Fréttablaðið - 15.06.2019, Page 30
Sólrún
Freyja Sen
solrunfreyja@frettabladid.is
Innritun stendur yfir.
Samtökin halda opna fundi þar sem eru haldnir fyrir-lestrar um hina ýmsu tölvu-
leikjatengdu hluti. Alexandra
Bjargardóttir, einn stofnenda
Leikjahönnuða Íslands, segir að
frá því að samtökin voru stofnuð
hafi sífellt f leiri mætt á við-
burði hjá þeim. Sjálf heldur hún
stundum fyrirlestra um markaðs-
setningu tölvuleikja enda vinnur
hún sem markaðsfræðingur hjá
CCP.
Keppast ekki um upplýs-
ingar
Oft gefa Leikjahönnuðir Íslands
smærri tölvuleikjaframleiðendum
orðið sem fá þá að kynna starfsemi
sína á fundunum. „Það er hellingur
af litlum tölvuleikjafyrirtækjum
að gera f lotta hluti og við viljum
gefa þeim grundvöll til að koma
fram og segja frá því sem þau eru
að gera, hvernig og af hverju.“
Síðan eru líka afslappaðri við-
burðir þar sem fólk getur komið
og spjallað við einstaklinga sem
starfa í iðnaðinum. „Um daginn
vorum við með viðburð sama dag
og útskrift var úr Margmiðlunar-
skólanum.
Þá fór hellingur úr útskriftar-
hópnum beint úr athöfninni og
inn til okkar þar sem þau kynnt-
ust öllu fólkinu í íslenska leikja-
iðnaðinum. Þannig að við erum
líka að reyna að tengja nýtt fólk
inn og deila þekkingu með því.“
Að sögn Alexöndru er það eitthvað
sem tölvuleikjaiðnaðurinn hefur
verið þekktur fyrir.
Tölvuleikjasmiðir hjálpast að í
staðinn fyrir að fela upplýsingar
og keppast um þær. „Það eru svo
margir að reyna að leysa sömu
vandamálin og það eru f lestir til-
búnir að hjálpa hver öðrum.“
Reyna að fá fleiri konur
Alexandra segir að það séu alltaf
f leiri og f leiri konur sem hafa
áhuga á tölvuleikjasmíð eða
að vinna í leikjaiðnaðinum, en
kostirnir við fjölbreyttan hóp bak
við tölvuleiki eru margir.
„Það eru alls konar hlutverk sem
þarf að gegna og það tapa allir ef
öll hlutverkin eru fyllt af þrítugum
karlmönnum sem fóru í tölvunar-
fræði í Háskóla Reykjavíkur. Það
verður að vera fjölbreytni því
þannig gerum við betri tölvuleiki.
Það hefur líka verið sýnt fram á
að þannig seljum við f leiri tölvu-
leiki,“ en Alexandra segir að því
fjölbreyttari hópur sem standi
bak við tölvuleikina, því breiðari
sé hópur kaupenda sem leikirnir
höfða til. Margir mismunandi
hópar koma að framleiðslu
tölvuleikja sem krefst hæfileika á
mörgum sviðum.
Alexandra hefur tekið eftir að
f leiri konur eru farnar að mæta
á viðburði hjá Leikjahönnuðum
Íslands. „Ég held að ein af ástæð-
unum fyrir því sé að við sem
stofnuðum samtökin erum mjög
meðvitað að reyna að koma fleiri
konum inn á viðburði hjá okkur,
sama hvort þær vinna í iðnaðinum
eða ekki. Við tökum það alltaf
fram þegar við auglýsum viðburði
að allir séu velkomnir hafi þeir
áhuga á að koma. Síðan hef ég
verið sýnileg á vegum samtakanna
sem ég held að hjálpi. Ég held að
fyrirmyndir séu mjög mikilvægar.“
Sýna listræna tölvuleiki
Í skipuleggjendahóp Isle of Games
tölvuleikjasýningarinnar í ár
er einmitt meirihlutinn konur.
Sýningin var haldin í fyrsta sinn í
fyrra og skipuleggjendur hennar
leggja áherslu á að sýna listræna
tölvuleiki.
Í hópnum eru Marín Björt
Valtýsdóttir, Kristín Guðmunds-
dóttir, Jóhanna Ásgeirsdóttir,
Alexandra Bjargardóttir og Auður
Ákadóttir ásamt Hauki Steini
Logasyni, Jóhannesi Sigurðarsyni,
Owen Hindley, Torfa Ásgeirssyni
og Jonatan Van Hove. Vegna þess
að kynjahlutföllin eru nokkurn
veginn jöfn telur Alexandra ekki
hafa verið þörf á meðvitaðri stefnu
um að jafna hlut kynjanna á
sýningunni.
Leikjasýningin Isle of Games
verður ósjálfkrafa fjölbreytt
„Við erum svo margar konurnar
í Isle of Games og við þekkjum
margar frambærilegar listakon-
ur sem hafa verið að leika sér að
því að búa til tölvuleiki. Við lítum
líka á skipulagshópinn sem lista-
mannahóp og stefnum á að allir úr
hópnum sýni eitthvað, sama hvað
það er.
Líklega verða sumir leikirnir
samvinnuverkefni milli með-
lima hópsins og þar af leiðandi
verða alltaf kvenkyns höfundar á
sýningunni.
Ef hópurinn væri ekki svona
fjölbreyttur þyrftum við kannski
að leggja meðvitaðri áherslu á
fjölbreytni í verkum sem verða
til sýnis, en ef hópurinn sem
stendur að baki sýningarinnar er
fjölbreyttur þá verður sýningin
næstum ósjálfrátt fjölbreytt líka.“
Konum að fjölga í tölvuleikjasmíð
Alexandra Bjargardóttir er einn
stofnenda Leikjahönnuða Íslands.
Leikjahönnuðir Íslands gefa smærri fyrirtækjum grundvöll til að kynna sig.
Sífellt fleiri konur mæta á viðburði hjá Leikjahönnuðum Íslands, enda er stefna samtakanna að fá fjölbreyttan hóp gesta á viðburði hjá sér.
Leikjahönnuðir
Íslands eru sam-
tök sem voru
stofnuð með það
í huga að opna
tölvuleikjasmíð
fyrir fleira fólki.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 5 . J Ú N Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
1
5
-0
6
-2
0
1
9
0
4
:5
1
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
B
-2
B
1
4
2
3
3
B
-2
9
D
8
2
3
3
B
-2
8
9
C
2
3
3
B
-2
7
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
8
0
s
_
1
4
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K