Ófeigur - 15.12.1951, Blaðsíða 13

Ófeigur - 15.12.1951, Blaðsíða 13
ÖFEIGUR 13 brjóta upp húsið. Þegar Helgi kom heim, heimtuðu komumenn að mega leggja undir sig viðskiptabækur hans, en kaupmaður neitar og spyr um heimildir. Eldri sendimaður gerði sig líklegan til að beita handafli. En Helgi kvaðst ekki hræðast ógnanir og neitaði með öllu að afhenda skjöl sín nema eftir úrskurði dómara. Sýslu- maður Eyjabúa brá sér þetta kvöld til Reykjavíkur og náði sendimaður engum bréfum frá honum sér til framdráttar. Eftir nokkurra daga bið hurfu þessir gest- ir aftur til vígstöðvanna í Reykjavík og sögðu hús- bændunum sínar farir ekki sléttar. * Enn leið stund svo, að Eyjarbúar nutu friðar. Komst upp í Reykjavík stórkostlegt verðhækkunarmál, sem fyllti hugi alra verðlagsnefndarmanna með skelfingu. Hafði vitnazt, að tveir af beztu borgurum höfuðstaðarins höfðu grætt hálfa milljón króna hvor á geysiálagn- ingu á niðursoðið aldinmauk og skyldar vörur. Báta- gjaldeyririnn var hér að verki. Var farið hörðum orð- um í blöðum og á fundum um þessa bersyndugu menn, en sök þeirra varðaði ekki við landslög en þótti for- dæmanleg frá siðferðilegu sjónarmiði. Allir vissu um : nöfn þessara miklu gróðamanna, en enginn vildi ganga nær peresónum þeirra en að tala úr fjarlægð illa um þá sem misbrúkuðu svo bátagjaldeyri. Lagðist báðum gróðamönnum til líkn í nauð. Annar þeirra lagði megin- hluta aldinmauksgróðans í fésýslufyrirtæki byltingar- sinna, en hinn sýndi stórmannalega rausn í sambandi við flokksþing samherja sinna og reisti þar skála yfir þvera þjóðbraut. Víst mundi hann hafa búið veizlu- salinn með silfurbitum, ef sá málmur hefði þá verið fáan- legur fyrir bátagjaldeyri. * Verðlagsyfirvöldin fundu, að grundvöllurinn undir fótum þeirar var líkastur dýjaveitu, þar sem enginn veit um dýpt að botni. Þá vildi það happ til, að jarls- efni krata í Eyjum, Páll Þorbjarnarson, hafði gamalt umboð frá löngu liðnum verðlagsforkólfum. Þykir hon- um Helgi Framsóknarjarl heldur fyrirferðarmikill úti þar og vill minnka hans hlut, til að undirbúa þannig vaxandi skilyrði fyrir kratajarlsdæmi í Eyjum. Fór Páll að á sama veg og Pétur Rússakeisari við Narva. Gaf skipun um orrustu og hvarf af vígvellinum. Lagði

x

Ófeigur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.