Stefnan - 01.04.1923, Page 20
STEFNAN
Ósj álf stætt
konungsríki.
pað eru vanskilamenn, er
krefja þarf um vitaskuld.
porst. Arnljótsson.
pá er hin dansk-íslenzku sambands-
lög gengu í gildi 1. dies. 1918, var hin
stjórnarfarslega barátta Islendinga
gagnvart Dönum um stundarsakir til
lykta leidd.
Islendingar hjeldu velli. ísland var
viðurkent sjálfstætt( ?) og full-
valda(?) ríki í konungssambandi við
Danmörk.
Hvernig er nú ástandinu varið í
konungsríki voru?
peirri spumingu vil jeg svara með
nokkrum línum, — enda þótt allur
þorri Islendinga viti.
pað, sem einkennir þjóð vora sjer-
staklega nú, er ósjálfstæði í hugsun-
arhætti, efnalegt ósjálfstæði — skuld-
ir yfirleitt.
pjóðin stynur undir skuldabyrði, —
og altaf þyngir.
Skuldirnar verðum við að greiða að
fullu, og við getum gjört það, verði
sjerhver einstaklingur iðjusamari,
sparsamari og óeigingj arnari en hann
er nú. En sparsemi er ekki fyrir að
fara hjá okkur íslendingum. Við er-
um fram úr hófi eyðslusamir. Við er-
um skulda- og óreiðumenn.
Iðjulítill og eyðslusamur maður
fremur órétt gagnvart sjálfum sjer
og öðrum, gagnvart náttúrunni. En
J