Fréttablaðið - 15.06.2019, Side 70
Gríman er uppskeruh á t í ð í s l e n s k r a sviðslista, blanda af verðlaunahátíð og árshátíð. Endalaust má deila um þýð
ingu og merkingarbærni verðlauna
í listum en eitt er víst að Gríman er
kjörið tækifæri til að hampa því frá
bæra sviðslistafólki sem þjóðin á.
Tilnefningarnar til Grímunnar
fóru um víðan völl þar sem Rík
harður III í leikstjórn Brynhildar
Guðjónsdóttur í Borgarleikhúsinu
stóð uppi með þær f lestar, en fast
á eftir kom Súper eftir Jón Gnarr
í sviðsetningu Þjóðleikhússins.
Loddarinn í leikstjórn Stefan Metz
fékk einungis tvær tilnefningar,
báðar fyrir leik, sorgleg niðurstaða
fyrir eina bestu sýningu leikársins.
Breytingar hafa orðið á Grímunni
síðastliðin ár, sumar jákvæðar,
aðrar alls ekki. Stærsta breytingin
er sú að núna eru allir f lokkarnir
tilkynntir í beinni útsendingu, það
ganga allir jafnir til sviðs. Einnig
er búið að klippa út aðalkynninn
og þétta þannig útsendinguna. En
fyrr má nú vera. Svo mikil áhersla
var lögð á að standast tímatakmörk
að bæði Vala Kristín Eiríksdóttir
og Bára Sigfúsdóttir voru hrein
lega básúnaðar af sviðinu þegar
þær voru að tala um mikilvægi list
formsins. Er ekki kominn tími til að
Gríman fái listrænan stjórnanda?
Einhvern sem stjórnar ekki bara
útsendingunni heldur skipuleggur
verðlaunaafhendinguna út frá list
rænum sjónarmiðum.
Heildarmynd afhendingarinnar
var mjög brotakennd. Sýningin
byrjaði á góðri en illa útfærðri hug
mynd. Útskriftarnemar LHÍ stóðu
sig með prýði en áhorfendur fengu
ekki að vita að atriðið var úr Mutt
er Courage eftir Brecht leikstýrt af
Mörtu Nordal. Innslögin frá leik
húsunum virtust koma úr öllum
áttum; upptökur úr sýningum,
sviðsett í beinni eða heilu auglýs
ingarnar um komandi leikár. Mynd
brotið frá Þjóðleikhúsinu var ekki
einungis sérlega ófyndið og langt
heldur líka smekklaust. Ef þetta átti
að vera satíra þá var hún illskiljan
leg, listina að setja saman leikár og
sviðslistafólk þarf að virða.
A lmennt vor u niðu rstöður
Grímunefndarinnar hinar fínustu.
Ríkharður III stóð uppi sem sigur
vegari kvöldsins með sex verðlaun;
sýning ársins, Brynhildur hlaut
verðlaunin sem besti leikstjórinn
og Hjörtur Jóhann var valinn besti
leikarinn. Sólveig Guðmundsdóttir
hlaut síðan óvænt verðlaunin fyrir
bestu leikkonu ársins, hún er vel að
verðlaununum komin. Sömuleiðis
var gaman að sjá Club Romantica
eftir Friðgeir Einarsson hreppa
verðlaun sem besta leikritið.
Hápunktur verðlaunanna var
efalaust mögnuð ræða Þórhildar
Þorleifsdóttir sem hlaut heiðurs
verðlaun Grímunnar. Hún á þennan
heiður svo sannarlega skilið enda
brautryðjandi á sviðinu sem og
fyrirmynd fyrir ungar konur.
Gríman er ákveðin endurspeglun
á íslenska sviðslistaheiminum, en
hún er ansi bjöguð eins og er. Sviðs
listasamband Íslands og RÚV þurfa
að endurhugsa útsendingu og fram
setningu Grímunnar frá grunni.
Gríman á að sviðsetja og fagna öllu
því góða sem íslenskar sviðslistir
hafa fram að færa, bæði í orðum og
gjörðum. Sigríður Jónsdóttir
Hin mörgu andlit Grímunnar
Almennt voru niðurstöður Grímunefndarinnar hinar fínustu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Leikhúsgagnrýn-
andi Fréttablaðsins
skrifar um Grím-
una, íslensku sviðs-
listaverðlaunin.
SVIÐSLISTASAMBAND
ÍSLANDS OG RÚV
ÞURFA AÐ ENDURHUGSA
ÚTSENDINGU OG FRAMSETN-
INGU GRÍMUNNAR FRÁ GRUNNI.
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Laugardagur
hvar@frettabladid.is
15. JÚNÍ 2019
Fjölskyldudagskrá
Hvað? Smíðasmiðja fyrir börn og
aðstandendur
Hvenær? 11.00-12.30
Hvar? Listasafnið á Akureyri
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir
myndlistarmaður leiðir ókeypis
smiðju.
Hvað? Geysisdagurinn
Hvenær? 11.00-15.00
Hvar? Skipholt 29
Karnivalstemning: Fjölskyldu
hátíð Klúbbsins Geysis: Örþon,
Eliza Reid ræsir, tónlist, veitingar,
f lóamarkaður, óvæntar uppá
komur. Allir velkomnir.
Hvað: Ratleikur
Hvenær: 13.00-15.00
Hvar: Menningarhúsin í Kópavogi,
Hamraborg 4-6
Teiknaðu, mældu og pældu í
myndlist, arkitektúr, bókum,
vegalengdum og náttúrunni. Rat
leikurinn kynntur á fjölskyldu
stund sem er ókeypis. Eintök fást
afhent í Gerðarsafni, bókasafni og
Náttúrufræðistofu Kópavogs og er
á íslensku, ensku og pólsku.
Myndlist
Hvað? Áþreifanlegir kraftar
Hvenær? 16.00
Hvar? Ásmundarsafn við Sigtún
Sýning á verkum Jóhanns Eyfells.
Hvað? Hvernig hefurðu það? Eftir
Godard.
Hvenær? 14.00-19.00
Hvar? Verksmiðjan á Hjalteyri
Samsýning 12 listamanna opnuð.
Tónlist
Hvað: Hjálmar í Havaríi
Hvenær: 21.00
Hvar: Karlsstaðir, Berufirði
Hvað? Kvartett Reynis Sigurðssonar
Hvenær? 15.00-17.00
Hvar? Jómfrúin, Lækjargötu - úti
Aðgangur er ókeypis.
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Sunnudagur
hvar@frettabladid.is
16. JÚNÍ 2019
Fjölskyldudagskrá
Hvað? Hugleiðsla
Hvenær? 8.00 -10.00
Hvar? Midpunkt, Hamraborg 22
Eva Bjarnadóttir myndlistarkona
býður upp á fría hugleiðslu undir
leiðsögn Estridar Thorvaldsdóttur
á sýningunni Í morgunsárið.
Hvað? Kátt í Kramhúsinu
Hvenær? 11.00-17.30
Hvar? Kramhúsið, Skólavörðustíg
12
Barna og fjölskyldudagur til
styrktar Jónu Ottesen sem slasað
ist 1. júní í bílslysi. Ýmsir dans og
leikfimitímar í boði á 2.500 4.000
krónur.
Hvað? Plöntuskoðun á degi villtra
blóma
Hvenær? 11.00
Hvar? Rauðhólar í Heiðmörk
Hjörtur Þorbjörnsson, forstöðu
maður Grasagarðsins, leiðir
ókeypis göngu. Fólk er hvatt til
að taka með sér f lórubækur og
stækkunargler.
Hvað? Heimilisiðnaðardagurinn
Hvenær? 13.00-17.00
Hvar? Árbæjarsafn
Knipl, baldýring, orkering.
Tónlist og dans
Hvað? Stofutónleikar
Hvenær? 16.00
Hvar? Gljúfrasteinn, Mosfellsdal.
Gunnar Gunnarsson og Tómas
R. Einarsson bregða fyrir sig nor
rænum vísum, klassískri djass
sveiflu og dillandi latíntakti.
Hvað? Danspartý
Hvenær? 20.00
Hvar? Hard Rock Cafe, Lækjargötu
2A
Dans og kúltúr kynnir alls kyns
dansstíla. Frítt inn.
Hjálmar spila í Havaríi á Berufjarð-
arströnd í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Dagur hinna villtu blóma er á morgun, 16. júní, og
plöntuskoðun í Rauðhólum af því tilefni.
1 5 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R38 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
1
5
-0
6
-2
0
1
9
0
4
:5
1
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
3
B
-2
1
3
4
2
3
3
B
-1
F
F
8
2
3
3
B
-1
E
B
C
2
3
3
B
-1
D
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
0
8
0
s
_
1
4
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K