Stefnan - 01.04.1923, Qupperneq 5
STEFNAN
Ritstjóri og eigandi: Steinn Emílsson.
Nr. l
APRÍL
1923
Stefna bolshvíking-a.
Hinn raunverulegi tilgangur hennar.
I.
Stormur geisar á hafinu. Bylgja
vekur bylgju, og loks fellur hún með
brimgný að ströndinni. Maður fæðist,
vinnur fyrir afkvæmi sínu — og deyr.
pjóð kemur skyndilega út úr dimm-
unni, gjörist leiðtogi annara þjóða,
berst fyrir einhverri hugsjón, nær oft
fjarlægu takmarki. En þá er siðferð-
isþroski þjóðarinnar stendur ekki
lengur í neinu hlutfalli við dugnað
hennar og framsækni, þá er foryst-
unni lokið. Að vísu getur hún um
margra ára bil þreytt kapphlaup við
tímann, án þess að fullnægja kröfum
hans, hún lifir á fornum minjum,
miðar alt við löngu liðna „gullöld", —
en hverfur að lokum úr sögunni.
Hjá sjerhverjum manni blunda
möguleikar, nytsamar hugmyndir, —-
eitthvað gott og fagurt á hann til í
sálu sinni, er hann getur þroskað í
samlífi sínu við aðra menn. Með heil-
brigðri starfsemi vinnur hann sjer
helgan tilverurjett, — rjett til sjálfs-
forræðis, til ráðrúms, til frjálsræðis.
Sjálfsforræðisbarátta einnar þjóðar
er að öllu leyti rjetthelg, og meðan
hún berst fyrir auknu frjálsræði á
öllum sviðum, gjörir hún skyldu sína.
þar sem maðurinn er fæddur og
uppalinn, getur hann frekar afkastað
verðmætri vinnu, en í útlöndum, þar
sem enginn þekkir hann, og þar sem
allar aðstæður eru honum ókunnar.
ísland er ættarland vort.
Hjer á landi erum vjer fædd og
uppalin. Hjer höfum vjer flesta
möguleika til að geta barist fyrir
auknu frjálsræði á öllum sviðum. því
er þetta land föðurland vort. því er
skylda vor að unna þessu landi æfi-
langt.
Island er ekki lengur óþekt land.
Allar þjóðir hins mentaða heims
virða maklega sjálfsforræðisbaráttu
vora. En sú barátta er óræk sönnun