Fréttablaðið - 15.06.2019, Síða 70

Fréttablaðið - 15.06.2019, Síða 70
Gríman er uppskeru­h á t í ð í s l e n s k r a sviðslista, blanda af verðlaunahátíð og árshátíð. Endalaust má deila um þýð­ ingu og merkingarbærni verðlauna í listum en eitt er víst að Gríman er kjörið tækifæri til að hampa því frá­ bæra sviðslistafólki sem þjóðin á. Tilnefningarnar til Grímunnar fóru um víðan völl þar sem Rík­ harður III í leikstjórn Brynhildar Guðjónsdóttur í Borgarleikhúsinu stóð uppi með þær f lestar, en fast á eftir kom Súper eftir Jón Gnarr í sviðsetningu Þjóðleikhússins. Loddarinn í leikstjórn Stefan Metz fékk einungis tvær tilnefningar, báðar fyrir leik, sorgleg niðurstaða fyrir eina bestu sýningu leikársins. Breytingar hafa orðið á Grímunni síðastliðin ár, sumar jákvæðar, aðrar alls ekki. Stærsta breytingin er sú að núna eru allir f lokkarnir tilkynntir í beinni útsendingu, það ganga allir jafnir til sviðs. Einnig er búið að klippa út aðalkynninn og þétta þannig útsendinguna. En fyrr má nú vera. Svo mikil áhersla var lögð á að standast tímatakmörk að bæði Vala Kristín Eiríksdóttir og Bára Sigfúsdóttir voru hrein­ lega básúnaðar af sviðinu þegar þær voru að tala um mikilvægi list­ formsins. Er ekki kominn tími til að Gríman fái listrænan stjórnanda? Einhvern sem stjórnar ekki bara útsendingunni heldur skipuleggur verðlaunaafhendinguna út frá list­ rænum sjónarmiðum. Heildarmynd afhendingarinnar var mjög brotakennd. Sýningin byrjaði á góðri en illa útfærðri hug­ mynd. Útskriftarnemar LHÍ stóðu sig með prýði en áhorfendur fengu ekki að vita að atriðið var úr Mutt­ er Courage eftir Brecht leikstýrt af Mörtu Nordal. Innslögin frá leik­ húsunum virtust koma úr öllum áttum; upptökur úr sýningum, sviðsett í beinni eða heilu auglýs­ ingarnar um komandi leikár. Mynd­ brotið frá Þjóðleikhúsinu var ekki einungis sérlega ófyndið og langt heldur líka smekklaust. Ef þetta átti að vera satíra þá var hún illskiljan­ leg, listina að setja saman leikár og sviðslistafólk þarf að virða. A lmennt vor u niðu rstöður Grímunefndarinnar hinar fínustu. Ríkharður III stóð uppi sem sigur­ vegari kvöldsins með sex verðlaun; sýning ársins, Brynhildur hlaut verðlaunin sem besti leikstjórinn og Hjörtur Jóhann var valinn besti leikarinn. Sólveig Guðmundsdóttir hlaut síðan óvænt verðlaunin fyrir bestu leikkonu ársins, hún er vel að verðlaununum komin. Sömuleiðis var gaman að sjá Club Romantica eftir Friðgeir Einarsson hreppa verðlaun sem besta leikritið. Hápunktur verðlaunanna var efalaust mögnuð ræða Þórhildar Þorleifsdóttir sem hlaut heiðurs­ verðlaun Grímunnar. Hún á þennan heiður svo sannarlega skilið enda brautryðjandi á sviðinu sem og fyrirmynd fyrir ungar konur. Gríman er ákveðin endurspeglun á íslenska sviðslistaheiminum, en hún er ansi bjöguð eins og er. Sviðs­ listasamband Íslands og RÚV þurfa að endurhugsa útsendingu og fram­ setningu Grímunnar frá grunni. Gríman á að sviðsetja og fagna öllu því góða sem íslenskar sviðslistir hafa fram að færa, bæði í orðum og gjörðum. Sigríður Jónsdóttir Hin mörgu andlit Grímunnar Almennt voru niðurstöður Grímunefndarinnar hinar fínustu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Leikhúsgagnrýn- andi Fréttablaðsins skrifar um Grím- una, íslensku sviðs- listaverðlaunin. SVIÐSLISTASAMBAND ÍSLANDS OG RÚV ÞURFA AÐ ENDURHUGSA ÚTSENDINGU OG FRAMSETN- INGU GRÍMUNNAR FRÁ GRUNNI. Hvað? Hvenær? Hvar? Laugardagur hvar@frettabladid.is 15. JÚNÍ 2019 Fjölskyldudagskrá Hvað? Smíðasmiðja fyrir börn og aðstandendur Hvenær? 11.00-12.30 Hvar? Listasafnið á Akureyri Aðalheiður S. Eysteinsdóttir myndlistarmaður leiðir ókeypis smiðju. Hvað? Geysisdagurinn Hvenær? 11.00-15.00 Hvar? Skipholt 29 Karnivalstemning: Fjölskyldu­ hátíð Klúbbsins Geysis: Örþon, Eliza Reid ræsir, tónlist, veitingar, f lóamarkaður, óvæntar uppá­ komur. Allir velkomnir. Hvað: Ratleikur Hvenær: 13.00-15.00 Hvar: Menningarhúsin í Kópavogi, Hamraborg 4-6 Teiknaðu, mældu og pældu í myndlist, arkitektúr, bókum, vegalengdum og náttúrunni. Rat­ leikurinn kynntur á fjölskyldu­ stund sem er ókeypis. Eintök fást afhent í Gerðarsafni, bókasafni og Náttúrufræðistofu Kópavogs og er á íslensku, ensku og pólsku. Myndlist Hvað? Áþreifanlegir kraftar Hvenær? 16.00 Hvar? Ásmundarsafn við Sigtún Sýning á verkum Jóhanns Eyfells. Hvað? Hvernig hefurðu það? Eftir Godard. Hvenær? 14.00-19.00 Hvar? Verksmiðjan á Hjalteyri Samsýning 12 listamanna opnuð. Tónlist Hvað: Hjálmar í Havaríi Hvenær: 21.00 Hvar: Karlsstaðir, Berufirði Hvað? Kvartett Reynis Sigurðssonar Hvenær? 15.00-17.00 Hvar? Jómfrúin, Lækjargötu - úti Aðgangur er ókeypis. Hvað? Hvenær? Hvar? Sunnudagur hvar@frettabladid.is 16. JÚNÍ 2019 Fjölskyldudagskrá Hvað? Hugleiðsla Hvenær? 8.00 -10.00 Hvar? Midpunkt, Hamraborg 22 Eva Bjarnadóttir myndlistarkona býður upp á fría hugleiðslu undir leiðsögn Estridar Thorvaldsdóttur á sýningunni Í morgunsárið. Hvað? Kátt í Kramhúsinu Hvenær? 11.00-17.30 Hvar? Kramhúsið, Skólavörðustíg 12 Barna­ og fjölskyldudagur til styrktar Jónu Ottesen sem slasað­ ist 1. júní í bílslysi. Ýmsir dans­ og leikfimitímar í boði á 2.500 ­ 4.000 krónur. Hvað? Plöntuskoðun á degi villtra blóma Hvenær? 11.00 Hvar? Rauðhólar í Heiðmörk Hjörtur Þorbjörnsson, forstöðu­ maður Grasagarðsins, leiðir ókeypis göngu. Fólk er hvatt til að taka með sér f lórubækur og stækkunargler. Hvað? Heimilisiðnaðardagurinn Hvenær? 13.00-17.00 Hvar? Árbæjarsafn Knipl, baldýring, orkering. Tónlist og dans Hvað? Stofutónleikar Hvenær? 16.00 Hvar? Gljúfrasteinn, Mosfellsdal. Gunnar Gunnarsson og Tómas R. Einarsson bregða fyrir sig nor­ rænum vísum, klassískri djass­ sveiflu og dillandi latíntakti. Hvað? Danspartý Hvenær? 20.00 Hvar? Hard Rock Cafe, Lækjargötu 2A Dans og kúltúr kynnir alls kyns dansstíla. Frítt inn. Hjálmar spila í Havaríi á Berufjarð- arströnd í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Dagur hinna villtu blóma er á morgun, 16. júní, og plöntuskoðun í Rauðhólum af því tilefni. 1 5 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R38 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 1 5 -0 6 -2 0 1 9 0 4 :5 1 F B 0 8 0 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 3 B -2 1 3 4 2 3 3 B -1 F F 8 2 3 3 B -1 E B C 2 3 3 B -1 D 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 B F B 0 8 0 s _ 1 4 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.