Ófeigur - 15.12.1951, Side 9

Ófeigur - 15.12.1951, Side 9
ÖFEIGUR 9 Hver af okkur fimmmenningunum vann sinn hiuta af þjóðnytjaverkinu og við höfum sérstaka ánægju af að halda á lofti þessari áhrifamiklu samvinnu við að leysa vandasama þraut hálfrar þjóðarinnar. Það er staðreynd, að hver einasti atvinnu-beminga- maður í landsmálum reynir að leyna getuleysi sínu með því að þykjast gæddur leynigáfum og láta ekki bera á að hann verður stöðugt að þiggja andlega Mar- shallaðstoð í hverju máli, sem hefur nokkura þýðingu. Hinsvegar er sama sagan sífellt endurtekin í sam- starfi manna sem vinna heiðarlega þjóðmálavinnu. Þeir auðgast að hugsjónum og orku við samstarfið og löng- unina til að vinna verk, sem koma alþjóð að gagni. Her- mann og Eysteinn gættu þess ekki, þegar þeir fóru í hið niðurlægjandi þjónsstarf hjá bolsivikum, að þá var þeirra eyðilegging fólgin í því, að shtna frá mörgum mönnum, sem verið höfðu þeim um margt ár miklu hall- kvæmara sjötta skilningarvit heldur en Hermann hafði nokkurn tíma dreymt um að fá sér til aðstoðar í sinni átakanlegu andlegu og mannlegu örbyrgð. * Það er nokkuð skemmtileg saga, hvemig Hermann Jónasson barst um stund með pólitískum loftstraum- um frá hreinu íhaldi til Framsóknarmanna. Hann var starfsmaður hjá Jóhannesi bæjarfógeta, en Jóhannes var einn af forkólfum íhaldsflokksins. Ólafi Thors leizt svo vel á þennna unga mann, að hann bauð honum öruggt sæti á bæjarstjórnarlista íhaldsmanna. Þetta var að gerast, þegar ég var, sem dómsmálaráðherra, að endurskipuleggja hina niðurbrotnu lögreglu í Reykja- vík. Hermann var þar æskilegur starfsmaður, sökum afls og vaxtar. Lögfræðisþekking hans og æfing við embættisstörf var frambærileg. Ég bauð glímukapp- anum starf lögreglustjóra. Hann fékk einu sinni á æf- inni lífsstarf þar, sem hann gat gert nokkurt gagn og gerði það á takmörkuðu sviði við að velja röska menn í lögregluna og gefa þeim vasklegt útlit, sæmilegan búnað og kenna þeim framkomu íþróttamanna. Ólafur missti í það sinn af sínum feng og Hermann fekk um stund loft undir vængi með stuðningi andlegrar og sið- ferðilegrar orku frá stofnendum Tímans. Þessi raf- .mögnun hélzt með nokkrum hætti í allmörg ár. Þá

x

Ófeigur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.