Fréttablaðið - 15.06.2019, Page 28
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Líklega eru margir þegar búnir að ákveða fríið og panta sér far til annarra landa. Alltaf
eru þó einhverjir sem fá skyndi-
hugmynd og vilja drífa sig í hvelli.
Það eru margir góðir kostir í boði
fyrir fjölskyldur. Grikkland hefur
mikið aðdráttarafl en aðrir kjósa
Spán, nú eða bara vilja heimsækja
frændur okkar í Skandinavíu.
Það er hægt að finna mjög góðar
strandir á Norðurlöndum, meira
að segja með pálmatrjám, til
dæmis í Frederikshavn, Helsing-
borg og Kristiansand. Það geta
verið heit og góð sumur hjá
nágrannaþjóðum okkar, til dæmis
var Mallorca-veður þar í fyrra-
sumar. Á veturna færa þeir hins
vegar pálmatrén inn.
Svíþjóð er mikið sótt af ferða-
mönnum á sumrin enda alls kyns
ævintýri sem bíða þar. Mælt er
með að aka frá norsku landa-
mærunum til Gautaborgar. Á
leiðinni eru fallegir smábæir og
litlir gististaðir. Akið í gegnum
Grebbestad, Strømstad og Smögen
að ekki sé minnst á Fjellbäcka sem
núna er þekktastur sem blóðugasti
bærinn eftir að bækur Camillu
Läckberg urðu vinsælar en hún er
vel þekktur glæpasagnahöfundur.
Þá er ævintýri að heimsækja
heiminn hennar Astrid Lindgren
í Vimmerby í Smálöndunum en
börn um víða veröld þekkja vel
söguperónur hennar. Einnig er
áhugavert að skoða Abba-safnið í
Stokkhólmi.
Það er líka margt fallegt að sjá
í Noregi, í dölum undir háum
fjöllum. Í hinum stórbrotna Slogen
er villt náttúran umvafin mikil-
Júlí er
tími ferðalaga
Flestir landsmenn taka sumarfrí í júlí. Margir ferðast um
landið eða dvelja í bústað til að fá einhverja tilbreytingu.
Aðrir fara til útlanda. Þá er spurningin: Hvert ætti að fara?
Eftirlíking af Björgvin í Noregi í Legolandi. Það þurfti ansi marga kubba í þessar byggingar. NORDICPHOTOS/GETTY
TusenFryd Amusement Park hefur upp á ótrúlega
margt skemmtilegt að bjóða. MYND/VISIT NORWAY
Astrid Lindgren-heimurinn er gríðarlega spennandi
staður fyrir fjölskylduna, jafnt smáa sem stóra.
fenglegu útsýni. Frábært fyrir
fjallagarpa að fara í gönguferðir á
þessum slóðum. Í ýmsum sveitum
í Noregi er hægt að leigja sumar-
bústað. Stór skemmtigarður er rétt
utan við Ósló þar sem hægt er að
eyða heilum degi með börnunum.
Garðurinn heitir TusenFryd
Amusement Park og hefur upp á
ótrúlega margt skemmtilegt að
bjóða fyrir allan aldur.
Kongsberg jazzfestival er stærsta
djasshátíð Noregs. Hún fer fram
dagana 3.-6. júlí í Kongsberg. Mörg
þekkt nöfn koma þar fram og má
nefna Jamie Cullin, Madrugada,
Take 6 og Acapella. Hægt er að
kynna sér dagskrána á heima-
síðunni kongsbergjazz.no.
Kristiansand, Palmesus er ein
stærsta strandveisla á Norður-
löndum. Hún fer fram 5.-6. júlí.
Það er mikið stuð á ströndinni og
þegar partíið er búið um mið-
nætti færist fjörið inn í bæinn.
Meðal þeirra sem koma fram eru
Marshmello, Tiësto, Alan Walker,
Ferrari og Sigrid.
Í júlí verða margvíslegar uppá-
komur hjá frændum okkar á
Norðurlöndum. Ein sú frægasta er
Hróarskelduhátíðin í Danmörku.
Hún er stærsta og vinsælasta
útihátíðin á Norðurlöndum.
Hátíðin stendur yfir dagana 29.
júní til 6. júlí. Mikill fjöldi frægra
tónlistarmanna kemur þar fram.
Íslendingar hafa fjölmennt þangað
á hverju ári. Auk þess er alltaf
gaman að heimsækja Kaupmanna-
höfn, dýragarðinn, Tívolíið eða
Lególand í Billund.
Skoðið visitnorway.com, visitden-
mark.com og visitsweden.com til
að fá góðar hugmyndir um afþrey-
ingu og spennandi staði í þessum
löndum.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 5 . J Ú N Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
1
5
-0
6
-2
0
1
9
0
4
:5
1
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
B
-1
7
5
4
2
3
3
B
-1
6
1
8
2
3
3
B
-1
4
D
C
2
3
3
B
-1
3
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
8
0
s
_
1
4
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K