Fréttablaðið - 15.06.2019, Page 52
Eiríksstaðir eru
fornar húsarústir
þar sem talið er að Eirík-
ur rauði og Þjóðhildur
kona hans hafi búið.
Árið 2000 var reistur
tilgátubær um 100
metrum frá rústum
Eiríksstaða.
Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is
Kung fu
og
kínversku
Sumarnámskeið fyrir börn
og unglinga sem vilja læra
18. júní
til
18. júlí
Evonia er hlaðin bæti-
efnum sem næra hárið
og gera það gróskumeira.
Myndirnar hér til hliðar
sýna hversu góðum árangri
er hægt að ná með Evonia.
Evonia
www.birkiaska.isFyrir Eftir
Evonia eykur
hárvöxt með því
að veita hárrótinni
næringu og styrk.
Nýir rekstraraðilar tóku við rekstri Eiríksstaða í byrjun maí. Nokkrar breytingar eru
fram undan á rekstri staðarins og
nýju rekstraraðilarnir eru spenntir
fyrir að takast á við verkefnið.
Eiríksstaðir eru fornar húsarústir
þar sem talið er að Eiríkur rauði og
Þjóðhildur kona hans hafi búið.
Árið 2000 var reistur tilgátubær um
100 metrum frá rústum Eiríks-
staða. Tilgátubænum er ætlað að
gefa nokkuð rétta mynd af upp-
runalega bænum.
„Við tókum við 1. maí og opn-
uðum þá. Við bjóðum upp á leið-
sögn um tilgátuhúsið og erum líka
með minjagripabúð og matarvagn.
Þar er boðið upp á bæði 21. aldar
og 10. aldar mat,“ segir Bjarnheiður
Jóhannsdóttir ein þeirra sem
sjá um rekstur bæjarins. Matar-
vagninn verður opnaður núna um
helgina og þar er til dæmis boðið
upp á þjóðlegan mat eins og kjöt-
súpu, hangikjöt, reyktan silung
og flatbrauð. Auk þessi er í boði
nútímalegri matur eins og sam-
lokur og fleira.
Víkingafjör á Eiríksstöðum
Sigurbjörg Kristmundsdóttir, Pétur Guðsteinsson, Reynir Guðbrandsson og Bjarnheiður Jóhannsdóttir í fullum
skrúða utan við tilgátubæinn. Það verður hátíðarstemning um Jónsmessuna. MYND/SUNNEFA ÞÓRARINSDÓTTIR
Nýir aðilar hafa
tekið við rekstri
á Eiríksstöðum
í Haukadal og
bjóða upp á ýms-
ar nýjungar.
Gestir sem koma á Eiríksstaði
geta fræðst um Eirík rauða og
Leif heppna og lært um lífshætti
á víkingaöld. „Við sýnum hvernig
vopnin litu út. Tölum um hvernig
leikir voru stundaðir, hvernig
matur var borðaður og svo fram-
vegis. Að sjálfsögðu segjum við
líka frá því hvernig var að búa í
svona húsi eins og tilgátuhúsinu,“
segir Bjarnheiður. „Þetta er svona
skemmtimenntun. Fólk lærir og
skemmtir sér um leið. Það er fullt
af góðum tækifærum til að taka
myndir, eins og til dæmis þegar fólk
skellir sér í hringabrynjuna sem við
erum með hérna.“
Um Jónsmessuna verður hátíðar-
stemning á Eiríksstöðum. Þá verður
opið til klukkan 19.00 og meðal
annars hægt að fá sér vöfflur og
rjóma. Það verður hægt að æfa sig í
bogfimi og fólk getur lært að spila
hnefatafl. „Þeir sem koma í víkinga-
búningi geta fengið leiðsögn á
hálfvirði. Það verður gaman að sjá
hvort einhverjir koma í búningi,“
segir Bjarnheiður.
„Við ætlum líka að leyfa
krökkum að máta föt og hjálma
og prófa vopnin. Þetta eru eftirlík-
ingar af vopnum, ekkert beitt eða
hættulegt. Stefnan er að vera með
skemmtilega fjölskyldustemningu
þessa helgi.“
Síðustu helgina í ágúst er
áformað að halda Víkingahátíð á
Eiríksstöðum. Dagskráin er enn í
mótun en Bjarnheiður segir að von
sé á sérfræðingum, íslenskum og
erlendum, sem ætla að prófa að búa
til járn á sama hátt og víkingarnir.
„Þeir ætla að reyna að finna út
hvernig járn var búið til á Íslandi.
Við vitum að það var búið til, en
við vitum ekki hvernig. Það voru
sennilega notaðir einhvers konar
torfofnar. Kannski var notaður
íslenskur leir. Við vitum það ekki.
Við ætlum að gera tilraunir með
þetta. Þetta verður mikið járn-
gerðarævintýri.“
Þegar leiðsögn um Eiríksstaði
verður lokað yfir vetrartímann er
stefnan að bjóða hópum að koma
á staðinn. „Við erum með allskyns
hugmyndir. Það eru til dæmis mjög
margir að spila spunaspil. Þetta er
frábært umhverfi fyrir slíkt. Við
erum með torfhús og langeld. Það
væri gaman að geta boðið spila-
hópum að koma hingað og búa til
stemningu og rétt andrúmsloft
fyrir flottan leik,“ segir Bjarn-
heiður. „Eins er á dagskrá að taka
á móti fólki í norðurljósaferðir.
Okkur hefur jafnvel dottið í hug
að bjóða fólki að vera á staðnum
yfir nótt. Við höfum velt ýmsum
möguleikum fyrir okkur.“
Save the Children á Íslandi
Job.is
GLÆNÝ OG
FERSK STÖRF
Í HVERRI VIKU
Þú finnur draumastarfið á
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 5 . J Ú N Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
1
5
-0
6
-2
0
1
9
0
4
:5
1
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
3
B
-2
6
2
4
2
3
3
B
-2
4
E
8
2
3
3
B
-2
3
A
C
2
3
3
B
-2
2
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
8
0
s
_
1
4
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K