Ófeigur - 15.12.1951, Blaðsíða 27

Ófeigur - 15.12.1951, Blaðsíða 27
ÓFEIGUR 27 árlega verk eftir íslenzka listamenn fyrir þriðja hlut sjóðsins. Var þetta á þeim árum, gott fyrir báða. Lista- mönnunum gekk oft erfiðlega að selja myndir sínar þegar hart var í ári og landið vantaði listaverk vegna þjóðarinnar. Þegar sjóðurinn hafði starfað í 6 ár, undir stjórn ýmissa dugandi manna, varð ég formaður mennta- málaráðs og átti þar sæti í 8 ár. Var á þeim árum samhugur í nefndinni um að kaupa góð listaverk fyrir þjóðina. Fór nefndin á allar meiriháttar listasýningar og lagði sig fram um að kaupa eins mikið og unnt var eftir því sem fjárráð leyfðu. Fór nefndin oft heim til Iistamannanna til að sjá hvað þeir hefðu á boðstólum. Klessulist vildi nefndin ekki kaupa. Þegar bolsivikar komust til valda með borgaraflokkunum 1942, beittu þeir sér fyrir að koma á fót kaupkröfufélagi fyrir lista- menn undir meginforystu Jóns Leifs. Voru nú stofn- settar margar listadeildir í bandalagi listamanna og hafin herferð gegn menntamálaráði og einkum gegn mér. Sendu listamenn ávörp með byltingarkenndu orða- lagi til Alþingis og afsögðu alla, sem ekki vildu styðja klessulistina. Samtökin gáfust illa. Skáldin klofnuðu strax í tvær illvígar fylkingar, sem bárust á banaspjót- um. Jón Leifs hefir lagt svo þungan herskatt á allt sönglíf í landinu, að því liggur við köfnun. Listamenn- imir klofnuðu líka, og er þar nóg um gagnkvæm spjóta- lög. En mest vandræði hlutu listamenn af breytingunni í menntamálaráði. Hið nýja ráð var sniðið eftir fyrir- bænum hinna óánægðu listamanna. Meiri hluti nefnd- arinnar var allur á bandi klessumakaranna. En þetta nýja menntamálaráð sýndi öllum sæmilegum málur- um og myndhöggvurum bæði kulda og lítilsvirðingu. Nefndin leit ekki á sýningar borgaralegra listamanna og keypti alls ekkert af þeim. Má segja, að listamenn og skáld hafi ekki sopið kál, þó að þeir kæmust f rauðu ausuna. Allur félagsskapur þeirra er í rústum, þar sem afbrýði og óvild þróast í sprungum hinna hrundu samtaka. Hafa listamenn fengið svipaða reynslu og aðrir af bolsivikum. Nokkru fyrir jól gerðu höfðingjar í Reykjavík sögu- lega för til Vestmannaeyja með rausn og steigurlæti, sem seint mun fyrnast. Tilgangur þessarar farar var að kynna Eyjarmönnum hinar mörgu góðu og glæsi-

x

Ófeigur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.