Ófeigur - 15.12.1951, Page 6
6
ÓFEIGUR
af stórblöðum landsins í té vitneskju um að hann sé
ekki kommúnisti, hvorki með Stalin eða Tito. Hins-
vegar nefnir hann nafnkunnugt enskt blað, „New States-
man“, er hann telur vera sér að skapi. Það blað er
eiginlega við hæfi Sigurðar Jónassonar þegar hann
er hvorki krati eða Framsóknarmaður, heldur mitt á
milli flokkanna. Eftir þessu er Laxness algerlega horf-
inn frá byltingarstarfseminni og orðinn borgaraleg-
ur og frjálslyndur. Þetta er eftirsóknarverð breyting
á skáldinu, frá því er hann ritaði Gerska ævintýrið, rétt
fyrir stríðið. Lýsti hann þar með velvild slátrun
þeirra bolsvíkinga, sem framkvæmt höfðu byltinguna
en stóðu í vegi fyrir valdhöfum, sem síðar voru komn-
ir í leikinn og vildu fórna mönnum, sem þeim þóttu
vera í vegi fyrir sér. Ber Gerska æfintýrið glöggan
vitnisburð um þá hættu, sem dugandi menn lenda í, að
því er snertir vitsmuni og manndóm, ef þeir nálgast
blóðvöll einræðisríkjanna.
*
Laxness er um suma eiginleika framar öllum þorra
skálda eins og Islendingar hafa kynnzt þeim. Hann fer
skynsamlega með vín og peninga. Meðan allt óð hér
á súðum í allsherjarbandalagi borgara og bolsivika, var
eingöngu hagur að láta líta á sig sem vin Rússa. Þá
var kjörorð núverandi liðsodda í íslenzkum stjórnmál-
um, að ekki væri hægt að stjórna landinu nema með
bolsivikum. Nú er þetta gerbreytt. Rússland borgar
lítið fyrir skáldverk, sem þýdd eru á tungu bolsivika.
Ameríka hefur borgað bezt, en þangað má enginn koma,
sem hefur rauðflekkótta sál. Laxness getur ef til vill
unnið verðlaun vestanhafs í annað sinn, en fær ekki
að nota peninga sína í landinu, og flutningur fjármagns
að vestan bundinn annmörkum, eins og reynslan sýnir.
Svíar, sem ráða yfir Nobelsverðlaununum, óttast enga
þjóð eins og Rússa og enga stefnu eins og bolsivism-
ann. Á íslandi gera borgararnir sig líklega til að úti-
loka kommúnista frá þátttöku eða forræði í félags-
málum.
*
Það er mikill ávinningur fyrir Laxness og íslenzkar
bókmenntir, ef þessi rithöfundur snýr nú af þeim veg-
um, sem orðið hafa frægð hans og þroska jafn ógiftu-
drjúgir eins og glíma Grettis við Glám með eftirfylgj-