Stefnan - 01.04.1923, Síða 32
STEFNAN
VERZLUNIN
VÍSIR
heflr ætíð á boðstólum
ávexti
Þurkaða:
Apricots
Bláber
Epli
Ferskjur
Kirsuber
Kúrennur
Rúsínur
Sveskjur
Niðursoðna:
Ananas
Apricots
Bláber
Blandaða:
Ferskjur
Hindber
Jarðarber
Kirsiber
Perur
Plómur
Munið Yerzl. Yísir
Laugaveg 1 — Sími 555
Kaupmenn
og kaupfjelög.
Engum meðalgreindum manni
bJandast hugur um það, að góð og
mentuð kaupmannastjett sje nauð-
synleg hverju þjóðfjelagi, en þó eru
þeir menn ekki allfáir, og meðal
þeirra „leiðtogar“ bænda, er níða
hina íslenzku kaupmannastj ett á alla
lund, og telja hana ekki einungis
gjörsamlega óþarfa, heldur beinlínis
skaðlega.
Álit þessara manna má engan
glæpa, og þó Tímarithöfundarnir láti
prenta það svo að segja vikulega,
dreifi því út um landið, og „sanni“
það á opinberum fundum með velorð-
uðum rökleysum, þá gjöra þeir það á
móti betri vitund.
þeir vita sem er, að meðan þjóðin
er ósjálfstæð í hugsunarhætti, þ. e.
illa mentuð, er þeim óhætt að halla
rjettu máli. En þann glæp drýgja ein-
ungis sjergóðir menn.
Til samanburðar:
„Kaupmenn og stórkaupmenn
eiga ekki að hvei'fa úr sögunni.
þroskinn ekki kominn á það stig
enn þá — og á langt í land, að
óhætt sje að treysta á samvinnu
eina í verzlun“. (Tíminn 1. ár 19.
tbl.).
En þá er þetta var prentað, var
mikið í húfi. pá mátti engan gruna
neitt um hina fyrirhuguðu bölhlekki
er leggja skyldi á öll kaupfjelög
(samábyrgð). því var gætilega af
stað farið, því var lævíslega byrjað á
liðsöfnuninni, því tjölduðu þessir