Ófeigur - 15.12.1951, Page 34

Ófeigur - 15.12.1951, Page 34
34 ÓFEIGUR Álfareiðin. Stóð ég úti í tunglsljósi, stóð ég út við skóg, stórir komu skarar, af álfum var þar nóg. Blésu þeir á sönglúðra, og bar þá að mér fljótt, og bjöllurnar gullu á heiðskírri nótt. Hleyptu þeir á fannhvítum hestum yfir grund, hornin jóa gullroðnu blika við lund, eins og þegar álftir af ísa grárri spöng fljúga suður heiði með fjaðraþyt og söng. Heilsaði hún mér drottningin og hló að mér um leið, hló að mér og hleypti hestinum á skeið. Var það út af ástinni ungu, sem ég ber? Eða var það feigðin, sem kallaði að mér? Ó, þá náð. Ó, þá náð að eiga Jesúm einkavin í hverri þraut! Ó, þá heill að halla mega höfði sínu’ í Drottins skaut! Ó, það slys því hnossi’ að, hafna, hvilíkt fár á þinni braut, ef þú blindur vilt ei varpa von og sorg í Drottins skaut. Eigir þú við böl að búa, bíðir freistni, sorg og þraut, óttast ekki, bænin ber oss beina leið í Drottins skaut. Hver á betri hjálp í nauðum? Hver á slíkan vin á braut, hjartans vin, sem hjartað þekkir? Höllum oss í Drottins skaut.

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.