Morgunblaðið - 25.04.2019, Blaðsíða 51
Börn Óla Palla og Stellu eru: 1)
Tinna María Ólafsdóttir, f. 17.9. 1992,
flugfreyja og nemi, bús. í Reykjavík.
Sambýlismaður: Valentin Fels Ca-
milleri þjálfari. Dóttir Tinnu er Stella
María, f. 26.7. 2018; 2) Ólafur Alex-
ander Ólafsson, f. 27.9. 1994, versl-
unarmaður og markaðsstjóri, bús. í
Reykjavík. Sambýliskona: Karitas
Lotta Tulinius nemi; 3) Sturlaugur
Hrafn Ólafsson, f. 12.6. 2009.
Systkini Óla Palla eru Böðvar
Gunnarsson, f. 21.5. 1973, verk-
efnastjóri, búsettur í Reykjavík; Jó-
hanna Guðrún Gunnarsdóttir, f. 7.11.
1975, hjúkrunarfræðingur, búsett á
Akranesi; Gunnar Gunnarsson, f.
13.2. 1985, tæknimaður og fleira, bú-
settur á Akranesi; Sturlaugur Agnar
Gunnarsson, f. 11.2. 1986, flugvirki,
búsettur í Reykjavík.
Foreldrar Óla Palla eru hjónin
Gunnar Ólafsson, f. 14.6. 1950, húsa-
smíðameistari og Rannveig Stur-
laugsdóttir, f. 27.4. 1954, versl-
unarmaður. Þau eru búsett á
Akranesi og hafa verið gift í 47 ár.
Ólafur Páll
Gunnarsson
Matthea Kristín Pálsdóttir Torp
húsfreyja og saumakona í Reykjavík
Christian Evald Torp
þjónn í Reykjavík
Rannveig Böðvarsson
húsfreyja á Akranesi
Sturlaugur H. Böðvarsson
útgerðarmaður á Akranesi
Rannveig Sturlaugsdóttir
verslunarmaður á Akranesi
Ingunn Sveinsdóttir
húsfreyja á Akranesi
Haraldur Böðvarsson
útgerðarmaður á Akranesi
Hannesína Sigurðardóttir
húsfreyja í Reykjavík
Jón Símonarson
bakarameistari í Reykjavík
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Ólafur Maríusson
kaupmaður í Herradeild P& Ó
Karólína Andrea Danielsen
húsfreyja í Reykjavík
Maríus Ólafsson
kaupmaður og heildsali í Reykjavík
Úr frændgarði Ólafs Páls Gunnarssonar
Gunnar Ólafsson
húsasmíðameistari á Akranesi
Afmælisbarnið Óli Palli.
DÆGRADVÖL 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2019
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena
undirfataverslun • Næg bílastæði
Frábært úrval af sundfötum
„ÞETTA GETUR ORÐIÐ NOKKUÐ SLÆMT
– SÉRSTAKLEGA EF ÞIG KITLAR.”
„ÓKEI, NÓG KOMIÐ! ENGA FLEIRI
TVENNDARLEIKI.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... framar öllum
væntingum.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ODDI, ÉG SVER AÐ ÞÚ HEFUR
HÆKKAÐ UM HEILT FET Í DAG!
VERTU KYRR!
ÞETTA VERÐUR
VONT!
GETURÐU GEFIÐ MÉR
EITTHVAÐ ÁÐUR EN ÉG
BYRJA AÐ ÖSKRA?
TAKK FYRIR ÁMINNINGUNA!
Því var spáð, að hitamet yrðislegið í dag, – sumardaginn
fyrsta. Annan í páskum skrifaði
Ingólfur Ómar í Leirinn: „Það er
orðið ansi vorlegt um að litast og
veðrið þennan fallega morgun er
með eindæmum gott og ég óska
öllum leirverjum gleðilegra
páska.“
Mild og fögur morgunstund
mínu geði svalar,
meðan sólin signir grund
og sunnangolan hjalar.
Um kvöldið svaraði Gústi Mar:
Þegar veðrið þreytir svig
þykknar á mér skelin.
Á Króknum núna koma á mig
kolsvört slydduélin.
Það var bjartara yfir Sigmundi
Benediktssyni, –hann sagðist
þekkja vel norðankalsann hjá
þeim fyrir norðan, en fyrsta sum-
ardegi væri spáð sólríkum um
land allt:
Þið sem slyddu unið í,
eigið þrengri skorður.
Senda reyni hugarhlý
heillaskeyti norður.
Þessum orðaskiptum lauk með
því að Ingólfur Ómar sagði: „Nú
er bara að kveða burt kuldann og
fagna vorinu.“
Grösin skreyta hól og hlíð
hugann sveitin laðar.
Geislum heitum glóey fríð
gróðurreitinn baðar.
Á laugardaginn skrifaði Davíð
Hjálmar í Davíðshaga í Leirinn:
„Hér blæs ögn og lítið er um skjól,
þó má vel aðlagast.“
Þar sem hvorki þöll né birki grær
og þyrlar vindur jarðvegi og sandi:
Í sólbaði ég sat um stund í gær
í síðri peysu, stakk og föðurlandi.
Páll Ólafsson orti:
Ægir skilar engum heim
og ekki Ránar dætur.
Þóttú sofir sætt hjá þeim
seint kemst þú á fætur.
Ég læt þessa fylgja um sendi-
mann skáldsins sem var viku í
kaupstaðarferð:
Ég er orðinn hissa á hans
hátta- og ferðalagi,
óska ‘onum til andskotans
og er mér það þó bagi.
Það er vor í lofti og Gunnar
Rögnvaldsson á Löngumýri í
Skagafirði yrkir:
Við sólarupprás sungu lóur tvær
með samhljóminum létu í það skína
og bættu við þá veðurspá í gær
að vorið gæti hafið innreið sína.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vorljóð á páskum