Ófeigur - 15.12.1951, Qupperneq 23

Ófeigur - 15.12.1951, Qupperneq 23
ÖFEIGUR 23 svartadauða. Væri þess vegna fráleitt, að blanda svo kyngöfgum fiski saman við framleiðslu hversdagsmanna úti á íslandi. Skírarinn seldi allan afla sinn utan við fiskhringinn fyrir gullhreinan gjaldeyri. En þegar kom- ið var að reikningsskilum, var tapið á Grænlandsævin- týrinu alveg óviðráðanlegt fyrir stjórn hlutafélagsins og óafsakanlegt, ef ekki var tekið tillit til landkynn- ingarinnar. Súðin komst nú undir hamarinn, og varð Jóhann Eyjajarl að taka skipið aftur inn á eignaskrá hins fátæka föðurlands. Eysteinn tók ósigrj sínum við Grænland líkt og Spánarkonungur upplausn „flot- ans ósigrandi". Filippus sagðist ekki hafa sent skip sín gegn fellibyljum og sjávarhömrum. Eysteinn gat á sama hátt sagt, að hann hefði ekki búizt við að nærvera nokkurra glaðlyndra kvenna úr höfuðstaðn- um gæti haft jafn sterkt áhrif við Grænland eins og atomsprengja Trumans á borgir í Japan. Skírarinn reyndi nú fyrir hönd ríkiskassans að selja Súðina til annarra þjóða, og fór í þeim erindum til margra landa. Ýmsir litu hýru auga til skipsins og sum- ir nefndu þrjár milljónir sænskar fyrir gripinn. En þegar sagt var frá hinum virðulega aldri Súðarinnar, voru kaupendur að vísu jafnhrifnir og áður, en yfirvöldin þung á brún og bönnuðu innflutning. Nú vildu skírarinn og Eysteinn skilja vel og rausnarlega við hið gamla og góða skip og helzt koma því til f jarlægra landa, þann- ig að nokkur frægð fylgdi verzluninni. Kemur nú til sögunnar óþekkt persóna, framtakssamur rafvirki í höfuðstaðnum. Eftir undarlegum leiðum fékk þessi nýi sölumaður sambönd austur í Kína og þangað var Súð- in seld í haust sem leið. Þar eru hlutirnir verðlagðir eftir gæðum fremur en aldri. Skírarinn lét mála Súð- ina hvítgula, þannig að hún líktist álft á síðsumri. Þegar borgarlýðurinn í Reykjavík gekk í kvöldsvalan- um meðfram höfninni, sáu menn þar eina snekkju svo æskulega og ýturvaxna, að hún bar af öllum skipum í flotanum. Hugðu margir, að snekkja Hitlers væri hér komin, en það var raunar gamla Súðin að byrja lang- ferð sína austur í heim, þar sem aldrei hafði flotið íslenzkt fley. Hinir fyrri eigendur báðu heitt og inni- lega fyrir sínu góða skipi, og að minnsta kosti einn

x

Ófeigur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.