Morgunblaðið - 25.04.2019, Síða 53
ÍÞRÓTTIR 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2019
Of fljótur var ég á mér á
þessum vettvangi fyrir viku þeg-
ar ég skrifaði um þörf á bygg-
ingu nýrrar þjóðarhallar fyrir
innanhússíþróttir. Fljótfærnin
fólst í að halda því fram að blak-
fólk hefði ekki ályktað á ársþingi
sínu um brýna þörf á byggingu
hallarinnar og tekið þar með
undir með KKÍ og HSÍ.
Nýkjörinn formaður Blak-
sambandsins (BLÍ), Grétar Egg-
ertsson, var ekki lengi að taka
við sér og senda mér ályktun
sem var samþykkt á ársþinginu.
„47. ársþing Blaksambands Ís-
lands haldið í Reykjavík 29.
mars 2019 skorar á ríkisstjórn
landsins og borgarstjórn Reykja-
víkur að sjá til þess að þjóðar-
leikvangur verði byggður hið
fyrsta. Leikvangurinn þarf að
uppfylla þær kröfur sem gerðar
eru til íþróttamannvirkja í al-
þjóðlegri keppni. Einnig þarf að
tryggja það að þjóðarleikvang-
urinn nýtist til landsliðsæfinga
og eftir atvikum íþróttafélögum
í viðkomandi íþróttagreinum eft-
ir skipulagi þeirra.“
Ályktunin finnst á heima-
síðu BLÍ innan um annað efni
frá ársþinginu undir liðnum „Um
BLÍ“. Hennar var reyndar ekki
getið í ítarlegri tilkynningu sem
BLÍ sendi fjölmiðlum í þinglok.
Fátt er svo með öllu illt að
ekki boði nokkuð gott. Fljót-
færni mín varð til þess að for-
veri Grétars, Jason Ívarsson,
sendi mér póst í skrifaðan í föð-
urlegum tón. Ekki vonum
seinna. Á 12 ára ferli Jasonar í
formannsembætti minnist ég
þess ekki að hann hafi áður séð
ástæðu til að hafa samband við
mig. Var þó vafalaust einhvern-
tímann ástæða til fyrir formann-
inn að minna á þá skemmtilegu
íþrótt sem blakið er og það
góða starf sem hreyfingin undir
hans stjórn til 12 ára vann og
vinnur enn.
BAKVÖRÐUR
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
HANDBOLTI
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Þegar Björn Viðar Björnsson flutti á
síðasta sumri frá Noregi til Vest-
mannaeyja ásamt sambýliskonu
sinni, Sunnu Jónsdóttur handknatt-
leikskonu, og ungum syni þeirra, ór-
aði hann ekki fyrir að nokkru síðar
yrði hann aðalmarkvörður hand-
knattleiksliðs ÍBV og kominn í und-
anúrslit á Íslandsmótinu.
„Ég var hættur. Það var ekkert í
kortunum sem benti til að ég færi að
spila með ÍBV þegar við fluttum
heim í sumar sem leið. Í fyrravetur
lék ég með liði í fjórðu deildinni í
Noregi með þungavigtarmönnum og
passaði vel inn í hópinn,“ sagði
Björn Viðar léttur í bragði þegar
Morgunblaðið truflaði hann við
vinnu á Vélaverkstæðinu Þór í Vest-
mannaeyjum. „Það er langur vegur
frá liði í fjórðu deild í Noregi í lið
þrefaldra meistara síðasta árs eins
og ÍBV-liðið er.“
Björn Viðar var senuþjófur í
viðureignum ÍBV og FH í átta liða
úrslitum Íslandsmótsins í hand-
knattleik um páskahelgina. Ekki síst
í fyrri leiknum þegar hann varði
annað hvert skot sem á markið kom,
m.a. þrjú vítaköst. Á sama tíma voru
kollegar hans í marki FH lítt með á
nótunum. Björn Viðar sló FH-inga
út af laginu í leiknum í Kaplakrika
sem ÍBV vann örugglega. ÍBV fylgdi
sigrinum eftir með öðrum á heima-
velli á öðrum degi páska sem innsigl-
aði sæti í undanúrslitum. Björn Við-
ar stóð þá einnig vel fyrir sínu.
Vinna að koma til baka
„Það gekk bærilega hjá mér og
mjög vel hjá liðinu í heild,“ sagði
Björn Viðar hæverskur en hann hef-
ur jafnt og þétt unnið sig til baka allt
tímabilið eftir því sem líkamlegt
form hefur batnað. Hann neitar því
ekki að mikil vinna liggur að baki
síðustu mánuðina við að komast í al-
mennilegt leikform. „Ég viðurkenni
fúslega að það hefur reynt verulega
á mig að koma til baka og komast í
leikform aftur til þess að verða liðinu
að gagni. Ég var fyrir löngu hættur í
alvöru bolta og reiknaði ekki með að
snúa til baka í efstu deild á Íslandi.“
Björn Viðar segir þjálfara ÍBV-
liðsins hafa komið að máli við sig
skömmu áður en Íslandsmótið hófst
síðsumars og spurt hvort hann vildi
ekki vera með úr því að hann væri á
staðnum á annað borð. „Ég ákvað að
slá til enda hef ég gaman af hand-
boltanum þótt ég hafi ekki verið
nærri alvörunni í nokkur ár og lítið
æft. Ég náði tveimur eða þremur æf-
ingum áður en ÍBV mætti Fram í
Meistarakeppninni áður en keppni í
Olís-deildinni hófst. Ég kom nánast
beint upp úr sófanum og í fyrsta
leikinn. Síðan hef ég verið með af
fullum krafti og hef bara gaman af.“
Hlutverk Björns Viðars stækkaði
við skyndilegt andlát Kolbeins Ar-
ons Ingibjargarsonar, aðalmark-
varðar ÍBV, um jólin. Björn Viðar
tók þátt í öllum 22 leikjum ÍBV í
deildarkeppninni og bikarleikjunum.
Enginn nýgræðingur
Björn Viðar er 32 ára gamall og er
enginn nýgræðingur á handbolta-
vellinum. Hann byrjaði ungur að æfa
með Haukum en gekk til liðs við Vík-
ing 2006, þá tvítugur. Með Víkingi
var Björn Viðar í þrjú ár áður en
hann skipti yfir í raðir Framara.
Með Fram lék Björn Viðar í fjögur
ár í röð að undanskildu hálfu ári leik-
tíðina 2011/2012 þegar hann var lán-
aður til Stjörnunnar.
Björn Viðar var m.a. í Íslands-
meistaraliði Fram vorið 2013. Stóð
vaktina í markinu ásamt Magnúsi
Gunnari Erlendssyni. Sumarið 2013
flutti Björn Viðar til Svíþjóðar
ásamt Sunnu sem þar var atvinnu-
kona í handknattleik. Síðar fluttu
þau til Noregs þar sem Sunna lék
með HK Halden í úrvalsdeildinni og
átti sæti í landsliðinu.
„Það er gaman að svona ævintýr-
um,“ sagði Björn Viðar Björnsson,
handknattleiksmarkvörður ÍBV,
sem eins og Eyjaliðið í heild hefur
ekki sagt sitt síðasta orð í úrslita-
keppninni ef að líkum lætur.
Var hættur í boltanum
en varð óvænt senuþjófur
Veður skipuðust skjótt í lofti hjá Birni Viðari Var í þungavigtarbolta í Noregi
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Sigurgleði Björn Viðar Björnsson, svartklæddur fyrir miðri mynd, fagnar með samherjum eftir að hafa sópað FH
út í átta liða úrslitum Íslandsmótsins á mánudaginn. Björns og félaga bíða leikir í undanúrslitum eftir helgina.
Davíð Snorri Jónasson hefur valið þá leikmenn sem fara
í lokakeppni EM U17-landsliða á Írlandi 3.-19. maí. Átta
leikmenn í hópnum eru hjá atvinnumannafélögum.
Markmenn: Adam Ingi Benediktsson (HK), Helgi
Bergmann Hermannsson (Keflavík), Ólafur Kristófer
Helgason (Fylki)
Varnarmenn: Baldur Hannes Stefánsson (Þrótti R.),
Elmar Þór Jónsson (Þór), Jón Gísli Eyland Gíslason (ÍA),
Oliver Stefánsson (Norrköping), Ólafur Guðmundsson
(Breiðabliki), Róbert Orri Þorkelsson (Aftureldingu),
Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson (Fjölni).
Miðjumenn: Andri Fannar Baldursson (Bologna), Dav-
íð Snær Jóhannsson (Keflavík), Ísak Bergmann Jóhannesson (Norrköping),
Orri Hrafn Kjartansson (Heerenveen), Valgeir Valgeirsson (HK).
Sóknarmenn: Andri Lucas Guðjohnsen (Real Madrid), Danijel Dejan Dju-
ric (Midtjylland), Hákon Arnar Haraldsson (ÍA), Kristall Máni Ingason (FC
København), Mikael Egill Ellertsson (SPAL).
Strákarnir sem fara á EM
Andri Lucas
Guðjohnsen
Ajax setti nýtt hollenskt met með 4:2 sigri liðsins
gegn Vitesse í hollensku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu í fyrrakvöld.
Ajax hefur þar með skorað 160 mörk í öllum
keppnum á leiktíðinni og bætti 38 ára gamalt met AZ
Alkmaar sem skoraði 158 mörk á leiktíðinni 1980-81.
Ajax mun halda áfram að bæta metið því liðið á eftir
að spila fjóra leiki í deildinni, bikarúrslitaleikinn og
er komið í undanúrslit Meistaradeildarinnar þar sem
það mætir Tottenham.
Þrír leikmenn Ajax hafa skorað 20 mörk eða meira
á tímabilinu. Dusan Tadic 34 mörk í 51 leik, Klaas-
Jan Huntelaar 20 mörk í 39 leikjum og Hakim Ziyech 20 mörk í 44
leikjum.
Ajax er í toppsæti deildarinnar, er með þriggja stiga forskot á PSV,
sem á leik til góða. gummih@mbl.is
Ajax er komið með 160 mörk
Dusan
Tadic