Ófeigur - 15.12.1951, Page 15

Ófeigur - 15.12.1951, Page 15
ÖFEIGUR 15 ur draumfarir harðar. Kommúnistinn vekur stall- bróður sinn og spyr hverju sæti tröllskapur hans um nætur. Jón varpar mæðilega öndinni og cegir að sér hafi birzt í draumi dís úr Austurheimi og sagt í vand- lætingarróm: „Þið farið óvarlega, ungir sveinar. Hafið lagt út í innrás til Eyja, sem jafnvel stórdómarinn telur vera voðaferð nema með ærnum liðsfjölda. Hafið þið haft í frammi ofstopa og stórmæli við þann jarl eyjanna, sem nú nýtur þar einna mestrar hylli, en ekki gætt skynsamlegrar varúðar. Vita skuluð þið, að nú bíða 12 skjaldmeyjar, svo sterkar og vígfimar, að enginn karlmaður getur þreytt við þær jafnræðis- leik. Hafa þær bundizt samtökum um að grípa ykkur tvo og skíra ykkur karlmennskuskírn framan við höfuð- bryggju staðarins. Segjast þær vilja venja kögursveina úr Reykjavík af óþörfum komum til Eyja. Megi þeir vita, að bræður þeirra og unnustar muni ekki auðsótt- ir ef kvenmannsvæflur geti hreinsað svo rausnarlega frá sínum dyrum.“ „Ekki er mark að draumum," sagði bolsivikinn. „Mundi ég lítt duga við framkvæmd byltinga, ef ég léti ofsjónir hræða mig í mannraunum." Sagði hann, að kratar skýldu aldrei þrífast, og væru þessháttar menn varla til annars hæfir en að aka bifreiðum fram á miðjar nætur kringum Austurvöll. Dró nú til fulls fjandskapar milli sendimanna út af draumnum. Sím- aði kratinn til meginstöðva verðlagseftirlitsins og bað yfirmenn sína að skakka leikinn, því að kommúnistinn væri í uppreist móti sér og sjálfri réttargæzlunni. Nú kom til skjalanna ósýnilegur valdsmaður í Reykja- vík, sem stóð fyrir herhlaupinu. Hann sá, að ekki mátti við svo búið standa, þar sem uppreist var í liðinu og erfiðar spásagnir um málalokin. Var nú fenginn nýr maður til að koma á stundarfriði og bjarga lið- inu heim til Reykjavíkur með fullri sæmd og fá frið í Eyjum. Varð fyrir vali í þessa sendiför mið- aldra maður með heppilega æfingu í lífverði Jóns Bald- vinssonar. Þegar hann kemur á vettvang, er allt í upp- námi í Eyjum. Helgi kaupmaður búinn til varnar. Endurskoðendur í vígahug hvor móti öðrum. Annar hræddur við drauminn, en báðir við stórdómarann. Sendimaður boðaði frið. Helgi telur fyrsta skilyrði fyr-

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.