Morgunblaðið - 25.04.2019, Síða 57

Morgunblaðið - 25.04.2019, Síða 57
MENNING 57 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2019 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 7.45-17.00, föstudaga kl. 7.45-16.00 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Pústþjónusta SAMEINUÐ GÆÐI Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Rithöfundurinn Bergrún Íris Sæv- arsdóttir hlaut í gær við hátíðlega at- höfn í Höfða barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur fyrir barna- og ungmennabókina Kennarinn sem hvarf. Verðlaunin, sem eru fyrir frumsamið handrit að barna- eða unglingabók, eru nú veitt í fyrsta sinn í Reykjavík. Í sömu athöfn voru Barnabókaverðlaun Reykjavíkur veitt fyrir bestu frumsömdu barna- og unglingabókina, best myndlýstu bókina og bestu þýðingu á barna- og unglingabók sem gefin var út 2018. Í umsögn dómnefndar um bók Bergrúnar segir að sagan beri mik- ilvæg einkenni höfundarverka Guð- rúnar Helgadóttur, hún sé hlý, fjöl- breytt, tali til barnanna og þvingi ekki boðskap upp á lesandann. Bergrún segist hafa forðast það við skrif bókarinnar: „Bókin er í anda Guðrúnar Helgadóttur og hún gerir þetta svo vel. Hún heldur fast í sitt innra barn og hitt er síðan eitthvað sem seytlar inn með.“ Bergrún segir að aðstæður í bók- inni séu fyndnar, einn daginn mæti kennarinn ekki og krakkarnir þurfi að bregðast við því. Síðan renna á þau tvær grímur þegar gátumeist- arinn sendir þeim skilaboð. Titillinn að bókinni, Kennarinn sem hvarf, fæddist þegar Bergrún beið á meðan bíllinn hennar var í viðgerð. „Ég sat einhvers staðar og var að bíða eftir bílnum mínum á meðan hann var í viðgerð og heyrði út undan mér í útvarpsfréttunum eitthvað sem hljómaði eins og „kennarinn hvarf“. Ég sperri eyrun og fer að hlusta bet- ur og þá heyrðist bara alls ekkert um það, mér misheyrðist bara. En mér fannst þetta eitthvað svo skemmti- legt og af því að ég var með klukku- tíma að drepa á meðan bíllinn var í viðgerð skrifaði ég fyrsta kaflann að Kennaranum sem hvarf. Þá fór hún samstundis að hugsa um í hvaða aðstæðum kennari myndi hverfa og hvað krakkarnir í kennslu- stofunni myndu gera. „Myndu þau til dæmis fagna því að það væri enginn kennari viðstaddur eða jafnvel nýta tímann til að hanga bara í símanum sínum?“ segir Bergr- ún. Snjallsímar koma einmitt við sögu í bókinni og er hún því vel tengd hversdagslífi barna í nútíma- samfélagi. Bergrún hefur ágæta inn- sýn í líf barna þar sem hún á tvo stráka, níu og fjögurra ára. Bókin er eins konar ráðgátubók, þar sem krakkarnir reyna að leysa málin þeg- ar kennarinn er horfinn. „Ég hafði svo gaman af því sjálf þegar ég var krakki að lesa bækur þar sem hópur krakka þurfti að leysa einhverja ráðgátu eða bjarga ein- hverjum úr aðstæðum og þurfa jafn- vel að leysa þrautir til þess. Þetta eru svo fyndnar aðstæður – einn dag mætir kennarinn ekki, hvernig ætla krakkarnir að bregðast við?“ segir Bergrún. Skrítið hús kveikti hugmyndina Hildur Knútsdóttir hlaut verðlaun fyrir bestu frumsömdu barna- og ungmennabókina Ljónið, sem jafn- framt var tilnefnd til Íslensku barna- bókmenntaverðlaunanna í ár. Ljónið er ungmennasaga sem gerist í sam- tímanum en teygir anga sína til ógn- vekjandi atburða í fortíðinni. Hún er fyrsta bókin í þríleik Hildar og hefur fengið góðar viðtökur. Sagan gerist í miðbæ Reykjavíkur og fjallar um Kríu sem er nýflutt frá Akureyri og byrjar í MR. Sjálf var Hildur í MR og bjó í miðbæ Reykjavíkur. Hún segir að innblástur að sögunni hafi komið af miklu leyti frá hennar eigin menntaskólaárum. „Þetta kemur að miklu leyti frá mínum eigin menntaskólaárum. Þetta eru mikil mótunarár og ég man vel eftir þessum tíma,“ segir Hildur og bætir við að sagan sé þó ekki al- farið byggð á henni sjálfri. Í sögunni kemur gamalt hús við sögu, Skólastræti 5a. Þar býr vin- kona Kríu úr MR og finna þær nokk- uð forvitnilegt í húsinu, sem er með þeim elstu í Reykjavík. Húsið skipar stóran sess í sögunni og kom hug- myndin að húsinu til Hildar þegar hún var að skoða fasteignaauglýs- ingar: „Ég sá að húsið var til sölu og hugsaði að þetta væri skrítið hús og hérna gæti eitthvað hafa gerst. Þannig kom hugmyndin til mín.“ Hildur vinnur nú að annarri bók þrí- leiksins og er því framhald af Ljón- inu væntanlegt fyrir jól. Guðni Kolbeinsson hlaut Barna- bókaverðlaun fyrir best þýddu barna- og ungmennabókina, þ.e. Bækur duftsins: Villimærin fagra eftir Philip Pullman, sem er fyrsta bók í þríleik Pullmans, Bækur dufts- ins. Þá hlaut Rán Flygenring verðlaun fyrir best myndlýstu bókina , Sagan um Skarphéðin Dungal sem setti fram býjar kenningar um eðli al- heimsins eftir Hjörleif Hjartarson. Morgunblaðið/Hari Verðlaunahafar Hildur Knútsdóttir, Hjörleifur Hjartarson, Guðni Kolbeinsson og Bergrún Íris Sævarsdóttir. Kennarinn sem hvarf verðlaunuð  Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur veitt í fyrsta sinn  Ljónið, Skarphéðinn og Villimærin einnig sigursæl Morgunblaðið/Hari Gleði Bergrún Íris Sævarsdóttir og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri glöddust í Höfða í gær þar sem verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn. Nokkru áður en tónlistarmaðurinn Prince lést 57 ára gamall í upp- tökuveri sínu í Minnesota árið 2016, af völdum ofneyslu verkjalyfja, hafði hann ásamt rithöfundinum Dan Piepenbring byrjað að skrifa endurminningar sem áttu að koma út á bók undir heitinu The Beauti- ful Ones. Greint er frá því í The New York Times að bókin muni koma út hjá Random House í haust í breyttri mynd frá því sem fyrir- hugað var, með sjaldséðum ljós- myndum og myndum af handskrif- uðum textum tónlistarmannsins. Prince var lítið fyrir að veita inn- sýn í einkalíf sitt en í mars árið 2016 upplýsti hann gesti á litlum tónleikum um bókaverkefnið. „Við munum byrja á byrjuninni, minni allra fyrstu minningu,“ sagði hann og að svo myndi hann fikra sig í frásögninni inn í samtímann. Piepenbring hefur haldið vinnunni við bókina áfram, í sam- starfi við erfingja Prince. Í bókinni verður textinn sem þeir Prince höfðu unnið að saman er hann lést, en Prince var þá umhugað um að verða opinskárri um líf sitt og skoð- anir, án þess að sleppa tökum á sinni dularfullu ímynd. Ævisaga Prince kemur út í haust Dáður Tónlistarmaðurinn Prince var mörgum harmdauði er hann lést árið 2016. Baltasar Kor- mákur kvik- myndaleikstjóri er meðal þeirra sem velja sigur- vegara á hinni umfangsmiklu Tribeca-kvik- myndahátíð í New York í ár. Greint er frá því í Hollywood Reporter að alls velji 51 dómari verðlaun í tíu flokkum og er Baltasar í nefnd er velur bestu alþjóðlegu leiknu kvikmynd- ina. Auk hans sitja í henni Angela Bassett, Famke Janssen, Rebecca Miller og Steve Zaillian. Tribeca-hátíðin er nú haldin í 18. skipti. Hún hófst í gær og stendur til 5. maí. Baltasar velur Baltasar Kormákur Fransk-pólski kvikmyndaleikstjór- inn Roman Polanski hefur höfðað mál gegn bandarísku kvikmynda- akademíunni er veitir Óskars- verðlaunin, til að verða aftur með- limur í henni. Þeir Bill Cosby voru reknir úr akademíunni í fyrra og segir Polanski brottreksturinn hafa verið ólöglegan. Árið 1977 viðurkenndi Polanski að hafa haft samfarir við unglings- stúlku í Bandaríkjunum. Hann sat inni í 42 daga, flúði síðan land og hefur ekki komið til Bandaríkjanna síðan en saksóknarar hafa árang- urslaust reynt að fá hann fram- seldan. Þeim Cosby var vísað úr akademíunni fyrir brot á siða- reglum. Polanski er nú 85 ára gam- all. Hann hlaut Óskarsverðlaun fyr- ir The Pianist árið 2003. Polanski í mál

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.