Stefnan - 01.04.1923, Qupperneq 19
STEFNAN
Nú er hann merki vonarinnar, síð-
ar verður hann merki frægðarinnar.
Hann á að verða tákn þeirrar þjóð-
ar, sem að vísu er ein minsta þjóð
heimsins, en hefir þó lífsmagn, vit og
vilja til að lifa sínu lífi og koma í
framkvæmd sínum sjerstöku hug-
s j ónum.
Jeg veit það vel, að margir halda
að stórþjóðirnar einar geti unnið
stórvirki, en sagan mótmælir því. Frá
smáþjóðunum hefir heimurinn marg-
oft fengið yngjunarafl, og svo mun
enn verða.
Einhvern tíma kemur sá tími, að
þjóðirnar verða ekki vegnar eftir
höfðatölu eða þunga holdsins, eins og
kjöt á búðarvog, heldur eftir andan-
um, sem í þeim býr.
•Ósjálfrátt viku dyraverðirnir í
liöllu Noregskonunganna, Haralds og
Magnúsar, fyrir Arnóri jarlaskáldi.
„Gefið rúm skáldi konunga!“ sagði
hann, og hirðmennirnir fundu, að
hann talaði eins og sá, sem vald
hafði, — því hann hafði ódauðlegt
kvæði að flytja.
Og enn mun íslendingum verða
gefið rúm, hvenær sem þeir hafa
ódauðleg erindi mannvits og dreng-
skapar með höndum. —
Með þetta mark fyrir augum vilj-
um vjer hefja þennan fána .... Eng-
in þjóð, sem sjer hann, getur tengt
við hann neinar illar endurminning-
ar. pessi fáni er hreinasti fáni heims-
ins, í hann er ekkert ilt skrifað.
Áður fyrri saumuðu konur merki
og gáfu þeim, sem þær unnu. Jeg
vona, að íslenzkar konur taki upp
þann sið. Jeg vona, að á hverri þjóð-
hátíð fái íslenzkar mæður bömum
sínum þennan fána í hönd til að bera
hann í fylkingu.
-----o------
flS. 0. 0, ntLDHflM, BERBEH.
Ur yörulista:
F I X skóáburður, svartur og bmnn.
AOPOLLO -
„ T Ö R F 0 T " feitisverta.
SVANA ÞVOTTADUFT,
er það þvottaduft, sem hefir fengið
viðurkenningu alira, sem notað hafa,
sem sjerstakiega gott og hreinsandi.
Bezta sönnunin fyrir gæðum þess er:
EFTIRSPURNIN
sem eykst stórkostlega Ar frá ári.
Er mun ódýrara en annað
þvottaduft.
„ B L A N K “ fægilögur.
Áburður fyrir hvita og gráa skó.
B|ÐJIÐ U M VERÐLISTA
Fyrirliggjandl birgðir hefir
EIKÍKUR LEIESSON
LAUGAVEG 25
Pósthólf 111 Reykjavík
3