Morgunblaðið - 25.04.2019, Qupperneq 58
58 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2019
SMÁRALIND – KRINGLAN
galleríið
Smáralind
Veronika S. Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Alda Ingibergsdóttir sópran og
Antonía Hevesi píanóleikari koma
fram á hádegistónleikum í Hafn-
arborg í dag kl. 12, á sumardaginn
fyrsta, annað árið í röð. Á efnisskrá
tónleikanna eru sumarperlur. Meðal
verka sem flutt verða eru Kossavís-
ur eftir Pál Ísólfsson, Il bacio eftir
L. Arditi og aríur úr Brottnáminu
úr kvennabúrinu og Töfraflautunni
eftir W.A. Mozart. Þar sem aríurn-
ar eru ekki sungnar á íslensku mun
Antonía kynna söguþráðinn stutt-
lega fyrir tónleikagestum. Því má
segja að hún bregði sér í hlutverk
eins konar sögumanns á tónleik-
unum. „Það er bara aukaglaðningur
fyrir Hafnfirðinga,“ segir Antonía,
sem verið hefur listrænn stjórnandi
hádegistónleikanna í Hafnarborg
frá upphafi, en þeir fara ávallt fram
fyrsta þriðjudag hvers mánaðar.
Tónleikarnir á sumardaginn
fyrsta eru því sérstakur viðburður
að sögn Antoníu. „Alda kom með þá
hugmynd í fyrra að halda tónleika á
sumardaginn fyrsta. Hún er Hafn-
firðingur og það er henni mjög
hjartfólgið að gleðja Hafnfirðinga á
sumardaginn fyrsta,“ segir Antonía.
Hádegistónleikarnir eru því haldnir
annað árið í röð í Hafnarborg á
sumardaginn fyrsta.
Meðal hlutverka sem Alda hefur
tekið að sér eru Pamína í Töfra-
flautunni, Lillian Russell í The
Mother of Us All eftir Virgil Thom-
son og Dísa í Galdra-Lofti Jóns
Ásgeirssonar.
Vill fjölga tækifærunum fyrir
óperusöngvara hérlendis
Á hverjum tónleikum koma mis-
munandi söngvarar fram en Ant-
onía er ávallt listrænn stjórnandi.
Hún segir að yfirleitt séu frægar
óperur fluttar á tónleikunum. „Hug-
myndin kringum hádegistónleikana
er að bjóða upp á ókeypis og að-
gengilega tónleika. Ég kem ekki
með nútímalög sem eru ekki lag-
ræn, heldur yfirleitt frægar óperur.
Svo er ég líka að fylgjast með
íslenskum söngvurum sem eru
starfandi í útlöndum og reyni að
krækja í þá þegar þeir eru á land-
inu,“ segir Antonía.
Antonía vill halda tónleikana til
að virkja Hafnfirðinga en Alda Ingi-
bergsdóttir sem mun koma fram á
tónleikunum er einmitt Hafnfirð-
ingur. „Hafnfirðingar eru velkomnir
og svo er ég líka að reyna að gefa
ungum söngvurum tækifæri til að
syngja opinberlega. Að mínu mati
eru ekki mörg tækifæri fyrir óperu-
söngvara á Íslandi – það eru of fá
tækifæri og kemur sjaldan út í
plús,“ segir Antontía og bætir við
að hún vilji bjóða nýliðum tækifæri
til að spreyta sig á tónleikunum í
Hafnarborg.
Morgunblaðið/Hari
Gleðigjafar Antonía Hevesi píanóleikari og Alda Ingibergsdóttir sópran gleðja tónleikagesti í dag.
Sumarperlur hljóma
Hádegistónleikar í Hafnarborg sumardaginn fyrsta
Alda Ingibergsdóttir sópran syngur aríur og sönglög
Veronika S. Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Djasshátíð Garðabæjar hefst að
kvöldi sumardagsins fyrsta með
tónleikum í Kirkjuhvoli í Vídal-
ínskirkju á persónulegum og inni-
legum tónleikum
með fámennum
flytjendahópi.
Þar munu Björn
Thoroddsen gít-
arleikari og
Unnur Birna
Bassadóttir
söng- og fiðlu-
leikkona mætast
í dúói.
„Þetta er per-
sónulegt og inni-
legt vegna þess að þetta eru lög
sem hafa haft áhrif á þau bæði og
það gerir það persónulegt. Það
verður óhjákvæmilega innilegt
þegar flytjendurnir eru svona fáir,
þau eru bara tvö. Það er frekar
sjaldgæft í svona tónlist að það sé
ekki heil hljómsveit,“ segir Sig-
urður Flosason sem hefur verið
listrænn stjórnandi hátíðarinnar
frá upphafi.
Fáar konur í djassheiminum
„Unnur og Björn hafa verið að
vinna saman og síðan höfum við
verið að reyna að hafa augun opin
fyrir ungum konum sem stunda
þessa tónlist. Íslenski djassheim-
urinn á ekki margar konur, þannig
að það var upplagt að grípa eina
hæfileikaríka,“ segir Sigurður.
Hann segir að hátíðin sé fastur
liður í Garðabæ og vel sótt á
hverju ári, en nú fer hún fram í
14. sinn. „Það sem er mér efst í
huga er að við erum að sinna bæði
ungum og öldnum. Við höfum fjöl-
breytnina að leiðarljósi og reynum
að höfða til ólíkra hópa og ólíks
smekks áheyrenda þannig að það
sé eitthvað fyrir alla. Þetta er
fastur liður og vel sótt, skemmti-
legur vorboði sem hefst á sumar-
daginn fyrsta. Þetta er það sem
segir að vorið sé komið í Garða-
bæ,“ segir Sigurður.
Hátíðin fer fram í 14. sinn dag-
ana 25.-27. apríl. Hún skartar fjöl-
breyttu úrvali íslenskra djass-
tónlistarmanna og boðið verður
upp á ólík stílbrigði djasstónlistar,
þar má nefna „færeyskt fusion“,
tónleika sveiflubandsins Arctic
Swing Quintet og tónleika hljóm-
sveita úr Tónlistarskóla Garða-
bæjar. Þær munu hita upp fyrir
alla kvöldtónleikana klukkan 20.
Á föstudag fer fram „færeyskt
fusion“ en þá stígur kvintett fær-
eyska bassaleikarans Anrolds
Ludvigs á svið. Hann mun leika á
bandalausan rafbassa umkringdur
nokkrum af þekktustu djass-
mönnum íslensku þjóðarinnar, þar
má nefna Sigurð Flosason, Jóel
Pálsson, Kjartan Valdemarsson og
Einar Scheving.
Á laugardag fer síðan fram
samfelld djassveisla í félagsmið-
stöðinni Jónshúsi í Sjálandi, þar
sem allir gestir geta notið djass-
tónlistar frá tvö að degi fram á
kvöld. Þar kemur fram söngdívan
Kristjana Stefánsdóttir og flytur
vel valin djasslög en hátíðinni lýk-
ur með tónleikum sveiflubandsins
Arctic Swing Quintet í Kirkjuhvoli
kl. 20.30.
Djassinn er
vorboðinn
Dúó Björn Thoroddsen og Unnur Birna Bassadóttir koma fram á hátíðinni.
Djasshátíð Garðabæjar hefst í dag
Fjölbreytnin verður í fyrirrúmi
Sigurður
Flosason
Útskriftarhátíð
Listaháskóla
Íslands hefst í
dag, fimmtudag,
með tónleikum
Hilmu Kristínar
Sveinsdóttur tón-
smíðanema í
Stúdíó Sýrlandi
kl. 20. Þar flytur
hún verk sitt „ég
segi þér bara
meira seinna“, en Hilma hefur lært
undir handleiðslu Atla Ingólfssonar
tónskálds.
Hilma lauk BMus-námi í klarínettu-
leik við LHÍ undir handleiðslu
Ármanns Helgasonar vorið 2015. Síð-
ustu ár hefur Hilma stundað söng-
nám hjá Hallveigu Rúnarsdóttur,
sungið í Hamrahlíðarkórnum í mörg
ár, verið starfsnemi hjá Jóhanni
Jóhannssyni sumarið 2016, starfað
sem klarínettukennari og tekið þátt í
ýmiss konar tónlistarflutningi.
Um verkið segir Hilma: „„ég segi
þér bara meira seinna“ er samið fyrir
átta flytjendur og samanstendur af
fimm stuttum verkum. Verkin eru
sjálfstæðar einingar, öll sprottin úr
þeim jarðvegi sem ég hef verið að búa
til og þróa síðustu mánuði. Verkin
eru öll ólík að stærð, en unnið er með
mismunandi blandanir hljóðfæra og
aðferða.“
Samtímis flutningi verksins verður
flutningur á verkinu tacet: extrinsic
eftir Hildi Elísu Jónsdóttur, sem er
útskriftarverk hennar úr myndlistar-
deild LHÍ.
„ég segi þér bara meira seinna“ í kvöld
Hilma Kristín
Sveinsdóttir