Fréttablaðið - 15.06.2019, Síða 8
Fyrirsögn, to ex everibus
áhersla ullabor ibuscimaxi
Undirfyrirsögn
Meginmál
STJ_UAR_augl_template_DBL_2x15.indd 1 18/02/2019 18:01
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar
eftir tilnefningum til verðlauna sem
afhent verða á Degi íslenskrar náttúru,
16. september.
Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og
auðlinda ráðuneytisins verða veitt fjölmiðli,
ritstjórn, blaða- eða fréttamanni, dagskrár-
gerðarfólki, ljósmyndara eða ithöfundi
fyrir umfjöllun um umhverfismál og/eða
íslenska náttúru undang ngna tólf mánuði
(ágúst – ágúst).
Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar í
Brattholti verður veitt einstaklingi sem
hefur unnið markvert starf á sviði náttúru-
verndar.
Tilnefningar ásamt rökstuðningi skal
senda í síðasta lagi 23. ágúst 2019 á
netfangið postur@uar.is
Tilnefningar óskast til
viðurkenninga umhverfis-
og auðlindaráðuneytisins
KJARAMÁL Vinna við árlega endur-
skoðun launa Bjarna Bjarnasonar,
forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur,
hefur tafist lengur en venjulega í ár.
Formaður starfskjaranefndar Orku-
veitu Reykjavíkur, nefndarinnar
sem hefur það eina hlutverk að end-
urskoða laun forstjórans, staðfestir
að úttekt innan OR síðastliðið haust
þar sem forstjórinn vék tímabundið
úr starfi sem og viðkvæmt ástand í
kjaraviðræðum á vinnumarkaði
séu meðal ástæðna þess að launa-
ákvörðunin hefur ekki farið fram.
Kjör forstjórans komu til umræðu
á stjórnarfundi OR í síðasta mán-
uði þar sem Bjarni mun hafa gert
grein fyrir sínum sjónarmiðum
og vék síðan af fundi. Málinu var
síðan frestað. Starfskjaranefnd OR
er þriggja manna nefnd sem Sig-
ríður Rut Júlíusdóttir, lögmaður
og stjórnarmaður í OR, veitir for-
mennsku.
Aðspurð hverju sæti að endur-
skoðun á launum forstjórans hafi
tafist og hvort það tengist úttekt á
vinnustaðarmenningu innan OR
þegar forstjórinn vék frá störfum
eða hvort þau hafi viljað bíða þar
til eftir undirritun kjarasamninga,
segir Sigríður það eiginlega allt
ofangreint.
„Það eru ýmsar ástæður, allt sem
þú nefnir. Þetta hefur allt saman sín
áhrif.“ Hún kveðst ekki geta tjáð sig
um hvenær von sé á niðurstöðu í
vinnu nefndarinnar að þessu sinni.
Eins og Fréttablaðið hefur ítar-
Beðið með ákvörðun
launa forstjóra OR
Árleg endurskoðun á launum Bjarna Bjarnasonar, forstjóra Orkuveitu
Reykavíkur, hefur tafist í ár af ýmsum ástæðum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Vanalega er búið að
endurskoða laun for-
stjóra Orkuveitu Reykja-
víkur í byrjun árs. Það
hefur tafist í ár og enn
óvíst hvenær vinnu
starfskjaranefndar, sem
hefur það eina hlutverk
að endurskoða laun for-
stjórans, lýkur.
lega fjallað um hafa laun forstjóra
Orkuveitunnar hækkað hraustlega
ár frá ári undanfarin ár. Síðast voru
grunnlaun forstjórans hækkuð í
febrúar í fyrra um 6,9 prósent upp
í 2.374 þúsund krónur á mánuði.
Ofan á þau grunnlaun bætast svo
tæplega 490 þúsund sem forstjór-
inn fær fyrir að gegna stjórnarfor-
mennsku í tveimur dótturfélögum
OR og svo 132 þúsund krónur
greiðsla, sem nemur mánaðarlegu
skattmati ríkisskattstjóra á hlunn-
indum, þar sem forstjóri nýtur ekki
afnota af bifreið. Heildarlaun for-
stjórans, líkt og Fréttablaðið greindi
frá í fyrra, hafa því numið rétt tæp-
lega þremur milljónum á mánuði
frá síðustu ákvörðun. Líkt og einnig
hafði komið fram hélt Bjarni fullum
launum meðan hann, í þágu úttekt-
ar, steig til hliðar.
Fregnir af launaákvörðunum for-
stjóra Orkuveitu Reykjavíkur hafa
oft reynst mikið hitamál og vekja
umtal og eftirtekt og virðist starfs-
kjaranefnd því ekki hafa verið að
f lýta sér að varpa slíkri sprengju
inn í viðkvæmar kjarasamninga-
viðræður í vor. mikael@frettabladid.is
Þetta hefur allt
saman sín áhrif.
Sigríður Rut Júlíus-
dóttir, formaður
starfskjara-
nefndar OR
VÍSINDI Fimm háskólar stefna að því
að setja á laggirnar sjóveikisetur á
Akureyri. Fyrirhuguð er ráðstefna
um hreyfiveiki í Hofi á Akureyri í
byrjun júlí.
Háskólarnir fimm sem standa að
sjóveikisetrinu eru Háskóli Íslands,
Háskólinn í Reykjavík og Háskól-
inn á Akureyri hér á landi í sam-
vinnu við franska háskóla í Caen og
Normandí. Sjóveiki stendur okkur
Íslendingum næst vegna útgerðar
og fiskveiða en í öðrum löndum
snýst þetta um lestar-, f lug- og
bílveiki og þess vegna svokallaða
geimveiki.
Allt eru þetta kvillar undir regn-
hlíf hreyfiveiki og vilja þessir fimm
háskólar hefja samvinnu og form-
gera bandalag sín á milli um rann-
sóknir og kennslu. Hannes Peter-
sen, háls-, nef- og eyrnalæknir og
prófessor við Háskóla Íslands, segir
mikilvægt að ef la alþjóðlegt sam-
starf um hreyfiveiki.
„Hreyfiveiki mun hafa mikil
áhrif á nútímamanninn. Til að
mynda verður heilum eftirmiðdegi
á ráðstefnunni varið í rannsóknir á
hreyfiveiki í sjálf keyrandi bílum.
Þær rannsóknir sem eru þegar hafn-
ar benda til þess að einstaklingar
upplifa meiri hreyfiveiki í þess lags
bílum,“ segir Hannes.
„Einnig er að ryðja sér til rúms
sýndarveruleiki. Þar hafa einstakl-
ingar orðið varir við hreyfiveiki og
fundið verulega fyrir henni þrátt
fyrir að hreyfa sig ekki.“
Hannes segir að þróun manns-
ins sé á þessa leið og að við séum
háðari sjóninni en áður þegar
kemur að jafnvægi. „Vægi þefskyns
og innra eyra í jafnvægisskynjun
hefur minnkað en augun tekið að
miklu leyti yfir. Þessi þróun hefur
átt sér stað lengi. Þetta er því eitt-
hvað sem við þurfum að rannsaka í
sambandi við nútímatækni,“ bætir
Hannes við.
Á ráðstefnunni í júlí munu koma
vísindamenn og fyrirlesarar frá
um fimmtán þjóðum þar sem farið
verður yfir stöðu þekkingar á þessu
sviði. Vonir standa til að á annað
hundrað gesta komi einnig og verði
viðstaddir rannsóknina og taki
þátt. – sa
Fimm háskólar að baki sjóveikisetri
Ráðstefnan um hreyfiveiki verður haldin í Hofi og hefst þann 7. júlí næstkomandi. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
Til að mynda
verður heilum
eftirmiðdegi á ráðstefnunni
varið í rannsóknir á hreyfi-
veiki í sjálfkeyrandi bílum.
Hannes Petersen,
háls-, nef- og eyrnalæknir
1 5 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
5
-0
6
-2
0
1
9
0
4
:5
1
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
B
-0
D
7
4
2
3
3
B
-0
C
3
8
2
3
3
B
-0
A
F
C
2
3
3
B
-0
9
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
8
0
s
_
1
4
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K