Ófeigur - 15.12.1951, Page 8

Ófeigur - 15.12.1951, Page 8
8 ÓFEIGUR hélt vígsluræðu. Var henni útvarpað. Vakti það furðu út um land, þegar menn heyrðu glímukappann byrja mál sitt með frásögnum um hans þátttöku í skóla- stofnun þessari. Ekki þóttist hann vita neitt um kaup- in á Reykjum og byggingu sjúkrahúss á staðnum fyrir brjóstveikt fólk. Ekki heldur um landnám Sigurðar búnaðarmálastjóra hinum megin við ána eða þá öldu, sem Sigurður Einarsson hafði vakið. Það er ömurlegt líf, að fást við stjórnmál í umbótaflokki, en hafa enga æðri hugsjón en þá, að endurtaka jafnt á degi sem nóttu gömlu bænina um að fá gefið sitt daglega brauð. Meðan Hermann beið eftir stuðningi bolsivika, 1942 —50, lét hann vini sína á Ströndum oft heyra þá kenn- ingu, að hann væri gæddur sömu gáfum eins og Hitler, sem þóttist hafa sjötta skilningsvitið. Með því gæti hann fundið á sér, hvað gera skyldi, þó að skynsemin kæmi þar hvergi nærri. Strandamönnum hafði ætíð þótt samanburður Hermanns við Hitler nokkuð furðu- legur. Og þegar sjötta skilvitið brást honum ár eftir ár og hann náði aldrei að verða forsætisráðherra með bolsvikingum, þrátt fyrir einlægan vilja og viðburði, fór einn af helztu stuðningsmönnum hans að skyggn- ast eftir ástæðunni fyrir hversvegna þingmanni þeirra hafði gengið vel mannvirðingaleitin um nokkur ár, en síðan tekið við auðn og giftuleysi. Að lokum kom Strandamaðurinn með nýja skýringu: Sjötta skilvit Hermanns var Jónas. Þessi skýring fullnægir með skýringu. Hermann hef- ur ekki nema fimm skilvit. Hann er algerlega hug- myndalaus nema um það, sem snertir hans daglega brauð. Hann græddi í nokkur ár á samvistum við mig, þó að ég hafi enga dulargáfu. En ég safnaði nýjum hugmyndum og leitaði til manna, sem voru leitendur. Ég tók til fósturs og umhyggju sjálfur, eða með aðstoð annarra, nýtilegar hugsjónir, hvar sem þeirra var von. Árni Eylands skrifaði grein um Krísuvíkurleiðina. Eng- inn veitti eftirtekt þessari blaðagrein, nema ég. Ámi sannfærði mig með greinargerð sinni. Ég bauð Jóni Baldvinssyni bandalag. Við lögfestum snjólausa veginn með aðstoð dugandi samstarfsmanna. Mér tókst um stund að halda málinu á réttri braut. Síðan björguðu Emil í Hafnarfirði og Egill í Sigtúnum framhaldinu.

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.