Ófeigur - 15.12.1951, Blaðsíða 40

Ófeigur - 15.12.1951, Blaðsíða 40
40 ÓFEIGUR trú á sparsemi, ráðdeild, mynt þjóðarinnar og á þjóð- félag sem byggir á lífsháttum velsiðaðra og frjálsra manna. En þjóðin getur ekki gengið inn í sæluríki stofn- sjóðsins fyrr en hún hefur borgað sekt sína fyrir drýgð- ar yfirsjónir. Hún hefir, síðan 1942, látið ginnast af falsmyndum bolsivika og augnabliksstefnu-manna til að trúa á sjónhverfingar og byltingartálvonir. f þess- um sviftingum hefir þjóðin búið svo um sig, að hún hefur eytt meginhluta alls hins hreyfanlega fjármagns í landinu og verður nú að rétta út höndina og biðja gott fólk í öðrum löndum um björg í búið og afl til framkvæmda. Þegar sambandið milli orsaka og afleið- inga, afbrota og hegningar er orðið öllum augljóst, er fyrst hægt í alvöru að byrja að tala á íslandi um líf frjálsra manna í frjálsu landi. Eyðing fiskimiðanna. Sjávarútvegur fslendinga er nú í meiri hættu heldur en nokkru sinni áður. Véltækni nútímans og augna- blikshyggja margra atvinnurekenda er að tæma fiski- miðin hér við land. Fyrir nokkrum árum átti ég þátt í að sanna svo að ekki varð um deilt, að nokkur hluti íslenzkra togaraeigenda stóð í sambandi við erlenda veiðiþjófa. Höfðu þessir spellvirkjar í sinni þjónustu marga leigða njósnara til að stýra togurunum inn í landhelgina að næturþeli eða þegar varðskip voru víðs fjarri. Þessu eyðingarstarfi er haldið áfram með nýrri tækni. Nú eru allt að 200 innlendir bátar að verki. Þeir sópa landhelgina með togvörpu og dragnót upp við landsteina, hvenær sem færi gefst. Með þessari tvöföldu eyðileggingarstarfsemi eru miðin eyðilögð. Landsfólk- ið veit þetta. Nú kemur ekki bein úr sjó, vertíð eftir vertíð, í sumum helztu aflastöðvum landsins. Lögbrjót- amir beita margvíslegu ofbeldi. Sumir skrifa yfirmönn- um á varðskipum og varðbátum nafnlaus bréf og gefa fyrirheit um misþyrmingar, þegar tækifæri gefist. Sjó- mannastéttin kann ekki að taka á þessu máli og læt- ur rányrkjuna og siðleysið viðgangast ár eftir ár. Ef fólkið á sjávarbakkanum myndaði landhelgisfélög, kæmi upp um sökudólgana sem ræna björginni frá þjóðinni og fylgdi fast fram kröfunni um að banna íslenzkum skipum að eiga og nota bátabotnvörpur og dragnæt- /

x

Ófeigur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.