Ófeigur - 15.12.1951, Qupperneq 7

Ófeigur - 15.12.1951, Qupperneq 7
ÖFEIGUR 7 andi álögum draugsins. Má Laxness vel vita, að þeir menn voru honum hollir, sem ráðlögðu honum að rjála ekki við bolsivismann og kúgunarkerfi hans. Hinsveg- ar var mjög misráðið, að lesa ekki bækur þessa höf- undar meir en gert var hin síðari ár. Hæfileikar hans eru svo ótvíræðir, að menn geta jafnvel lesið léttilega um saltfisk, sem búið er að breyta í fiðlu eða um guð- inn ,,brilljantin“ af því að neistar eru innan um hraun- grjótið. Munu menn bíða í nokkurri óvissu eftir þeim degi þegar næsta bók kemur frá bóndanum í Gljúfra- steini, því að um skáld getur hæglega brugðið til beggja vona um staðfestu á vegum bókmenntanna. * Ég brá einum af góðvinum Hermanns Jónassonar á einmæli á götunni og bað hann að tilgreina eitthvert þjóðmál, sem Hermann hefði haft áhuga fyrir og kom- ið í framkvæmd. Maðurinn hikaði um stund, til að leita í forðabúrum iífsreynslunnar. Að lokum rauf hann þögnina með þessum orðum: ,,Ég held að hann hafi haft áhuga fyrir Garðyrkjuskólanum“. „Hart er að leggja hönd á lamb fátæka mannsins,“ svaraði ég, ,,en fleira verður að gera heldur en gott þykir“. Útskýrði ég þá fyrir manninum, að Sigurður Einarsson hefði fyrst hreyft málinu á þingi. Síðan hefðu Framsóknar- menn tekið hugmyndina og sett um hana löggjöf. Var þá valin skólajörð, sem ég hafði keypt, þótt fast væri lagt á móti. Skólinn fékk þá jörð til umráða og þau hús bæði fyrir menn og búpening, sem ég hafði látið reisa á staðnum í almanna þágu. Nú vantaði heppi- legan forstöðumann. Ég var um þetta leyti á ferð í Svíþjóð, en brá mér til Kaupmannahafnar, til að hitta ungan garðyrkjufræðing úr Húnavatnssýslu, sem vel var af látið af kunnugum mönnum. Ég hitti Unnstein Ólafsson, leizt vel á hann og flutti svo málið að hann varð skólastjóri. Á þeim árum, sem liðin eru síðan, hefur hann gert skólann að fyrirmyndarstofnun. Má af þessu álykta, að lítið muni vera um framkvæmdir Hermanns í þágu almennings, úr því að svo mjög þurfti að seilast um öxl til lokunnar eftir persónulegum frama- verkum hans. Átti þó í hlut greindur maður, sem er nauðakunnugur stjórnmálaferli Hermanns. Þeagr Unnsteinn Ólafsson var fluttur inn í skólann á Reykjum, vildi Hermann tjalda því sem til var og

x

Ófeigur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.