Fréttablaðið - 15.06.2019, Page 35
Yfirvélstjóra vantar
á Kristínu GK-457
Kristín er línuveiðiskip
með beitningarvél .
Nánari upplýsingar gefur skipstjóri í
síma 856-5730 eða útgerðarstjóri
í síma 856-5700.
Einnig er hægt að sækja um á
heimasíðu Vísis hf á visirhf.is.
Við Grunnskóla Grindavíkur er
laus staða grunnskólakennara
á yngsta stigi
Umsóknarfrestur er til 23. júní
en ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2019.
Allur aðbúnaður og umhverfi skólans er til fyrirmyndar.
Sjá nánar á heimasíðu skólans
http://www.grindavik.is/grunnskolinn.
Við leitum að einstaklingi með réttindi til kennslu í grunnskóla
sem er metnaðarfullur og góður í mannlegum samskiptum, með
skipulagshæfileika, er sveigjanlegur og tilbúinn að leita nýrra
leiða í skólastarfi. Skólinn vinnur í anda Uppeldi til ábyrgðar.
Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra
sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Umsóknir skulu berast Grunnskóla Grindavíkur Ásabraut 2, 240
Grindavík eða sendist á netfangið gudbjorgms@grindavik.is
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg M. Sveinsdóttir skólastjóri í
síma 420-1200.
Hljóðbókasafn Íslands auglýsir eftir
starfsmanni, sérfræðingi,
með sérþekkingu í gerð rafbóka.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem Fjármála- og
efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Hljóðbókasafn Íslands er ríkisstofnun sem þjónar prent-
leturshömluðum þegar kemur að aðgengi að prentuðu
máli.
Gerð og þróun rafrænna bóka er sífellt að verða notenda-
vænni og Hljóðbókasafnið vill og verður að taka þátt í
þeirri framvindu. Því auglýsum við eftir starfskrafti með
sérþekkingu á þeim sviðum er þetta varðar. Starfið er
þróunarstarf og spennandi möguleikar í boði.
Starfshlutfall er 100%
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í ágúst nk.
Hæfnikröfur
• Góð almenn menntun sem nýtist í starfi
• Þekking á gerð rafrænna bóka (Epub3 …)
• Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér
nýjungar á því sviði
• Góð samstarfshæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum og rík
þjónustulund
• Góð almenn tungumálaþekking
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
1. Ferilskrá
2. Staðfest afrit af prófskírteinum
3. Meðmæli
4. Upplýsingar um umsagnaraðila
Umsóknarfrestur er til og með 28. júní nk.
Umsókn skal sendast til: forstodumadur@hbs.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veitir:
Einar Hrafnsson - forstodumadur@hbs.is - 5454907
Hljóðbókasafn Íslands
Digranesvegi 5
200 Kópavogur
Ráðgjafar okkar búa
yfir víðtækri þekkingu
á atvinnulífinu og
veita trausta og
persónulega ráðgjöf.
capacent.is
Við finnum rétta
einstaklinginn
í starfið
1
5
-0
6
-2
0
1
9
0
4
:5
1
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
3
B
-0
3
9
4
2
3
3
B
-0
2
5
8
2
3
3
B
-0
1
1
C
2
3
3
A
-F
F
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
8
0
s
_
1
4
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K