Stefnan - 01.04.1923, Síða 39
STEFNAN
HallbjörnHalldórsson.
pá er tímar líða, og önnur öld og
fegurri rís úr djúpinu, mun blað yð-
ar verða kallað: Hringdans vitleys-
anna.
, En í raun og veru er flest það, er
þjer birtið daglega, langur og leiður
skollaleikur við sannleikann.
Athugum 69. tölublað. í grein með
fyrirsögninni: „Steinn Emilsson“,
stendur eftirfylgj andi klausa:
„Annars er þessi þvæla um, að
foringjar „bolsivika" sjeu Gyðing-
ar, þögnuð erlendis fyrir tveim til
þrem árum, eins og mönnum er
kunnugt, sem lesa erlend blöð“.
— þjer gefið ótvírætt í skyn, að
þjer lesið öll helztu blöð, sem út
koma erlendis.
Jeg hefi enn sem komið er, ekki
ástæðu til að rengja yður um það.
En þjer hafið þá gjört yður það
til minkunar, að skrifa klausuna á
móti betri vitund — og mun jeg
sanna það smátt og smátt.
þjer eruð góður í latínu, og þjer
eruð óánægður með þýðingu mína á
orðinu „diktatur“. það er engin
fui'ða! — Og eins og þjer sjáið, hefi
jeg breytt þýðingunni. Fyrir mjer
vakti ráðstjórnin í Rússlandi — hin
blóðugasta harðstjórn, er sögur fara
af.
í 73. tölublaði þykist þjer hafa
komið árinn vel fyrir borð. — „Hve
mörg börn á hann Lenin?“
SILFUR
OO ALLA ERLENDA NIKKELPENINGA
KAUPI JEG ALLRA HÆSTA VERÐI
Sendingar utan af landi má senda með eftirkröfu samkvæmt
áður umsömdu verði. — Allir erlendir peningar í ávísunum, síma-
greiðslum og seðlurn keyptir og seldir
MORTEN OTTESEN
REYKJAVÍK
Símnefni: „Motto“ T a 1 s í m i 7 2 9