók Óli Palli að sér að stýra ein- um þætti af „Vinsældalista götunnar“ á Rás 2 í afleysingum. Hann ílengdist þar og sá um hann í nokkur ár. Árið 1995 fékk hann leyfi til þess að gera tvo þætti um Glastonbury-tónlistarhá- tíðina sem hann sótti sem gestur BBC þá um sumarið og um haustið fór Rokkland af stað og hefur verið í gangi síðan vikulega. Þeir þættir eru orðnir 1.140 talsins. Hann byrjaði síð- an með þáttinn Poppland árið 1998 sem er á hverjum virkum degi og eru þetta tveir langlífustu þættirnir á Rás 2. Frá 1991 hefur hann séð um alls kyns þætti í útvarpinu og líklega er enginn starfsmaður Rásar 2 sem á fleiri útsendingartíma að baki en hann. Hann var lengi tónlistarstjóri en er núna titlaður viðburðastjóri. Hann sá líka um sjónvarpsþáttinn Stúdíó A, en gerðar voru þrjár seríur af þeim þáttum. Óalfur hefur staðið fyrir ýmsum tónlistarviðburðum í gegnum tíðina og hefur verið kynnir á Músíktilraunum stanslaust frá 1996, kynnt þar á svið meira en 1.000 hljómsveitir. Hann hef- ur einnig margsinnis verið kynnir Tónaflóðs Rásar 2 á Menningarnótt en hann kom að því að Rás 2 yrði með dagskrá á Menningarnótt og að sjálf- sögðu var slegið í tónleika sem hafa verið haldnir á hverju ári frá 2003. Óli Palli hefur verið formaður Menningar- og safnanefndar á Akra- nesi síðan í fyrra og er einn af aðstand- endum tónlistarhátíðarinnar HEIMA í Hafnarfirði. Hann hlaut viðurkenningu Samtóns, sem nefnist Lítill fugl, á degi íslenskrar tónlistar 2012. Helstu áhugamál Óla Palla eru tón- list, útivera og fjölskyldan. Hann var í ýmsum hljómsveitum á Akranesi þeg- ar hann var yngri og var um tíma söngvari blúshljómsveitarinnar Magnús sem var húshljómsveit skemmtistaðarins Langisandur. Hann lét af hljómsveitarvafstri að mestu þegar hann flutti af Skaganum 1991 en er núna meðlimur í Fjallabræðr- um. Hann er aftur fluttur á Akranes með konu sinni og yngsta syninum. Flutti í húsið Sunnuhvol sem hann gerði upp frá a til ö og er eitt elsta húsið á Skaganum, byggt 1910, og stendur í hjarta bæjarins við Akra- torg. Fjölskylda Eiginkona Óla Palla er Stella María Arinbjargardóttir, f. 20.3. 1970. Móðir hennar var Arinbjörg Clausen Krist- insdóttir, f. 1.12. 1954, d. 28.1. 2015, vann við umönnun aldraðra og var bú- sett á Akranesi. Ólafur Páll Gunnarsson útvarpsmaður – 50 ára Við veiðar Óli Palli ásamt börnum sínum og dótturdóttur við sumarbústað fjölskyldunnar við Vesturhópsvatn. Málsvari íslenskrar tónlistar Hjónin Stella María og Óli Palli í hinu sögufræga hljóðveri, Abbey Road, við upptökur á hljómplötu Fjallabræðra sem fóru fram árið 2016. 30 ára Laufey er Akureyingur og hefur alla tíð búið þar. Hún er stúdent og sjúkraliði frá Verkmenntaskól- anum á Akureyri og vinnur á hjúkrunar- heimilinu Lögmanns- hlíð. Maki: Helgi Már Hafþórsson, f. 1986, raf- virki hjá Rafeyri. Stjúpsonur: Bjarki Stefán, f. 2009. Systkini: Valberg Már Öfjörð, hálfbróðir samfeðra, f. 1980, Valur Fannar, f. 1986, Inga Lísa, f. 1995, og Aldís Eir, f. 1997, Foreldrar: Sveinn Vernharð Stein- grímsson, f. 1956, bús. á Ólafsfirði, og Inga Arna Heimisdóttir, f. 1966, bús. á Ak- ureyri. Laufey Hansen Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.